Vöxtur kortaveltu ferðamanna í lágmarki

Velta á erlendum greiðslu­kortum jókst um 7,1% í maí síð­ast­liðnum sam­an­borið við sama mánuð í fyrra. Er þetta minnsta aukn­ing milli ára síðan 2012.

Hver ferðamaður virðist eyða minna á Íslandi.
Hver ferða­maður virð­ist eyða minna á Íslandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Erlend greiðslu­korta­velta jókst um 7,1% á síð­ustu 12 mán­uðum í maí sam­kvæmt Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar á Bifröst, en aukn­ingin hefur ekki verið minni milli ára frá því að Rann­sókn­ar­setrið hóf mæl­ingar árið 2012.

Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar birti korta­veltu erlendra greiðslu­korta fyrir maí­mánuð fyrr í dag, en hún nam 21,3 millj­örðum króna sam­an­borið við 19,9 millj­arða í maí í fyrra. Veltan hefur því auk­ist um 7,1%, en til sam­an­burðar jókst veltan í apríl um 27,7% miðað við apríl í fyrra.

Mestur var sam­drátt­ur­inn í korta­veltu gjafa- og minja­gripa­versl­unar, en hann var um 18,9% milli ára. Mesta aukn­ingin var hins vegar í korta­veltu far­þega­flutn­inga, en hún jókst um 22,7% milli ára. Langstærsti lið­ur­inn innan þess flokks er far­þega­flug, en hluti erlendrar starf­semi inn­lendra flug­fé­laga er með­tal­inn í reikn­ing­unum.

[adspot]Líklegt er að veikur vöxtur erlendrar korta­veltu megi að nokkru leyti skýr­ast af styrk­ingu íslensku krón­unnar, en gengi hennar hækk­aði um 23% í maí síð­ast­liðnum miðað við maí í fyrra. Mest er styrk­ing krón­unnar gagn­vart pund­inu, en breskir ferða­menn hafa þurft að taka á sig mikla verð­hækkun í kjöl­far 35% geng­is­hækk­unar.

Ljóst er að neyslu­mynstur ferða­manna hefur breyst og er það að öllum lík­indum vegna sterkara gengis. Til að mynda jókst fjöldi ferða­manna í apríl síð­ast­liðnum um 62% en korta­velta þeirra jókst aðeins um 27,7% fyrir sama tíma­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár