Kannabis sem lyf við flogaveiki

Rannsókn sýnir að flogum hjá floga­veikum sem neyttu kanna­bis í með­ferð­ar­skyni fækk­aði um helm­ing. Fimm pró­sent þeirra sem not­uðu efnið upp­lifðu engin flog eftir að hafa byrjað á lyfj­unum.

Kannabis hefur lengi verið bit­bein í sam­fé­lag­inu, ekki bara íslensku sam­fé­lagi heldur um allan heim, þar sem margir halda því fram að efnið sé hægt að nota sem lyf við ákveðnum sjúk­dómum. Þrátt fyrir mögu­leika kanna­bis til lækn­inga er erfitt að líta fram hjá þeirri stað­reynd að kanna­bis hefur lengi vel og er enn notað sem vímu­gjafi, sem þýðir að efnið veldur eitr­un­ar­á­hrifum í lík­am­anum.

Rann­sóknir á þessu sviði hafa því oft reynst tor­veldar, raunar ein­ungis á þeim for­sendum að efnið er umdeilt. Með tím­anum hafa vís­inda­hópar þó fengið aukið braut­ar­gengi til að skoða hvort og þá hvernig kanna­bis getur haft áhrif. Ein slík rann­sókn var birt í The New England Journal of Medicine í maí, síð­ast­liðnum.

Í rann­sókn­inni voru 120 sjálf­boða­liðar á aldr­inum 2-18 ára fengnir til að prófa cannabidiol, eitt af inni­halds­efnum kanna­bis, sem með­ferð við floga­veiki. Hópnum var skipt til­vilj­ana­kennt í tvennt, ann­ars vegar lyf­leysu­hóp og hins var hóp sem fékk cannabidiol. Hvorki rann­sak­endur né þátt­tak­endur vissu á meðan á rann­sókn­inni stóð hvaða ein­stak­lingar til­heyrðu hvaða hóp.

Eftir 14 vikna með­ferð hafði flogum í með­ferð­ar­hópnum fækkað, að með­al­tali, um helm­ing, úr 12,4 í 5,9 flog á mán­uði. Slíka minnkun var þó ekki að sjá í sam­an­burð­ar­hópnum, þar sem flog­unum fækk­aði úr 14,9 í 14,1 flog á mán­uði. Fimm pró­sent þeirra þátt­tak­enda sem fengu cannabidiol upp­lifðu engin flog eftir að hafa byrjað á lyfj­unum, slík til­felli voru ekki til staðar í lyf­leysu­hópnum.

Þrátt fyrir þessar jákvæðu nið­ur­stöður verður ekki hjá því kom­ist að nefna miður leið­in­legar auka­verk­anir sem lyfin höfðu. Margir í með­ferð­ar­hópnum upp­lifðu ógleði, svima, þreytu og nið­ur­gangur, sumir fengu svo alvar­legar auka­verk­anir að þau urðu að draga sig út úr rann­sókn­inni. Tíðni auka­verkan­anna og alvar­leiki þeirra í sumum til­fellum sýnir að frek­ari rann­sókna er þörf til að skil­greina skammta­stærðir og sam­verk­andi þætti við önnur lyf.

Í dag er kanna­bis ekki flokkað sem lyf, þó að sums staðar sé það leyft til slíkra nota, þá er fram­leiðslan á því ekki undir sama eft­ir­liti og önnur lyfja­fram­leiðsla. Það þýðir að þeir sem nota kanna­bis sem lyf geta ekki vitað með vissu undir hvaða kring­um­stæðum það er fram­leitt, hver skammta­stærðin af virka efn­inu er og svo fram­vegis.

Frekari rann­sóknir þurfa því að fara fram til að skil­greina nákvæm­lega hvaða virku efni það eru í kanna­bis sem virka gegn hvaða sjúk­dómum. Í fram­haldi af því er svo von­andi hægt að setja fram­leiðslu á þeim efnum undir sama hatt og aðra lyfja­fram­leiðslu þar sem gæða­stýr­ingin gerir það að verkum að neyt­and­inn tekur litla sem enga áhættu þegar lyfj­anna er neytt.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár