Flytjum inn nær þriðjungi meira af sjónvarpstækjum en fyrir ári síðan

Inn­flutn­ingur á sjón­varps­tækjum hefur auk­ist um nær þriðj­ung á einu ári. Neysla ferða­manna hér á landi virð­ist hins vegar fara lækk­andi með fram hærra verð­lagi frá þeirra sjón­ar­horni.

Stefán Broddi Guðjónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion
Stefán Broddi Guð­jóns­son, for­stöðu­maður grein­ing­ar­deildar Arion Mynd: Arion banki

Vöru-og þjón­ustu­inn­flutn­ingur Íslend­inga hefur auk­ist mikið und­an­farin miss­eri, sér í lagi hefur inn­flutn­ingur á sjón­varps­tækjum auk­ist um nær þriðj­ung á einu ári. Á sama tíma má greina breytt neyslu­mynstur ferða­manna, en korta­velta hvers erlends ferða­manns hefur dreg­ist saman um 20% á síð­ustu fimm árum. Þetta kemur fram í nýbirtri grein­ingu Arion banka á utan­rík­is­við­skipti Íslands.

[links]Ef miðað er við geng­is­vísi­tölu, verð­lag í krónum og neyslu­mynstur ferða­manna má ætla að hjá ferða­mönnum hefur verð­lag inn­lendrar þjón­ustu hækkað um allt að 81% frá maí 2012 til maí 2017. Samhliða þess­ari verð­hækkun má greina um það bil 20% sam­drátt í korta­verslun þeirra fyrir sama tíma­bil í mörgum versl­un­ar­geirum, fyrir utan dag­vöru­verslun. 

Í grein­ing­unni segir að sterkar vís­bend­ingar séu um að hver ferða­maður dvelji skemur og ferð­ist minna inn­an­lands. Fleiri ferða­menn komu til lands­ins með árunum síðan 2012, en nýt­ing hót­el­her­bergja á Suð­vest­ur­horn­inu jókst mun meira en á stöðum fjarri Höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Frá febr­úar 2016 fækk­aði gistin­óttum hvers ferða­manns úr 2,5 niður í 1,5 í apríl síð­ast­lið­inn.

Mikill kraftur hefur verið í inn­flutn­ingi á vöru og þjón­ustu í kjöl­far kaup­mátt­ar­aukn­ingar Íslend­inga. Sem dæmi hefur inn­flutn­ingur á sjón­varps­tækjum auk­ist um nær þriðj­ung á einu ári og hlut­fall lands­manna sem fara mán­að­ar­lega til útlanda hefur tvö­fald­ast á síð­ustu fimm árum. Einnig hefur vöru­inn­flutn­ingur atvinnu­lífs­ins auk­ist umtals­vert, en vöxtur í inn­flutn­ingi bygg­ing­ar­vara gefur góðar vís­bend­ingar um að ráð­ist verði í mikla upp­bygg­ingu í náinni fram­tíð.

Samhliða auknum inn­flutn­ingi hefur vöru­út­flutn­ingur minnkað miðað við sama tíma­bil í fyrra, en báðir þættir hafa nei­kvæð áhrif á við­skipta­jöfnuð við útlönd. Grein­ing­ar­deildin telur hins vegar vöru­út­flutn­ing­inn muni taka við sér þegar áhrif sjó­manna­verk­falls­ins fjara út með árinu.

Sögulega hefur við­skipta­jöfn­uður fylgt raun­geng­inu, en með vexti ferða­þjón­ust­unnar hefur mynd­ast gjá þar á milli. Fjallað er um þetta í grein­ing­unni, en talið er að útflutn­ingur og hag­kerfið í heild muni ekki ráða við núver­andi raun­gengi þegar horft er til lengri tíma. Hins vegar telur hún að raun­gengið muni halda áfram að styrkj­ast á næstu þremur árum en að hægja fari á vext­inum, eins og sést á mynd hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hagtölur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár