Sterkt gengi farið að kæla ferðaþjónustuna

Þrátt fyrir mik­inn vöxt í ferða­þjón­ust­unni þá eru ferða­menn farnir að eyða minnu. Bretar, sem lengi vel voru mik­il­væg­asti hópur ferða­manna, koma nú síður til lands­ins.

Þrátt fyrir mik­inn vöxt í komu ferða­manna það sem af er þá benda nýj­ustu tölur til þess að umtals­verðar breyt­ingar séu að verða á ferða- og neyslu­venjum ferða­manna hingað til lands, frá því sem hefur verið und­an­farin ár. Margt bendir einnig til þess að tölu­verð styrk­ing krón­unnar und­an­farin miss­eri, gagn­vart helstu við­skipta­myntum, sé farin að hafa mikil áhrif á ferða­þjón­ust­una.

Kaldari maí

Í maí var vöxt­ur­inn í korta­veltu 7,1 pró­sent, miðað við sama mánuð í fyrra, en á fyrstu mán­uðum árs­ins var vöxt­ur­inn á bil­inu 25 til 49 pró­sent, miðað við árið á undan.

Í umfjöllun Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar segir að fast­lega megi búast við því að ástæða minni korta­veltu megi rekja til sterk­ari gengis krón­unnar.

Í maí var sam­dráttur í nokkrum flokkum erlendrar korta­veltu. Í verslun dróst greiðslu­korta­velta versl­unar saman um 4,7% frá fyrra ári, úr 2,3 millj­örðum króna í maí 2016 í 2,2 millj­arða króna í maí á þessu ári. Korta­velta í gjafa- og minja­gripa­verslun dróst saman um 18,9%, fata­verslun dróst saman um 5,9%, toll­frjáls verslun um 7,4% og önnur verslun um 10,9%, að því er fram kemur í umfjöllun Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar.

Bretar koma síður

Nýjustu tölur Ferða­mála­stofu sýna að ferða­þjón­ustan er orðin veru­lega háð ferða­mönnum frá Banda­ríkj­unum, en af um 146 þús­und ferða­mönnum sem komu til lands­ins í maí voru 43 þús­und frá Banda­ríkj­unum. Næsta land þar á eftir er Bretland, en þaðan komu 11.400 ferða­menn í maí, sem er 28 pró­sent minnkun frá því árið á undan. Bretland var lengi vel stærsta ein­staka landið í komum ferða­manna til lands­ins, en í maí komu næstum fjór­falt fleiri frá Banda­ríkj­unum.

Mikil breyt­ing hefur orðið á gengi krón­unnar gagn­vart pund­inu á und­an­förnu ári og má segja að lang­sam­lega áhrifa­mesti atburð­ur­inn í þeirri þróun hafi verið Brexit-kosn­ingin í fyrra sumar, en frá þeim tíma hefur pundið veikst umtals­vert. Það kostar nú tæp­lega 130 krónur en skömmu fyrir kosn­ing­una kost­aði það 206 krónur. Þessi mikla verð­hækkun, í huga ferða­manna, hefur eðli­lega dregið úr eft­ir­spurn, en erfitt er að segja til um hvort þessi þróun er komin til að vera.

Hvað gerist á háannatímanum?

Þrátt fyrir allt, þá hefur fjölg­unin verið mikil á þessu ári, miðað við metárið í fyrra. Samtals hafa 752 þús­und erlendir ferða­menn heim­sótt landið, en það er meira en allt árið 2011, svo dæmi sé tekið. Í fyrra komu 1,8 millj­ónir ferða­manna til lands­ins en spár grein­enda hafa flestar gert ráð fyrir að þeir verði 2,3 millj­ónir á þessu ári.

Það er frekar á lands­byggð­inni sem fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu hafa fundið fyrir sam­drætti en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en svo virð­ist sem ferða­menn séu að ferð­ast minna um landið nú en áður. Háanna­tím­inn er þó framundan, í júlí og ágúst, og sést oft eftir þann tíma hvernig staða mála verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár