Katrín ber fullt traust til Sigríðar

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist bera fullt traust til allra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni. Stjórn­ar­and­staðan spurði hana út í stöðu Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra og þá réttaró­vissu sem skap­ast hafi í íslensku rétt­ar­kerfi vegna Lands­réttar.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist bera fullt traust til allra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni.

Stjórn­ar­and­staðan spurði for­sæt­is­ráð­herra ítrekað út í stöðu Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra og þá réttaró­vissu sem skap­ast hefur í íslensku rétt­ar­kerfi í kjöl­far ákvarð­ana Sigríðar í Lands­rétt­ar­mál­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag.

Helga Vala Helga­dóttir for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra út í málið. Hún sagði nú fimm mál til með­ferðar í dóms­kerf­inu vegna ákvarð­ana dóms­mála­ráð­herra; tvö fyrir hér­aðs­dómi, eitt í Hæsta­rétti og tvö fyrir Lands­rétti.

Hún spurði ráð­herra hvort hún hefði engar áhyggjur af stöðu dóms­kerf­is­ins, áhyggjur af því að það sé laskað og verði áfram laskað nema gripið verði á ein­hvern hátt í taumana af hálfu for­sæt­is­ráð­herra. Helga spurði Katrínu einnig hvort dóms­mála­ráð­herra njóti trausts for­sæt­is­ráð­herra sem yfir­maður dóms­mála á Íslandi.

[links]Katrín svar­aði því til að málin sem Helga Vala vís­aði til væru séu enn til umfjöll­unar fyrir dóm­stólum og að hún vildi ekki tjá sig um mál sem svo væri ástatt um. Hún sagð­ist bera almennt traust til dóm­stól­anna og taldi enga ástæðu til að grípa í taumana með neinum hætti hvað varði dóms­kerfið í land­inu.

„Hvað varðar traustið á dóms­mála­ráð­herra hæst­virtum þá ber ég fullt traust til allra ráð­herra,“ sagði Katrín.

Helga Vala sagði það athygl­is­vert að heyra að dóms­mála­ráð­herra njóti fulls trausts hjá for­sæt­is­ráð­herra, þegar hann hafi tví­vegis verið dæmdur í Hæsta­rétti fyrir emb­ætt­is­færslur sínar. „Sem fyrrum lög­maður hef ég veru­legar áhyggjur af þess­ari stöðu, skaða­bóta­skylda íslenska rík­is­ins getur orðið slík að ég held að for­sæt­is­ráð­herra ætti líka að hafa áhyggjur af þess­ari stöðu.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata lagði sitt lóð á vog­ar­skál­arnar og óskaði eftir við­brögðum for­sæt­is­ráð­herra, þar sem end­an­leg nið­ur­staða um hegðun dóms­mála­ráð­herra lægi fyrir, burt séð frá mála­rekstri sem nú er í gangi í dóms­kerf­inu. Hæsti­réttur hafi þannig upp­lýst þegar um öll helstu atriði. Dóms­mála­ráð­herra hafi þannig brotið gegn stjórn­sýslu­lögum og efa­semdir um hæfi Lands­rétt­ar­dóm­ar­anna muni plaga dóm­stól­inn næstu árin og spurði Katrínu hvernig hún hygð­ist bregð­ast við fyr­ir­séðri réttaró­vissu í dóms­kerf­inu næstu árin.

Katrín svar­aði því aftur að henni fynd­ist mik­il­vægt að dóms­valdið fái að ljúka máls­með­ferð sinni áður en fram­kvæmda­valdið færi að tjá sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár