Forseti ASÍ gerir ráð fyrir verkfallsátökum

Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ seg­ist hafa upp­lifað sam­hljóm í gremju for­manna verka­lýðs­fé­laga út í aðstæður á vinnu­mark­aði á for­manna­fundi sam­bands­ins fyrr í dag þar sem kosið var gegn því að segja upp samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins.

Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ seg­ist hafa upp­lifað sam­hljóm í gremju for­manna verka­lýðs­fé­laga út í aðstæður á vinnu­mark­aði á for­manna­fundi sam­bands­ins fyrr í dag þar sem kosið var gegn því að segja upp samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins. Formenn aðild­ar­fé­lag­anna sem sátu fund­inn hafi verið sam­hljóma í gremju sinni gagn­vart þeim aðstæðum sem upp eru komnar.

[links]„Það sem skildi á milli var meira svona þessi tíma­setn­ing, hvort það eigi að fara í það í mars eða apríl eða nota tím­ann fram á haust til að und­ir­búa félags­menn okkar undir næstu lotu,“ en þar gerir hann ráð fyrir átökum „þá meina ég verk­fallsá­tök,“ segir Gylfi í sam­tali við Kjarnann.

„Það er ekk­ert hægt að koma upp úr engu með það, það þarf að und­ir­búa slíkt. Að sama skai erum við stór og sterk hreyf­ing sem hefur skipu­lags­hæfi­leika til að gera þetta. En til þess þarf nátt­úru­lega sam­stöðu.“

Aðspurður um hvort þessi klofna nið­ur­staða, þar sem 28 vildu standa við samn­ing­ana en 21 segja þeim upp, og að baki þeirra sem vildu segja þeim upp eru 66,9 pró­sent félags­manna ASÍ, segir Gylfi for­manna­fund­inn vera lýð­ræð­is­legan vett­vang til að taka svona ákvörðun.

Hann upp­lifði umræð­una og þá brýn­ingu sem fram fór á fund­inum með þeim hætti að allir væru með­vit­aðir um að nú væri verk að vinna. „Það þarf að tala fólk inn á sam­stöðu, hún ger­ist ekki að sjálfu sér. Það er við­fangs­efni hreyf­ing­ar­innar fram til hausts­ins, að tala fólks inn á sam­stöð­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár