Trump útnefnir sigurvegara Falsfréttaverðlaunanna

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti og Repúblíkana­flokk­ur­inn hafa birt lista yfir sig­ur­veg­ara Fals­frétta­verð­launa sinna. CNN, New York Times og Washington Post meðal þeirra sem fá þann „heiður“.

Repúblíkana­flokk­ur­inn birti í gær sig­ur­veg­ara í keppni Donald Trump sem ber nafnið Fake News Award eða Fals­frétta­verð­launin.

Þeir sem hlutu útnefn­ingar flokks­ins og for­set­ans eru meðal ann­arra Paul Krugman, pistla­höf­undur hjá New York Times, CNN, Washington Post og New York Times.

Í blogg­færslu á heima­síðu flokks­ins, þar sem nið­ur­stöð­urnar voru birtar í gær, kemur fram að árið 2017 hafi verið ár hlut­drægni, ósann­gjarns frétta­flutn­ings og jafn­vel fals­frétta. „Rann­sóknir hafa sýnt að yfir 90 pró­sent af frétta­flutn­ingi um Trump er nei­kvæður,“ segir í færsl­unni.

Heima­síða Repúblíkana­flokks­ins hrundi stuttu eftir að for­set­inn birti tíst um verð­launin.

Krugman var í fyrsta sæti fyrir að halda því fram þegar Trump var kjör­inn að efna­hag­ur­inn myndi aldrei jafna sig. Í öðru sæti er frétta­maður ABC Brian Ross sem hélt því rang­lega fram að Trump hefði beðið starfs­mann kosn­inga­bar­átt­unnar að hafa sam­band við Rússa. Frétta­stofan neydd­ist síðar til að leið­rétta frétt­ina, að atvikið hefði átt sér stað eftir kosn­ing­arnar. Ross var settur í leyfi.

Í þriðja sæti er frétta­stofa CNN fyrir að halda því fram að for­set­inn og sonur hans, Donald Trump yngri, hefðu haft aðgang að WikiLeaks gögnum tíu dögum áður en WikiLeaks birti gögnin. Fréttin var leið­rétt.

Í fjórða sæti er umfjöllun TIME um að Trump hafi fjar­lægt brjóst­mynd af Martin Luther King yngri af skrif­stofu for­set­ans. Um var að ræða tíst frá blaða­manni TIME, sem sendi fleira en tylft tísta út síðar til að leið­rétta mis­tök sín og baðst afsök­unar.

Fimmta sætið fer til Washington Post fyrir að halda því fram að fundur for­set­ans í Pensacola á Flórída hafi verið mann­laus, en upp­selt hafi verið á fund­inn. Í rök­stuðn­ingi kemur fram að frétta­maður blaðs­ins hafi sent út mynd af fund­ar­staðnum löngu áður en fund­ur­inn hófst og þannig áður en fund­ar­gestir mættu. Frétta­mað­ur­inn baðst afsök­unar.

Minnst er á CNN í fleiri til­vikum, fyrir að halda því fram að Trump hafi gefið skraut­fiskum of mikið af fæði í heim­sókn til jap­anska for­sæt­is­ráð­herr­ans jafn­vel þó að ráð­herr­ann hafi leitt fóð­ur­gjöf­ina. Þá hafi CNN haldið því fram að fyrr­ver­andi yfir­maður upp­lýs­inga­mála Hvíta húss­ins, Anthony Scaramucci hafi fundað með Rússum, en dregið frétt­ina til baka og beðist afsök­unar.

Þá er minnst á Newsweek fyrir að halda því fram að for­seta­frú Póllands, Agata Korn­hauser-Duda, hafi ekki tekið í hönd­ina á Trump sem og New York Times fyrir að halda því rang­lega fram á for­síðu að stjórn­völd undir stjórn Trump hafi falið skýrslu um lofts­lags­mál, sem var þvert á móti öllum aðgengi­leg.

Síðast í upp­taln­ing­unni er Rúss­lands sam­ráð­ið­nefnt sem aðal fals­fréttin og eitt mesta gabb sem fram­kvæmt hefur verið á banda­rísku þjóð­inni. „THERE IS NO COLLUSION“ eða það er ekk­ert sam­ráð segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár