Fæðingarorlof væri allt að 820 þúsund ef ekki hefði verið skorið niður

Miklu færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof en áður og í styttri tíma. Ástæðan er m.a. miklar skerð­ingar á hámarks­greiðslum.

Hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði væru tæp­lega 820 þús­und krónur í dag ef ekki hefði verið ákveðið að skerða þær veru­lega eftir hrun, og þær hefðu fylgt verð­lags­þróun. Þess í stað nema greiðsl­urnar nú 370 þús­und krónum á mán­uði að hámarki.

Flestir sem að fæð­ing­ar­or­lofs­málum koma eru sam­mála um að þessi skerð­ing hafi haft mikil áhrif, ekki síst á töku feðra á fæð­ing­ar­or­lofi. Þegar þakið var hæst árið 2008 voru umsóknir feðra um fæð­ing­ar­or­lof 90% af umsóknum mæðra. Árið 2014 var þetta hlut­fall komið niður í 80%. Færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof og þeir sem taka fæð­ing­ar­or­lof gera það í mun færri daga en þegar mest var. Árið 2008 var með­al­daga­fjöld­inn í fæð­ing­ar­or­lofi feðra 103 dagar, en sam­kvæmt bráða­birgða­tölum fyrir 2015 var með­al­daga­fjöld­inn kom­inn niður í 74 daga.

Greiðsl­urnar eiga að hækka aftur, upp í 600 þús­und krónur sam­kvæmt til­lögum starfs­hóps um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum, sem skil­aði af sér til­lögum til Eyglóar Harð­ar­dóttur félags­mála­ráð­herra fyrir helgi. Hópurinn leggur einnig til að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar, en 80% af tekjum umfram það, og að hámarks­greiðsl­urnar breyt­ist í sam­ræmi við launa­vísi­tölu ár hvert. Hópurinn vill að þessar breyt­ingar taki gildi um næstu ára­mót.

Kostn­að­ur­inn við þessar breyt­ingar er tals­verður. Greiðslur Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs voru 8,5 millj­arðar í fyrra og gert er ráð fyrir að þær verði 8,8 millj­arðar á þessu ári. Með því að hækka hámarks­greiðsl­urnar í 600 þús­und krónur fer kostn­aður sjóðs­ins upp í um 10,7 millj­arða á næsta ári og verður um 12,2 millj­arðar á ári eftir það.

Varð illa úti í hrunsniðurskurði

Hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði námu 535.700 krónum árið 2008. Á verð­lagi dags­ins í dag sam­svarar það 818.179 krónum. Sjóð­ur­inn var skor­inn veru­lega niður af síð­ustu rík­is­stjórn strax í kjöl­far hruns­ins, líkt og átti við um margt í kjöl­far þeirra for­dæma­lausu aðstæðna sem þá komu upp. Strax var þó gagn­rýnt að svo veru­lega væri skorið niður í þessum mála­flokki, og varað við því að það myndi hafa alvar­leg áhrif á kerfið.

Hámarks­greiðsl­urnar fóru niður í 400 þús­und strax árið 2009, niður í 350 þús­und um mitt ár 2009 og svo niður í 300 þús­und árið 2010. Upphæðin var óbreytt næstu tvö ár og var svo hækkuð í 350 þús­und krónur kosn­inga­árið 2013. Núver­andi rík­is­stjórn hækk­aði hámarkið í 370 þús­und krónur árið 2014 og það hámark hefur verið óbreytt síðan.

Horfum á kerfið hrynja

Reglu­lega er talað um það að fæð­ing­ar­or­lofslögin á Íslandi hafi verið bylt­ing­ar­kennd þegar þeim var komið á. Með þeim hafi verið stigið stórt skref í jafn­rétt­isátt.

Kristín Ást­geirs­dóttur, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, hefur lengi sagt að þakið á Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafi staðið of lengi í stað. „Við horfum upp á ein­stakt kerfi, sem búið var að byggja hér upp, molna niður fyrir framan okkur,“ sagði hún við Morg­un­blaðið á dög­unum. Nauð­syn­legt sé að hækka þakið og hafa það í takt við launa­þróun í land­inu, vegna þess að það hafi áhrif á ákvörðun um barn­eignir hvort for­eldrar hafi efni á að taka sér frí. Fæð­ing­ar­or­lofið tryggi að auki jafn­ari stöðu kynj­anna bæði á vinnu­mark­aði og í umgengni for­eldra við börn sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár