Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 18 prósent milli ára

Helstu útflutn­ings­lönd voru Bretland og Frakk­land. Þar á eftir koma Spánn, Noregur og Banda­ríkin.

Útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða var 239,8 millj­arðar króna árið 2018 sem er 17,8 pró­sentum meira en árið áður. Í tonnum talið var einnig aukn­ing þar sem flutt voru út rúm­lega 670 þús­und tonn af sjáv­ar­af­urðum sem er 61 þús­und tonni meira en árið áður. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar.

Af útflutn­ings­verð­mæt­inu voru 42,7 pró­sent frystar sjáv­ar­af­urðir, mjöl og lýsi 27 pró­sent og ísaðar afurðir 13,8 pró­sent. Af ein­stökum teg­undum var verð­mæti ísaðra þorskaf­urða mest, það er 39,4 millj­arðar króna. Frystur þorskur kemur þar á eftir að verð­mæti 35,3 millj­arðar króna.

Mest flutt út til Bretlands

Af þeim löndum sem mest útflutn­ings­verð­mæti feng­ust fyrir stendur Bretland hæst í 15,3 pró­sentum af heild­ar­út­flutn­ings­verð­mæti og kemur Frakk­land þar á eftir í 11,3 pró­sentum. Spánn, Noregur og Banda­ríkin koma þar á eftir með undir 10 pró­sentum hvert sem er svipað hlut­fall og árið 2017, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni kemur fram að verð­mæti útflutn­ings­fram­leiðslu sjáv­ar­af­urða, sem er sam­tala útflutn­ings og birgða­breyt­inga sjáv­ar­af­urða, hafi verið tæp­lega 240 millj­arðar árið 2018 sem er 22 pró­senta aukn­ing frá fyrra ári. Sé miðað við fast verð­lag árið 2017 jókst útflutn­ings­verð­mætið um 24 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár