Vanhæfiskröfunni vísað frá Hæstarétti

Kröfu um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir Lands­rétt­ar­dóm­ari víki sæti vegna van­hæfis, á þeim grund­velli að hún hafi ekki verið skipuð með réttum hætti í emb­ætti, hefur verið vísað frá Hæsta­rétti.

Kröfu Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar um að Arn­fríður Ein­ars­dóttir Lands­rétt­ar­dóm­ari víki sæti vegna van­hæfis, á þeim grund­velli að hún hafi ekki verið skipuð með réttum hætti í emb­ætti, hefur verið vísað frá Hæsta­rétti.

Þetta stað­festir Vil­hjálmur í sam­tali við Kjarnann. Dómur þessa efnis var kveð­inn upp í rétt­inum í dag og hefur verið til­kynnt lög­mönnum aðila, það er að segja Vil­hjálmi og Jóni H.B. Snorra­syni fyrir hönd ákæru­valds­ins. Nið­ur­staðan mun birt­ast á heima­síðu Hæsta­réttar síðar í dag.

Í niðu­stöð­unni segir að engu því hafi verið haldið fram í kröf­unni fyrir van­hæf­inu sem valdið gæti því eftir 6. grein saka­mála­laga, heldur hafi rök­semd­irnar snú­ist að því að ekki hafi verið farið að lögum við skipun dóm­ar­ans. „Hefði hann klædd álita­efnið sem hann í raun leit­aði úrlausnar um rang­lega í bún­ing kröfu um að dóm­ar­inn viki sæti í mál­inu,“ segir í sam­an­dreg­inni nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.

Úrskurður Lands­réttar hafi þannig ekki snúið að réttu lagi að ágrein­ingi um það efni og gæti hann af þeim sökum ekki átt undir kæru­heim­ild til Hæsta­réttar um hvort Lands­rétt­ar­dóm­ari víki sæti í mál­inu.

[links]Vil­hjálmur krafð­ist þess fyrir hönd skjól­stæð­ings síns í saka­máli að Arn­fríður viki sæti þegar málið var flutt fyrir Lands­rétti. Dómurinn úrskurð­aði að Arn­fríður væri ekki van­hæf og skaut Vil­hjálmur þeirri nið­ur­stöðu til Hæsta­réttar sem nú hefur vísað mál­inu frá.

Í lögum um með­ferð saka­mála kemur fram að Hæsti­réttur geti kveðið upp dóm um frá­vísun máls frá rétt­inum vegna galla á mála­til­bún­aði þar fyrir dómi án þess að mál­flutn­ingur fari fram.

Líkast til leiðir þessi nið­ur­staða það af sér að til að geta gert kröfu um að Lands­rétt­ar­dóm­ari víki vegna van­hæfis þurfi efn­is­dómur fyrir Lands­rétti fyrst að ganga og síðar sé mál­inu áfrýjað til Hæsta­réttar þar sem annað hvort ómerk­ingar eða sýknu er kraf­ist á þeim grund­velli að dóm­ur­inn hafi ekki verið rétt skip­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár