Krabbameinssjúklingar 2,5 sinnum líklegri til að láta lífið með óhefðbundnum lækningum

Nýbirt rann­sókn, unnin af teymi við Yale háskóla, færir rök fyrir því að krabba­meins­sjúk­lingar eigi að halda sig við hefð­bundnar og vís­inda­legar lækn­ingar.

Í krabba­meins­með­ferðum, líkt og með­ferðum gegn öðrum sjúk­dómum, mæla læknar gegn því að sjúk­lingar þeirra nýti sér óhefð­bundnar lækn­ingar í stað hefð­bund­inna. Þetta er gert af þeirri ein­földu ástæðu að ástæðan fyrir því að óhefð­bundnar lækn­ingar eru kall­aðar óhefð­bundnar er að ekki hefur tek­ist að sýna fram á að þær virki.

Þrátt fyrir þetta getur verið freist­andi fyrir sjúk­linga að nýta sér óhefð­bundnar lækn­ingar þegar sölu­menn þeirra lofa skjótum bata án allra auka­verk­ana.

Nýbirt rann­sókn færir enn frek­ari rök gegn því að krabba­meins­sjúk­lingar snúi sér frá hefð­bundnum lækn­ingum. Samkvæmt nið­ur­stöð­unum eru sjúk­lingar sem gera það 2,5 sinnum lík­legri til að láta lífið af völdum krabba­meins­ins innan fimm ára en þeir sem nýta sér sann­reyndar með­ferðir.

Rann­sóknin var unnin af rann­sókn­ar­hópi við Yale háskóla. Í henni tóku vís­inda­menn saman gögn úr krabba­meins­gagna­grunni í Banda­ríkj­unum (National Cancer Database) sem inni­heldur um 34 milljón sjúkra­skrár ein­stak­linga þar í landi sem fengið hafa krabba­mein.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn fylgdi eftir 840 ein­stak­lingum sem allir voru greindir með krabba­mein árið 2004. Þar af kusu 280 að nýta sér óhefð­bundnar lækn­ingar í stað hefð­bund­inna en 560 kusu hefð­bundnar lækn­ingar.

Eftir fimm ár voru 78,3% þeirra sem nýttu sér hefð­bundnar lækn­ingar enn á lífi en aðeins 54,7% þeirra sem nýttu sér óhefð­bundnar lækn­ingar. Ekki var skoðað hvaða óhefð­bundnu lækn­ingar sjúk­ling­arnir nýttu sér.

Fjórar gerðir krabba­meins voru skoð­aðar og voru lífslík­urnar mis­mun­andi eftir því hvaða gerð krabba­meins ein­stak­ling­arnir voru með. Þeir sem voru greindir með ristil­krabba­mein voru fjórum sinnum lík­legri til að láta lífið innan fimm ára ef þeir nýttu sér aðeins óhefð­bundnar lækn­ingar. Þeir sem greindust með lungna­krabba­mein voru aftur á móti tvisvar sinnum lík­legri til að láta lífið á innan við fimm árum og konur sem greindust með brjóstakrabba­mein voru fimm sinnum lík­legri til að deyja af völdum sjúk­dóms­ins innan fimm ára.

Ekki var mark­tækur munum hjá karl­mönnum með krabba­mein í blöðru­háls­kirtli. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn bendir á að það megi skýra með því að blöðru­háls­kirtil­skrabba­mein er sjúk­dómur sem almennt þró­ast hægt og fimm ár sé því ekki nægur tími til að munur komi í ljós.

Nið­ur­stöð­urnar styðja það sem áður hefur verið vitað, það er að krabba­meins­sjúk­lingar eiga bestar lífslíkur ef sann­reyndar með­ferðir eru nýttar til að berj­ast gegn sjúk­dómnum.

Greinin birt­ist í tíma­rit­inu Journal of the National Cancer Institute.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár