VR: Forsendur kjarasamninga eru brostnar

Formaður VR fær fullt umboð fyrir samn­inga­fund á morgun.

Stjórn og trún­að­ar­ráð VR sam­þykktu á fundi sínum ályktun þess efnis að for­sendur kjara­samn­inga séu brostnar og að óbreyttu beri að segja þeim upp. „Augljóst má vera að aðrir launa­hópar hafa fengið launa­hækk­anir sem eru umfram þær hækk­anir sem félagar í VR hafa fengið á við­mið­un­ar­tíma­bili gild­andi kjara­samn­inga,“ segir í ályktun frá VR.

Sá segir einnig að fund­ur­inn krefj­ist þess að „kjara­samn­ingar verði end­ur­skoð­aðir þannig að for­sendu­á­kvæði haldi“, ella komi til upp­sagnar og er for­manni VR, Ragnari Þór Ing­ólfs­syni, veitt fullt umboð fund­ar­ins til þess að meta slíkt ef til­boð er lagt á borð samn­inga­nefndar mið­viku­dag­inn 28. febr­úar 2018. „Komi ekk­ert ásætt­an­legt til­boð sem rétt getur af þann for­sendu­brest sem orðið hefur leggur trún­að­ar­ráð VR til að samn­ingum verði sagt upp áður en að frestur til þess rennur út og þá verði krafa okkar í við­ræðum sú að laun hækki í sam­ræmi við ákvörðun Kjara­ráðs um hækkun þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins,“ segir í ályktun fund­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár