Stór áfangi í augsýn í Parkinson’s meðferð

Ný rann­sókn sem gerð var af við Kyoto háskóla sýnir að afleiddar stofn­frumur geta hindrað fram­gang Parkison's sjúk­dóms­ins.

Þó Park­in­son's sé enn ekki að fullu skil­greindur sjúk­dómum er margt sem við vitum að ger­ist í tauga­kerfi þeirra sem grein­ast með hann. Eitt af því sem ger­ist er að frumum sem eru dópamín­virkar tauga­frumur, fækkar umtals­vert. Svo mikil er fækkun frumn­anna að fjöldi þeirra í nýgreindum ein­stak­ling er oft ekki nema um helm­ingur þess sem finnst í heil­brigðum ein­stak­ling.

Virkjun og fjölgun þess­ara frumna getur því verið eitt af með­ferð­ar­úr­ræðum gegn sjúk­dómnum, en það er því miður hæg­ara sagt en gert. Vís­inda­hópar hafa nú þegar sýnt fram á að þegar stofn­frumur eru not­aðar til að búa til nýjar tauga­frumur getur það haft áhrif á Park­in­son´s ein­kenni ein­stak­linga.

Rann­sókn­ar­hópur við Kyoto Uni­versity í Japan birti á dög­unum rann­sókn í Nature þar sem afleiddar stofn­frumur eru not­aðar í fyrsta skipti sem með­ferð við Park­in­son’s í öpum.

Í rann­sókn­inni var not­ast við vefja­sér­hæfðar stofn­frumur úr öpunum sem voru með­höndl­aðar til að þroskast í átt að dópamín-virkum tauga­frumum. Þessum tauga­frumum var svo komið fyrir í tauga­vef Park­in­son’s veikra apa í von um að þær hefðu áhrif á fram­gang sjúk­dóms­ins.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru væg­ast sagt ánægju­legar, en aparnir sýndu ekki bara fram­farir í sjúk­dómi sínum heldur er hægt að lesa úr þess­ari yfir­grips­miklu rann­sókn hvaða þættir við slíkar frumu­með­ferðir skipta höf­uð­máli.

Frum­urnar sem not­aðar voru gátu s.s. end­ur­nýjað tauga­vef­inn sem hafði skemmst af völdum Park­in­son’s sjúk­dóms­ins, svo aparnir sýndu aukna stjórn á hreyf­ingum sínum. Sem betur fer fylgdu þessu ekki auknar líkur á krabba­meins­myndun eins og stundum vill verð fylgi­fiskur nýrra fjöl­hæfra frumna inni í lík­amann.

Eins og áður var nefnt fann rann­sókn­ar­hóp­ur­inn hverjir eru lyk­il­þætt­irnir við frumu­gjöf­ina. Aðal­at­riðin til að sjá almenni­legar fram­farir við frumu-með­ferðir sem þessar eru gæði frumn­anna sem not­aðar eru. Frum­urnar þurfa að henta ónæm­is­kerfi sjúk­lings­ins ein­stak­lega vel, en þannig aukast lík­urnar á því að frum­urnar nái að dafna. Það sem gildir er gæði en ekki magn, eins og margir höfðu veðjað á.

Þegar búið er að prófa með­ferð sem þessa í dýrum sem líkj­ast mönnum jafn­mikið og apar gera og með­ferðin gefur góða raun eru næstu skref að skoða hvaða áhrif við getum haft á sjúk­dóm­inn í mönnum. Þó ber alltaf að stíga var­lega til jarðar og rann­sóknir sem fara fram í mönnum þurfa að lúta mjög ströngum kröfum. Það þarf því að huga að mörgu og gefa sér nægan tíma áður en haldið er af stað í fjöld­ann allan af með­ferðum við Park­in­son’s. En þó má segja að við erum þó nokkrum metrum nær því að finna áhrifa­ríka lækn­ingu við þessum hvim­leiða sjúk­dómi.

Fréttin birt­ist fyrst á hvat­inn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár