Næstlægstu ársfjórðungstölur frá hruni

Við­skipta­af­gangur vöru og þjón­ustu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017 mælist um 8 millj­arða, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unnar, sem eru næst­lægstu árs­fjórð­ungs­tölur frá hruni.

Aukið vægi ferðaþjónustu ýtir undir árstíðarbundnum sveiflum í vöru-og þjónustujöfnuði.
Aukið vægi ferða­þjón­ustu ýtir undir árs­tíð­ar­bundnum sveiflum í vöru-og þjón­ustu­jöfn­uði. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vöru-og þjón­ustu­jöfn­uður mælist jákvæður um tæpa 8 millj­arða á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unnar. Eru þetta næst­lægstu árs­fjórð­ungs­tölur sem mælst hafa frá hruni, en við­skipta­af­gangur var aðeins lægri á fyrsta árs­fjórð­ungi 2016.

Afgangur mælist af vöru-og þjón­ustu­jöfn­uði þegar meira er flutt út af vöru og þjón­ustu en flutt er inn. Munur á þróun þjón­ustu­við­skipta og vöru­við­skipta er greini­legur, en nettó-útflutn­ingur á þjón­ustu hefur vaxið gríð­ar­lega á síð­ustu árum á meðan halli á vöru­við­skiptum hefur auk­ist umtals­vert. Hækkun þjón­ustu­út­flutn­ings er að mestu leyti vegna vaxtar í ferða­þjón­ustu en auk­inn vöru­skipta­halla má lík­lega rekja til minnk­andi afla­verð­mæta í sjáv­ar­út­vegi og stöðn­unar í álút­flutn­ingi í kjöl­far sterkara gengis.

Ef gengi þjón­ustu­jöfn­uðar er skoðað á mynd 1 sést að árs­tíða­bundnar sveiflur í þjón­ustu­jöfn­uði hafa magn­ast sam­hliða auknu vægi ferða­þjón­ustu í útflutn­ingi. Á sama tíma hefur raun­gengi íslensku krón­unnar styrkst umtals­vert, en svo virð­ist sem styrk­ingin hafi enn lítil áhrif á fjölda ferða­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

útflutningur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár