Notkun áfengis eykur líkurnar á elliglöpum

Enn og aftur sann­ast að allt er gott í hófi og ofneysla á áfengi, eins og svo mörgu öðru, getur dregið dilk á eftir sér.

Áfengi er títt notað fíkni­efni meðal manna og kvenna en í flestum ríkjum heims er það eina fíkni­efnið sem er lög­legt. Fjöl­margar rann­sóknir á áfeng­is­notkun hafa sýnt fram á jákvæð áhrif þess að neyta áfengra drykkja í hófi meðan ofneysla áfengis hefur oft­ast verið tengt við nei­kvæð áhrif.

Í rann­sókn sem fram­kvæmd var í frönsku þýði kemur fram að ofnotkun áfengis er einn sterkasti áhættu­þáttur fyrir elli­glöpum fyrir aldur fram. Elliglöp eru eðli­legur hluti af því að eld­ast en þegar þau koma fram fyrir 65 ára aldur er talað um snemm­komin elli­glöp, sem rekja rætur sínar að öllum lík­indum í annað en aldur við­kom­andi.

Í þess­ari rann­sókn var ofneysla áfengis flokkuð yfir 60 grömm af alkó­hóli á dag fyrir karla en yfir 40 grömm af alkó­hóli á dag fyrir konur. Þetta jafn­gildir því að karlar drekki 4-5 drykki en að konur drekki 3 drykki að með­al­tali á dag.

Úrtakið í rann­sókn­inni taldi yfir milljón ein­stak­linga sem greindust með elli­glöp. Fjöldi þeirra sem greindust með snemm­komin elli­glöp var um 57 þús­und ein­stak­lingar. Innan þess hóps var mjög sterk teng­ing við ofneyslu áfengis en 57% þeirra sem greindust með snemm­komin elli­glöp höfðu neytt áfengis í miklum mæli yfir ævina.

Þeir sem grein­ast snemma með elli­glöp eru mun lík­legri til að deyja af völdum heila­hrörn­unar en þeir sem upp­lifa elli­glöp seinna á lífs­leið­inni. Áfeng­is­neysla er einn af fáum áhættu­þáttum sem hægt er að stýra og koma þannig í veg fyrir slíka sjúk­dóma.

Áfeng­is­neysla og mis­notkun á henni sýnir mjög sterka fylgni við elli­glöp en það er ekki eina áhættan sem fylgir. Ein­stak­lingar sem neyttu áfengis í óhófi voru líka lík­legri til að reykja, vera með háan blóð­þrýst­ing og sýna merki um þung­lyndi svo eitt­hvað sé nefnt. Þetta bendir til þess að áfengi hafi mun víð­tæk­ari áhrif en ein­ungis á minnið.

Það sann­ast því enn og aftur að allt er gott í hófi og ofneysla á áfengi, eins og svo mörgu öðru, getur dregið dilk á eftir sér.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár