(Ó)hollusta kókosolíu

Þær upp­lýs­ingar sem dynja á Íslend­ingum, og allri heims­byggð­inni, um ágæti kókosolíu byggja fyrst og síð­ast á löngun fram­leið­enda til að selja vör­una sína, ekki raun­veru­leik­anum.

Fyrir ekki svo löngu síðan var sú mann­eskja vand­fundin á Íslandi sem hafði reynslu af kókosolíu en í dag hafa senni­lega allir smakkað hana og fjöl­margir skipt út annarri olíu fyrir kókosol­í­una. Ástæðan er sú að þrátt fyrir það að vera á föstu formi við her­berg­is­hita er kókosol­ían talin mjög holl olía.

Olíur eru sam­settar úr margs­konar fitu­sýrum. Sumar þeirra eru mjög hollar og jafn­vel lífs­nauð­syn­legar meðan aðrar fitu­sýrur eru minna hollar og jafn­vel skað­legar. Þær síð­ar­nefndu geyma t.d. fitur sem eru sagðar mett­aðar. Mettaðar fitur eru erf­ið­ari nið­ur­brots fyrir lík­ama okkar og geta þær valdið hækkun á slæmu kól­ester­óli í blóði. Þetta gildir ekki um ómett­aðar og þá sér­stak­lega fjöló­mett­aðar fitur.

Góð leið til að meta hvaða olíur inni­halda mikið af mett­uðum fitum er að skoða hvernig olían er við her­berg­is­hita. Þum­al­putta­reglan er sú að olíur/fitur sem eru á föstu formi við her­berg­is­hita inni­halda svo mikið af mett­uðum fitu­sýrum að þær telj­ast óhollar. Svo virð­ist sem þessi þum­al­putta­regla gildi líka um hina margróm­uðu kókosolíu, þrátt fyrir allt.

Í rann­sókn sem American Heart Association byggir nýj­ustu ráð­legg­ingar sínar á, kemur fram að magn ómett­aðra fitu­sýra í kókosolíu er um 82%, það er jafn­vel hærra en í smjör sem mæld­ist 63%. Til sam­an­burðar má nefna að ólífu­olía, sem er mjög holl, inni­heldur 14%.

Fyrir flesta heil­brigða ein­stak­linga hefur þetta háa hlut­fall mett­aðra fitu ekki telj­andi áhrif, þ.e. ef hennar er neytt í hæfi­legu magni. Hins vegar ef ein­stak­lingur hefur mælst með of hátt kól­esteról í blóði getur inn­taka á kókosolíu haft nei­kvæð áhrif á þróun þess ástands. Hátt kól­esteról getur leitt til æða­þrengsla, því fitan getur sest til inní æðunum, sem svo getur leitt til stíflu og jafn­vel hjarta­á­falls.

En hvers vegna dynja á okkur upp­lýs­ingar um ágæti kókosol­í­unnar? Svarið er ein­falt: frá­bær mark­aðs­setn­ing! Það getur verið erfitt að skilja úr hvaða skila­boð úr umhverf­inu eru byggð á raun­veru­leik­anum og hvað er byggt á löngun fram­leið­enda til að selja vör­una sína. Því miður virð­ist það síð­ar­nefnda hafa ráðið för þegar kemur að full­yrð­ingum um kókosolíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár