Ragnar: Gríðarleg vonbrigði

Formaður VR segir nið­ur­stöðu atkvæða­greiðslu mikil von­brigði. Kjara­samn­ingar munu halda fram til ára­móta.

Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR á formannafundi ASÍ í dag.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR á for­manna­fundi ASÍ í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir nið­ur­stöður á for­manna­fundi ASÍ í dag gríð­ar­leg von­brigði. Samkvæmt þeim halda almennir kjara­samn­ingar fram að ára­mótum en á fund­inum voru greidd leyni­lega atkvæði um upp­sögn á samn­ing­unum.

[links]„Mér finnst við vera að veikja okkar stöðu gríð­ar­lega. Það eru mikil von­brigði að við skyldum ekki standa saman um að segja upp samn­ing­unum þegar for­sendur eru brostnar,“ segir Ragnar í sam­tali við Kjarnann. Hann spyr sig hvers vegna eigi að hafa for­sendur ef samn­ingum er ekki sagt upp þegar þessar sömu for­sendur eru brostnar.

Hann seg­ist skilja smærri félögin sem hafna því að segja upp samn­ingum. „En þarna hefðum við haft mikið og gott tæki­færi til þess að standa í lapp­irnar, sér­stak­lega vegna þess sem á undan er gengið og mun ganga á næstu vikur og mán­uði þegar fyr­ir­tækin byrja að birta sína reikn­inga,“ segir hann.

Næst á dag­skrá er að setj­ast niður með bak­landi VR, að sögn Ragnars, og búa til kröfu­gerð. „Það er ekk­ert annað sem við getum gert nema vinna vinn­una og vera til­búin fyrir ára­mót. Sjá hvort okkar kröfu­gerðir stemmi við aðra,“ segir hann.

Alls greiddu 49 full­trúar atkvæði en þar af vildi 21 segja samn­ing­unum upp en 28 að þeir héldu gildi sínu. Hins vegar eru vægi þeirra full­trúa sem greiddu atkvæði með því að segja samn­ing­unum upp tölu­vert meira en þeirra sem vildu að þeir héldu sér, eða 66,9 pró­sent gegn 33,1 pró­senti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár