Pillan dregur úr lífsgæðum

Ný rann­sókn, með stórt úrtak, sýndi að þátt­tak­endur sem not­uðu getn­að­ar­varn­arpillu mátu lífs­gæði sín mark­tækt lægri en þátt­tak­endur sem fengu lyf­leysu.

Getn­að­ar­varn­arpillan hefur löngum valdið vís­inda­mönnum, konum og mögu­lega fleirum höf­uð­verk. Nota­gildi hennar er ótví­rætt, en það var mikil bylt­ing þegar getn­að­ar­vörn sem þessi kom á markað. Í dag eru pillur sem inni­halda tvö hormón, sam­sett pilla, algeng­asta getn­að­ar­vörnin sem notuð er í vest­rænum ríkjum. Þrátt fyrir mikla notkun eru rann­sóknir sem sýna áhrif lyfj­anna á heilsu kvenna ekki á eitt sáttar um áhrifin.

Margar rann­sóknir hafa bent til þess að notkun horm­ón­anna auki líkur á þung­lyndi, aðrar sýna fram á auknar líkur krabba­meina, meðan enn aðrar rann­sóknir sýna engin tengsl á notkun horm­ónapill­unnar við nokkur veik­indi. Til að skera úr um slík tengsl er best að not­ast við stórt úrtak, þar sem bæði er not­ast við horm­ónapillu og lyf­leysu til sam­an­burðar.

Á dög­unum var ein slík rann­sókn birt í vís­inda­rit­inu Fer­tility and Ster­ility. En hún var fram­kvæmd við Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi. Í rann­sókn­inni fá 340 konur ann­ars vegar lyf­leysu og hins vegar sam­setta horm­ónapillu, með horm­ón­unum ethiny­lestradiol og levonor­gest­rel.

Rann­sóknin var tví­blind svo hvorki þátt­tak­endur né rann­sak­endur vissu hvort um horm­ónapillu eða lyf­leysu var að ræða. Þátt­tak­endur voru svo eftir þriggja mán­aða með­ferð látin meta ýmsa þætti svo sem and­lega og lík­am­lega líðan. Í ljós kom að þær konur sem fengu horm­ónapillu mátu lífs­gæði sín mark­tækt lægri eftir þriggja mán­aða með­ferð, m.v. þátt­tak­endur sem fengu lyf­leysu.

Lífs­gæða­skerð­ing­inn birt­ist helst í skap­sveiflum eða orku­leysi yfir dag­inn. Þrátt fyrir þetta voru þær konur sem fengu hormón ekki lík­legri til að þjást af þung­lyndi, sam­an­borið við þær sem fengu lyf­leysu.

Lífs­gæða­skerð­ing­inn var mjög mis­jöfn meðal kvenn­anna en sumar upp­lifðu svo mikil óþæg­indi að getn­að­ar­vörn sem þessi á ekki við, þrátt fyrir að hafa ekki bein áhrif á heilsu. Það er því mik­il­vægt að hafa slíkt í huga þegar konur prófa nýjar getn­að­ar­varnir í sam­ráði við sinn lækni.

Höfundar rann­sókn­ar­innar benda á að þessi áhrif horm­ón­anna geta leitt til stop­ulla notk­unar og þar með leitt til þess að getn­að­ar­varnir eru ekki not­aðar sem skyldi. Rétt er að taka fram að í þess­ari rann­sókn var not­ast við eina teg­und af sam­settri pillu, fleiri sam­settar pillur eru til sem mögu­lega hafa ekki sömu áhrif.

Fréttin birt­ist upp­haf­lega á Hvatinn.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár