Fæðingarorlof verður hækkað í 600 þúsund á mánuði… í skrefum

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er kynnt hvernig hún ætlar að hækka fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur á næstu árum. Hámarks­mán­að­ar­greiðslur verða hækk­aðar í þremur skrefum en það verður hins vegar ekki lengt líkt og starfs­hópur hafði mælt með.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2018-2022, sem birt var í dag, kemur fram að gert sé ráð fyrir að hámarks­greiðslur til for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi verði hækk­aðar í byrjun árs 2018. Miðað er við að hækka greiðsl­urnar í þremur áföngum á tíma­bil­inu þannig að í lok þess hækk­un­ar­fer­ils verði þær 600 þús­und krónur á mán­uði að hámarki. Samhliða á að gera breyt­ingar á tekju­við­miðum með það að mark­miði að færa greiðsl­urnar nær því sem þær voru árið 2009.

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, ætl­aði að leggja fram frum­varp um hækkun á fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslum á þessu þingi. Á síð­ustu dögum var þó ákveðið að fresta fram­lagn­ingu þess. Þor­steinn hefur ítrekað sagt að það sé for­gangs­mál að hækka greiðsl­urnar, en ekki að lengja orlofið. Þær upp­lýs­ingar sem settar eru fram í fjár­mála­á­ætl­un­inni eru í takt við það.

Í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar kemur þó fram að vinna þurfi mark­visst að því að tryggja börnum leik­skóla- eða dag­vist þegar fæð­ing­ar­or­lofi sleppir, með sam­eig­in­legu átaki ríkis og sveit­ar­fé­laga. Ekki kemur fram með hvaða hætti þetta á að gera, né hvort stjórn­völd vilji þá að slík vistun yrði í boði frá níu mán­aða aldri. Ekkert um þetta er sýni­legt í fjár­mála­á­ætl­un­inni.

[links]

Tilkynnt var um það í gær að stýri­hópur á vegum Reykja­vík­ur­borgar, sem ber nafnið „Brúum bilið“, hafi lagt fram til­lögu sem hefur verið sam­þykkt um að fjölga leik­skóla­plássum í borg­inni um 300 í haust. Þar af verða 200 pláss hjá einka­reknum skólum. Með þessu er von­ast til þess að hægt sé að bjóða öllum 18 mán­aða börnum og eldri leik­skóla­pláss. Eftir stendur að fæð­ing­ar­or­lof er ein­ungs níu mán­uðir sam­an­lagt fyrir báða for­eldra og því níu mán­aða bil sem verður að brúa með ann­ars konar dag­vistun, á borð við dag­for­eldra.

Ákveðið að hækka með reglugerð

Fæðingum hefur fækkað veru­lega á Íslandi und­an­farin ár. Til þess að við­halda mann­fjölda til langs tíma þarf hver kona að fæða 2,1 barn, en hlut­fallið hér á landi er farið niður fyrir 1,8 börn á hverja konu. Samkvæmt bráða­birgða­tölum frá heil­brigð­is­stofn­unum fædd­ust 3.877 börn í fyrra hér á landi, en árið 2015 voru þau 4.098 og 4.292 árið 2014.

[adspot]

Eygló Harð­ar­dóttir, þáver­andi félags­mála­ráð­herra, ákvað með reglu­gerð í októ­ber í fyrra að hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi yrðu hækk­aðar í 500 þús­und krónur. Þetta var gert eftir að ljóst var að hún myndi ekki ná í gegn frum­varpi til breyt­inga á lögum um fæð­ing­ar­or­lof, sem byggði á til­lögum starfs­hóps­ins sem hún skip­aði árið 2014 til að móta fram­tíð­ar­stefnu stjórn­valda í þessum mál­um. Sam­kvæmt því frum­varpi átti að hækka hámarks­greiðslur í 600 þús­und krón­ur, auk þess sem lengja átti fæð­ing­ar­or­lofið í áföng­um í eitt ár. Ákvörðun Eyglóar var umdeild, ekki síst meðal nýbak­aðra for­eldra sem eign­uð­ust börn rétt áður en breyt­ing­arnar tóku gildi þann 15. októ­ber.

Starfs­hóp­ur­inn sem Eygló skip­aði lagði enn­fremur til að fyrstu 300 þús­und krón­urnar af tekjum þeirra sem fara í fæð­ing­ar­or­lof yrðu óskertar. Þannig myndu lægst laun­uðu for­eldr­arnir halda 100 pró­sent af tekjum sínum, en ekki fá 80 pró­sent eins og nú er.

Kerfið stórlaskað eftir hrunið

Í byrjun árs 2008 voru hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði 535.700 krón­ur. Ef þær greiðslur hefðu fylgt vísi­tölu neyslu­verðs – sem mælir verð­bólgu – þá væru hámarks­greiðslur úr sjóðnum í jan­úar 2017 828.160 krón­ur. Svo er hins vegar ekki.

Strax í byrjun árs 2009 voru hámarks­greiðsl­urnar skertar í 400 þús­und krónur og svo lækk­aðar niður í 350 þús­und krónur sum­arið 2009, eftir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við völd­um. Í byrjun árs 2010 voru hámarks­greiðsl­urnar enn lækk­aðar og nú niður í 300 þús­und krón­ur. Þær voru hækk­aðar upp í 350 þús­und krónur á loka­metrum vinstri­st­jórn­ar­innar og svo upp í 370 þús­und krónur í byrjun árs 2014, eftir að ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við völd­um. Undir lok kjör­tíma­bils­ins voru greiðsl­urnar hækk­aðar í 500 þús­und, en greiðsl­urnar hafa ekki fylgt hækk­unum á vísi­tölu neyslu­verðs.

Þessar skerð­ingar eru taldar ein meg­in­á­stæða þess að fæð­ing­ar­or­lof­staka feðra hefur minnkað veru­lega á árunum eftir hrun. Þegar þakið var hæst árið 2008 voru umsóknir feðra um fæð­ing­ar­or­lof 90 pró­sent af umsóknum mæðra. Árið 2014 var þetta hlut­fall komið niður í 80 pró­sent. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof og þeir sem taka fæð­ing­ar­or­lof gera það í mun færri daga en þegar mest var. Árið 2008 var með­al­daga­fjöld­inn í fæð­ing­ar­or­lofi feðra 103 dag­ar, en árið 2015 var með­al­daga­fjöld­inn kom­inn niður í 74 daga.

Kostnaðurinn aukist gríðarlega

Kjarninn greindi einnig frá því í sept­em­ber í fyrra að á sama tíma og hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði höfðu dreg­ist saman um rúm­lega 30 pró­sent hækk­uðu bæði laun og útgjöld heim­ila um tugi pró­senta. Kostn­aður vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og lyfja hafði hækkað um 47,7 pró­sent, föt og skór hækk­uðu um 56,6 pró­sent og mat­ar- og drykkja­rvörur um 68,7 pró­sent. Þá hafði hús­næð­is­verð hækkað um 20,4 pró­sent og húsa­leiga um heil 84,5 pró­sent. Þetta kom fram í tölum sem BSRB og ASÍ tóku saman ann­ars vegar um þróun hámarks­greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði frá árinu 2008 og hins vegar um hlut­falls­lega hækkun launa og útgjalda heim­il­is­ins frá árinu 2008.

Nið­ur­staðan var skýr. Greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafa lækkað mikið en allir kostn­að­ar­liðir hækk­uðu veru­lega. Afleið­ingin er sú að færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof, fæð­ing­ar­tíðnin hefur dreg­ist skarpt saman og sá hópur sem á erf­ið­ara með að láta enda ná saman eftir barns­burð hefur vaxið mjög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár