Innlögnum vegna lyfseðilsskyldra lyfja fækkar samhliða lögleiðingu kannabisefna

Dán­ar­tíðni vegna verkja­lyfja úr flokki ópíóða hefur fjór­fald­ast í Banda­ríkj­unum á 20 árum. Þar sem kanna­bis er lög­legt fækkar inn­lögnum vegna mis­notk­unar slíkra efna.

Kannabisplanta.
Kanna­bis­planta.

Í grein sem birt­ist nýverið í tíma­rit­inu Drug and Alcohol Dependence kemur fram að í þeim fylkjum Banda­ríkj­anna þar sem kanna­bis­efni hafa verið lög­leidd fækkar sjúkra­húsinn­lögnum vegna mis­notk­unar á lyf­seð­ils­skyldum verkja­lyfjum. Lög­leið­ingin virð­ist aftur á móti ekki auka inn­lagnir vegna notk­unar kanna­bis­efna.

Notkun lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja úr flokkið ópíóíða er mikið vanda­mál víða um heim og hefur dán­ar­tíðni vegna notk­unar þeirra í það minnsta fjór­fald­ast í Banda­ríkj­unum á síð­ustu tutt­ugu árum.

Afar skiptar skoð­anir eru á lög­mæti þess að lög­leiða kanna­bis efni en víða í Banda­ríkj­unum hafa þau verið lög­leidd til notk­unar í lækn­is­fræði­legum til­gangi, til dæmis til að bæta líða þeirra sem þjást af krabba­meini. Rann­sóknir á notk­una kanna­bis­efna hafa sýnt að þrátt fyrir það að kanna­bis efni séu síður en svo skað­laus þeim sem þau nota að stað­aldri eða hefja notkun efn­anna snemma á lífs­leið­inni eru áhrifin minni­háttar hjá þeim sem nota kanna­bis­efni stöku sinnum.

Í úrvinnslu rann­sókn­ar­innar voru gögn um útskriftir frá spít­ölum á árunum 1997 til 2014 skoðuð í 27 fylkjum Banda­ríkj­anna. Þegar útskriftir vegna ópíóða fíknar, mis­notk­unar eða ofskömmt­unar voru skoðuð sér­stak­lega kom í ljós að í þeim fylkjum þar sem notkun kanna­bis­efna hafði verið lög­leidd í lækn­inga­skyni féll tíðni inn­lagna vegna mis­notk­unar ópíóíða um 23% og ofskömmt­unar um 11%.

Í öllum fylkjum fjölg­aði inn­lögnum tengdum notkun á bæði kanna­bis­efnum og lyf­seð­ils­skyldum verkja­lyfjum um 300% á tíma­bil­inu. Engar vís­bend­ingar fund­ust um að lög­leið­ing kanna­bis­efna leiddi til fjölg­unar á inn­lögnum vegna notk­unar efn­anna.

Höfundur grein­ar­innar, Yuyan Shi, bendir á að ekki sé hægt að full­yrða að lög­leið­ingin kanna­bis­efna sé í raun það sem er að valda fækkun inn­lagna vegna notk­unar lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja. Þó séu sterkar vís­bend­ingar um að það sé hlið­ar­verkun lög­leið­ing­ar­innar. Shi mælir ekki með því að lög­leið­ing kanna­bis­efna sé notuð í þeim til­gangi að draga úr notkun lyf­seð­ils­skyldra verkja­lyfja að svo stöddu en bendir á mik­il­vægi þess að rann­saka tengslin þar á milli frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár