Fulltrúar meirihluta félagsmanna ASÍ vilja segja upp kjarasamningum

Full­trúar Eflingar, AFLs og Verka­lýðs­fé­lags Akraness vilja segja upp kjara­samn­ingi ASÍ við SA og hafa gert grein fyrir að atkvæðum sínum á for­manna­fundi ASÍ sem stendur nú yfir. Fulltrúi VR hyggst gera slíkt hið sama.

Alls sitja 59 formenn aðildarfélaga ASÍ formannafundinn sem nú stendur yfir.
Alls sitja 59 for­menn aðild­ar­fé­laga ASÍ for­manna­fund­inn sem nú stendur yfir. Mynd: Bára Huld Beck

Full­trúar Eflingar, Verka­lýðs­fé­lags Akraness og AFLs starfs­greina­fé­lags hafa öll greitt atkvæði með því að segja upp kjara­samn­ingum við Samtök atvinnu­lífs­ins. For­manna­fundur ASÍ stendur nú yfir á Hótel Nordica.

[links]Í sam­tali við Mbl.is segir Sigurður Bessason for­maður Eflingar, sem er næst stærsta aðild­ar­fé­lag ASÍ, að hann hafi gert grein fyrir atkvæði sínu á fund­inum og viljað segja upp samn­ing­unum. Það gerði einnig Sverrir Mar Alberts­son fram­kvæmda­stjóri AFLs sem og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR, sem er stærsta aðild­ar­fé­lag ASÍ, hefur áður gefið það út að félagið muni kjósa með því að segja sam­ing­unum upp en stjórn og trún­að­ar­ráð VR sam­þykktu á fundi sínum í gær ályktun þess efnis að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnar og að óbreyttu beri að segja þeim upp. Þannig er ljóst að full­trúar meiri­hluta félags­manna innan ASÍ eru á því að segja upp samn­ing­unum.

Í lok umræðu á for­manna­fund­inum verður við­höfð leyni­leg raf­ræn atkvæða­greiðsla um upp­sögn kjara­samn­ing­anna. Þar gildir að til að mynda meiri­hluta þarf bæði meiri­hluta þeirra fund­ar­manna sem fara með atkvæði á fund­inum og meiri­hluta þess atkvæða­vægis sem að baki þeim standa.

Alls sitja 59 for­menn aðild­ar­fé­laga ASÍ fund­inn sem er lok­aður en búist er við því að fund­ur­inn standi til þrjú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár