Tíu staðreyndir um Íslendinga

Íslend­ingum fjölgar ört, þeir lifa lengur en frjó­semi hefur samt sem áður dreg­ist mikið saman. Flest börn fæð­ast í kreppum en útlend­ingum fjölgar lang­mest í góð­æri. Hér er rýnt í hag­tölur Hagstofu Íslands og dregnar út stað­reyndir um þá sem búa á Íslandi.

1. Okkur fjölgar hratt

Á Íslandi bjuggu 348.580 manns í lok árs 2017. Þeim hefur fjölgað um 26.690 á fimm árum. Þeir sem koma til Íslands á vegum starfs­manna­l­eigna, og dvelja hér tíma­bundið við störf, eru ekki með­taldir í þessum tölum. Talið er að um fimm þús­und manns hafi komið hingað til lands í fyrra á vegum starfs­manna­l­eigna eða sem útsendir starfs­menn.

2. Íslandsmet sett í fyrra

Íbúum lands­ins hefur raunar aldrei fjölgað jafn mikið og á síð­asta ári, þegar íbúum lands­ins fjölg­aði um 10.130. Áður hafði mesta fjölg­unin verið á árunum 2006 (7.781) og 2007 (7.787) á hátindi fyr­ir­hruns góð­ær­is­ins. Til að setja fjölg­un­ina í sam­hengi þá fjölg­aði lands­mönnum sam­tals um 10.648 á árunum 2011-2014, eða fjórum árum.

3. Karlar eru fleiri en konur

Alls búa 177.680 karlar á Íslandi en 170.910 konur. Körlunum fjölgar mun hraðar en kon­unum. Í fyrra fjölg­aði körlum á Íslandi til að mynda um 6.570 en kon­unum um 3.580. Frá byrjun árs 2010 hefur körlum sem búa hér­lendis fjölgað um 17.810 en konum um 13.250.

4. Sprenging í fjölda útlendinga

Aðal­á­stæða þess að lands­mönnum fjölg­aði jafn mikið og raun ber vitni í fyrra er sú að hingað til lands fluttu 7.910 fleiri útlend­ingar en frá því. Þeim fjölg­aði sam­tals um 25 pró­sent á einu ári og erlendir rík­is­borg­arar sem búa á Íslandi voru orðnir 37.950 um síð­ustu ára­mót. 78 pró­sent af þeirri fjölgun sem varð á Íslandi á árinu 2017 er vegna erlendra rík­is­borg­ara sem fluttu til lands­ins. Erlendum rík­is­borg­urum hér­lendis hefur fjölgað um 81 pró­sent frá byrjun árs 2011.

5. Útlendingar gætu orðið um 70 þúsund eftir örfá ár

Í mann­­fjölda­­spá Hag­­stofu Íslands, sem birt var síðla árs 2017, er því spáð, sam­­kvæmt mið­­spá, að alls muni aðfluttum íbúum á Íslandi umfram brott­­flutta fjölga um 23.385 frá byrjun árs 2017 og til loka árs 2021. Sam­­kvæmt háspá yrði sá fjöldi 33.734. Þeir eru nær ein­vörð­ungu erlendir rík­­is­­borg­­ar­­ar. Erlendum rík­­is­­borg­­urum sem hér búa ætti því að fjölga um 77-111 pró­­sent á fimm ára tíma­bili.

6. Margir í Reykjanesbæ, fáir í Garðabæ

Flestir útlend­ing­anna setj­ast að í Reykja­vík. Þeir eru nú 12,4 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­innar á meðan að útlend­ingar eru til að mynda fjögur pró­sent íbúa í Garðabæ. Erlendum rík­is­borg­urum fjölgar þó hlut­falls­lega mest í Reykja­nesbæ. Þar fjölg­aði þeim um 41 pró­sent í fyrra og slíkir eru nú 22,3 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Spár gera ráð fyrir því að erlendir rík­is­borg­arar verði yfir 30 pró­sent íbúa á svæð­inu á allra næstu árum.

Alls búa 220.590 manns á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þ.e. í Reykja­vík og nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum sem liggja upp að höf­uð­borg­inni. Það eru um 64 pró­sent íbúa lands­ins sem þýðir að næstum tveir af hverjum þremur lands­mönnum býr í þeim þétt­býl­iskjarna. Spár gera ráð fyrir að íbúum svæð­is­ins muni fjölga um 70 þús­und fram til árs­ins 2040.

7. Eignumst miklu færri börn...að meðaltali

Þrátt fyrir að íbúum lands­ins fjölgi hraðar en oft­ast áður í Íslands­sög­unni þá hefur frjó­semi íbú­anna dreg­ist nokkuð saman. Árið 1960, þegar hún náði hámarki, eign­að­ist hver kona að með­al­tali 4,3 börn. Und­an­farin ár hefur frjó­semi hins vegar mælst rétt undir 2,0 á hverja konu. Minni frjó­semi er bein­tengd hækk­andi með­al­aldri kvenna. Á sjö­unda og átt­unda ára­tug síð­ustu aldar var með­al­aldur mæðra sem eign­uð­ust sitt fyrsta barn um 22 ár. Um miðjan níunda ára­tug­inn var hann kom­inn upp í 23,3 ár og 2016 í heild 27,7 ár.

8. Flest börn fæddust á kreppuári

Síð­ast­liðin þrjú ár hafa fæðst rétt rúm­lega fjögur þús­und börn á ári hverju á Íslandi. Flestir Íslend­ingar eru fæddir árið 2009, á hápunkti efna­hag­skreppu. Það ár fædd­ust 5.026 börn og er það í eina skiptið í Íslands­sög­unni sem að yfir fimm þús­und Íslend­ingar hafa fæðst á einu ári. Næst­flest börn fædd­ust árið 1960, þegar 4.916 slík komu í heim­inn á Íslandi.

9. Eldra fólki fjölgar hratt

Þeim sem eru eldri en 67 ára hefur líka fjölgað mikið á skömmum tíma, enda Íslend­ingar sífellt að lifa lengur. Í lok síð­asta árs voru þeir sem höfðu náð hefð­bundnum eft­ir­launa­aldri 40.832. Miðspá mann­fjölda­spár Hagstofu Íslands gerir ráð fyrir að þessi hópur telji 77.123 árið 2040 og 114.308 árið 2066. Til að setja þetta í annað sam­hengi þá voru 39 Íslend­ingar 100 ára eða eldri í lok árs 2017. Spáin gerir ráð fyrir því að 405 manns verði að minnsta kosti 100 ára árið 2066.

10. Milli 100 til 200 þúsund bætast við á hálfri öld

Samkvæmt mið­spá mann­fjölda­spár Hagstofu Íslands munu Íslend­ingar verða 421.477 árið 2040 og 451.543 árið 2066. Það munu því rúm­lega eitt hund­rað þús­und manns bæt­ast við hið minnsta á næstu tæpu 50 árum. Samkvæmt háspá verða Íslend­ingar þegar orðir 458.381 árið 2040 og heil 531.461 árið 2066.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár