SA benda á stjórnvöld í kjaradeilunni

For­sendu­nefnd ASÍ og SA hefur lokið störfum og eru ósam­mála um hvort for­sendur kjara­samn­inga hafi stað­ist. SA segja ekki á þeirra færi að bregð­ast við óánægj­unni heldur stjórn­valda.

Forsendunefnd ASÍ og SA.
For­sendu­nefnd ASÍ og SA. Mynd: Aðsend.

For­sendu­nefnd ASÍ og SA hefur lokið störfum og eru ósam­mála um hvort for­sendur kjara­samn­inga hafi stað­ist.Full­trúar ASÍ í nefnd­inni telja að að frá því hún úrskurð­aði síð­ast í febr­úar 2017 hafi ekki náðst almenn sátt um launa­stefnu og því haldi upp­sagn­ar­heim­ildin gildi sínu. Full­trúar SA telja hins vegar að þeir kjara­samn­ingar sem gerðir hafa verið und­an­farna tólf mán­uði séu í sam­ræmi við launa­stefnu ramma­sam­komu­lags­ins og því ekki for­sendur fyrir upp­sögn kjara­samn­inga.

Báðir aðilar telja hins vegar að for­senda sem snýr að kaup­mætti launa hafi stað­ist.

Í yfir­lýs­ingu frá SA segir að sam­tökin, og aðild­ar­fé­lög þess, hafi staðið við allar sínar skuld­bind­ingar sam­kvæmt kjara­samn­ingum við aðild­ar­fé­lög Alþýðu­sam­bands­ins og „raunar langt umfram það í ljósi þess að kaup­máttur launa hafi vaxið meira á samn­ings­tím­anum er nokkru sinni fyrr.“ Segja þau kaup­mátt hafa að jafn­aði auk­ist um 20 pró­sent og kaup­mát lægstu launa enn meira, um 25 pró­sent. „Það er for­dæma­laus kaup­mátt­ar­aukn­ing á einu samn­ings­tíma­bili á Íslandi og þót víðar væri leitað.“

Samtökin segja ASÍ kalla eftir við­brögðum vegna for­sendu­brests­ins en segja að SA sé ófært um að bregð­ast við for­sendu­bresti sem sé ekki fyrir hendi. Óánægju ASÍ verði ein­ungis mætt af hálfu stjórn­valda og ekki sé á færi Samtaka atvinnu­lífs­ins að stuðla að áfram­hald­andi frið­ar­skyldu á vinnu­mark­aði með breyt­ingum utan áhrifasviðs þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár