Veitingageirinn notar samfélagsmiðla mest til að þróa ímynd sína

89% veit­inga­sölu- og þjón­ustu notar sam­fé­lags­miðla til að þróa ímynd fyr­ir­tæk­is­ins eða mark­aðs­setja vöru. Minnst notar bygg­inga­geir­inn sam­fé­lags­miðla í sama til­gangi eða 29%.

Fyrirtæki nota samfélagsmiðla í auknum mæli.
Fyr­ir­tæki nota sam­fé­lags­miðla í auknum mæli. Mynd: Pexels

Veit­inga­sala- og þjón­usta notar sam­fé­lags­miðla mest, eða 89 pró­sent, til að þróa ímynd fyr­ir­tæk­is­ins eða mark­aðs­setja vöru. Minnst notar bygg­inga­starf­semi og mann­virkja­gerð sam­fé­lags­miðla í sama til­gangi eða 29 pró­sent.

Tveir þriðju hlutar allra fyr­ir­tækja nota sam­fé­lags­miðla til að þróa ímynd sína eða mark­aðs­setja vörur.

Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn Hag­stof­unnar. Þar kemur fram að mikil aukn­ing hafi verið á notkun sam­fé­lags­miðla í fyr­ir­tækjum.

Á þessu ári eru 82 pró­sent fyr­ir­tækja hér á landi með eigin vef. Þriðj­ungur þeirra býður upp á að vörur eða þjón­usta sé pöntuð af vefnum, mis­mikið eftir atvinnu­greinum, flest í heild- og smá­sölu­verslun og við­gerðum á vél­knúnum öku­tækjum.

Um þriðjungur notar samfélagsmiðla til ráðninga

Fjórð­ungur fyr­ir­tækja tekur við pönt­unum í gegnum vef eða smá­forrit, flest í heild- og smá­sölu­verslun og við­gerðum á vél­knúnum öku­tækjum.

Um þriðj­ungur notar sam­fé­lags­miðla til að ráða fólk til starfa, en það er nokkur fjölgun síðan árið 2013 þegar þetta hlut­fall var 19 pró­sent.

Rúmlega helm­ingur fyr­ir­tækja notar sam­fé­lags­miðla til að taka við ábend­ingum eða fyr­ir­spurnum og svara þeim. Það er einnig fjölgun frá árinu 2013 þegar hlut­fallið var 30 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár