Kjarasamningarnir halda

Kjara­samn­ingar ASÍ við SA halda. For­manna­fundur greiddi leyni­lega atkvæði um upp­sögn á samn­ing­unum rétt í þessu á fundi sínum á Hótel Nordica.

Af formannafundi ASÍ í dag.
Af for­manna­fundi ASÍ í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Kjara­samn­ingar ASÍ við SA halda. For­manna­fundur greiddi leyni­lega atkvæði um upp­sögn á samn­ing­unum rétt í þessu á fundi sínum á Hótel Nordica.

Alls eiga 44 félög aðild að kjara­samn­ing­unum en tölu­vert fleiri hafa atkvæð­is­rétt á fund­inum. Innan sumra félaga eru til dæmis iðn­að­ar­manna- og versl­un­ar­manna­deildir og full­trúar þeirra höfðu einnig atkvæð­is­rétt. Auk þeirra for­maður Rafn­iðn­að­ar­sam­bands­ins og Gylfi Arn­björns­son for­seti ASÍ. Alls greiddu því 49 atkvæði á fund­inum.

[adspot]Atkvæði féllu þannig:

Já, vil segja upp 21 (42,9%)

Nei, vil ekki segja upp 28 (57,1%)

Væg­is­kosn­ing:

Já 52.890 (66,9%)

Nei 26.172 (33,1%)

[links]Greint var frá því fyrr í dag að for­menn bæði Eflingar og VR, tveggja stærstu aðild­ar­fé­laga ASÍ, hefðu ætlað að greiða atkvæði með því að segja samn­ing­unum upp. Þar með var ljóst að full­trúar meiri­hluta félags­manna ASÍ væru á þeirri skoðun. Hins vegar þurfti einnig meiri­hluta atkvæða for­manna þeirra aðild­ar­fé­laga sem atkvæða­rétt eiga á fund­inum, sem eru alls 59. Meiri­hluti þeirra virð­ist hins vegar hafa kosið að halda samn­ing­unum til streitu.

Bæði þurfti meiri­hluta þeirra fund­ar­manna sem fara með atkvæði á fund­inum og meiri­hluta þess atkvæða­vægis sem að baki þeim standa til að fella samn­ing­ana.

Auk full­trúa Eflingar og VR hafa full­trúar AFLs starfs­greina­fé­lags og Verka­lýðs­fé­lags Akraness stað­fest að þeir vilji segja samn­ing­unum upp.

Í til­kynn­ingu frá ASÍ segir að þeir sem vildu halda í samn­ing­inn hafi talað um að aðeins væru 9 mán­uðir eftir af samn­ingnum og hann tryggði 3 pró­senta almenna launa­hækkun 1. maí og rúm­lega 7 pró­senta hækkun lág­marks­launa. Nota ætti tím­ann til hausts til að móta kröfu­gerð og und­ir­búa næstu kjara­við­ræður.

„Það var þungt hljóð í þeim sem vildu segja upp og sterk krafa um að verka­lýðs­hreyf­ingin setti fót­inn niður í sam­fé­lagi mis­skipt­ingar. Stjórn­völd voru harð­lega gagn­rýnd fyrir að taka til sín ávinn­ing af starfi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem hefur lagt mikla áherslu á hækkun lægstu launa, en stjórn­völd tekið að stórum hluta til baka með skerð­ingu bóta. Úrskurðir kjara­ráðs og hækk­anir á launum æðstu stjórn­enda banka og Lands­virkj­unar urðu auk þess mörgum fund­ar­mönnum til­efni til gagn­rýni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði munu því halda fram til ára­móta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár