Óhollt matarræði kveikir á ónæmiskerfinu

Mýs sem neyta vest­rænnar fæðu eru með mun fleiri hvít blóð­korn á sveimi en þær sem borða hefð­bundna músa­fæðu.

Þrátt fyrir að stöðugar fram­farir lækna­vís­ind­anna geri okkur kleift að lifa lengur en for­feður okkar gerðu þá mun stöðug hækkun hámarks­ald­urs nú fljót­lega ná topp­inum. Ástæðan er sú að lifn­að­ar­hættir okkar hér í hinum vest­ræna vel­meg­un­ar­heimi ýta undir alls kyns lífstílstengda sjúk­dóma.

Til að stemma stigu við þessu hafa margir vís­inda­hópar reynt að beina sjónum sínum frekar að orsök sjúk­dómanna frekar en að finna lækn­ingu við þeim. Ein slík rann­sókn sem unnin var í músum birt­ist á dög­unum í Cell og segir ótrú­lega sögu um hvernig matar­æði hefur áhrif á ónæm­is­kerfið okkar.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn bar saman tvo músa­hópa sem fengu mis­mun­andi fæðu. Annar fékk fæðu sem inni­hélt mikið af fitu og sykri en lítið af trefjum sem kall­ast í rann­sókn­inni vest­ræn fæða. Hinn hóp­ur­inn, við­mið­un­ar­hóp­ur­inn, fékk hins vegar hefð­bundna fæðu fyrir mýs. Til að meta áhrif fæð­unnar á ónæm­is­kerfi mús­anna voru tekin blóð­sýni úr ein­stak­lingum innan beggja hópa og hvítu blóð­kornin greind.

Í ljós kom að sá hópur sem neytti vest­rænnar fæðu hafði mun fleiri hvít blóð­korn á sveimi í blóð­inu. Hvít blóð­korn eru frumur sem til­heyra ónæm­is­kerf­inu og mik­ill fjöldi þeirra í blóði er oft­ast til­kom­inn vegna sýk­ingar. Í þessu til­felli var ekki um sýk­ingu að ræða heldur óhefð­bundið matar­æði, en lík­ami mús­anna brást við eins og sýk­ingu væri að ræða.

Þegar frumu­gerðir voru greindar kom einnig í ljós að þarna voru aðal­lega á ferð­inni frumur sem sinna fyrstu við­brögðum ónæm­is­kerf­is­ins. Til að rýna enn dýpra í það hvað var á seyði inn í lík­ama mús­anna voru ein­angr­aðar frumur úr bein­merg, þar sem vefja­sér­hæfðar stofn­frumur ónæm­is­kerf­is­ins búa.

Þegar stofn­frum­urnar voru skoð­aðar m.t.t. gena­tján­ingar þeirra kom í ljós að þar hafði verið opnað fyrir tján­ingu á genum sem örva frumu­skipt­ingu og þroskun nýrra ónæm­is­frumna. Slíkar breyt­ingar á tján­ing­ar­mynstri eru nauð­syn­legar þegar ónæm­is­kerfið þarf að bregð­ast við sýk­ingu.

Því miður virt­ust þessar breyt­ingar ekki ganga til baka, jafn­vel fjórum vikum eftir að mýsnar hættu að fá vest­rænt fæði. Eftir að rann­sókn­ar­hóp­ur­inn hætti að gefa mús­unum vest­rænt fæði, fækk­aði hvítum blóð­kornum á nýjan leik, þ.e. ónæm­is­svarið hjaðn­aði en erfða­efni vefja­sér­hæfðu stofn­frumn­anna var þó enn opið fyrir tján­ingu gena sem stuðla að þroskun nýrra frumna. Það þýðir að ónæm­is­kerfið er næmara fyrir smá­vægi­legum breyt­ingum sem gætu leitt til óþarfa bólgu­svars.

Miðað við þessar nið­ur­stöður má draga þá ályktun að með óhollu fæði erum við að ýta undir stöðugt bólgu­svar ónæm­is­kerf­is­ins. Það er sér­stak­lega áhuga­vert í ljósi þess að marga lífstílstengda sjúk­dóma í hinum vest­ræna heima má rekja til stöðugra bólgna í lík­am­anum, svo sem gigt, sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma eða hjarta- og æða­sjúk­dóma.

Næstu skref hjá rann­sókn­ar­hópnum eru vænt­an­lega að skoða hvort sam­bæri­leg áhrif vest­rænnar fæðu er að finna í mönnum, en mögu­lega talar sjúk­dóma­tíðnin þar sínu máli. Það verður spenn­andi að fylgj­ast með kom­andi rann­sóknum á þessu sviði. Þangað til hvetjum við alla til að borða trefj­a­ríka og holla fæðu.

Þessi frétt birt­ist líka á hvat­inn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár