Skiptar skoðanir um fæðingarorlof

Umsagn­ar­að­ilar eru flestir jákvæðir gagn­vart frum­varpi um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs. Sumir vilja leggja áherslu á að hækka greiðslur frekar en að lengja, öðrum finnst for­ræð­is­hyggja að skil­yrða orlofið við hvort for­eldri um sig.

Skiptar skoð­anir eru um það hvort leggja eigi áherslu á að hækka þak á greiðslum til fólks í fæð­ing­ar­or­lofi eða lengja orlofið, eða gera bæði. Frumvarp um leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs­ins er nú í umsagn­ar­ferli á Alþingi, en Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, er fyrsti flutn­ings­maður þess. Stjórn­völd hafa lagt áherslu á að hækka greiðsl­urnar, og er frum­varp þess efnis frá Þor­steini Víglunds­syni, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, vænt­an­legt.

Jafn­rétt­is­stofa er ein­dregið fylgj­andi því að frum­varpið nái fram að ganga og segir lengra fæð­ing­ar­or­lof verða mikla lífs­gæða­bót fyrir mæður, feður og unga­börn. „Það myndi draga úr streitu og álagi á fjöl­skyldur, byggja aftur upp sterkara sam­band barna og for­eldra og gera það væn­legra að bæta við barni eða eign­ast sitt fyrsta barn.“

Það er skylda sam­fé­lags­ins að búa sem allra best að börnum og for­eldrum ungra barna, segir Jafn­rétt­is­stofa. „Það er atvinnu­líf­inu í hag að vinnu­aflið hald­ist stöðugt með jafnri fjölgun barna sem með tíð og tíma bæt­ast við mannauð­inn og munu taka við fjöl­breyttum störfum. Það eru meiri hags­munir að búa vel að ungum börnum, minni hvað það kostar.“

Jafn­rétt­is­stofa bendir einnig á að frjó­sem­is­hlut­fall á Íslandi hefur lækkað veru­lega á síð­ustu árum, eftir að hafa verið nokkuð hátt á Íslandi miðað við önnur Evr­ópu­lönd. „Þetta þýðir að þjóðin fjölgar sér ekki lengur, til lengri tíma litið, heldur má búast við fækkun nema að inn­flutn­ingur fólks komi þar á móti.“ Þetta sé áhyggju­efni og það sé ekki nokkur vafi á því að nið­ur­skurð­ur­inn í fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu eftir hrun hafi haft mjög slæm áhrif, meðal ann­ars að fólk fækk­aði eða hætti við barn­eignir. Frjó­sem­is­töl­urnar sýni það skýrt og skor­in­ort. „Þakið var orðið svo lágt að það kom veru­lega niður á fjár­hag for­eldra og leiddi til þess að feður styttu orlof sitt veru­lega. Því miður er það ennþá þannig að karl­menn hafa almennt hærri laun en konur og því mun­aði meira um þeirra laun í fæð­ing­ar­or­lof­inu.“ Því þurfi að end­ur­reisa fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið, og stofn­unin hefur áður sagt að það verði gert með hærri greiðslum, svo feður taki frekar orlof.

Annað vanda­mál sé hversu stutt fæð­ing­ar­or­lofið sé. Frá árinu 2003, þegar fæð­ing­ar­lof varð níu mán­uðir, hafi miklar rann­sóknir verið gerðar á áhrif­unum á fjöl­skyldur og sam­fé­lagið. „Nið­ur­stöð­urnar sýna ótví­rætt jákvæð áhrif fæð­ing­ar­or­lofs­ins á sam­bönd/hjóna­bönd, tengsl barna og for­eldra, aukin tengsl feðra sér­stak­lega, jafn­ari verka­skiptigu á heim­ilum, minni áhættu­hegðun karla o.fl,“ segir Kristín Ást­geirs­dóttir, fram­kvæmda­stýra Jafn­rétt­is­stofu, í umsögn­inni. Þá hafi verið gerð alþjóð­leg rann­sókn á skóla­börnum, sem hafi sýnt sterk­ari tengsl íslenskra barna við föður sinn en í nokkru öðru þátt­töku­landi. „Dr. Ársæll Arn­ars­son sem stýrði könn­un­inni hér á landi var ekki í nokkrum vafa um að skýr­ing­una væri að finna í fæð­ing­ar­or­lofi feðra.“

ASÍ og BSRB vilja lengja, BHM hækka

ASÍ fagnar frum­varp­inu, og seg­ist telja að leng­ing fæð­ing­ar­or­lofs­ins rúmist vel innan þess hluta trygg­inga­gjalds sem Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóður fékk á árunum 2012 til 2013, það er 1,28 pró­sent af trygg­inga­gjald­inu. Þetta var lækkað um næstum helm­ing árið 2014. Því þurfi ekki að hækka trygg­inga­gjaldið til að lengja fæð­ing­ar­or­lof, heldur ein­göngu færa til líkt og lagt er til í frum­varp­inu. 

BSRB er sömu skoð­unar og ASÍ, og telur að hægt sé að lengja fæð­ing­ar­or­lofið með til­færslum á trygg­ing­ar­gjald­inu. Kröfur BSRB séu þær sömu og til­lögur starfs­hóps um fram­tíð­ar­skipan fæð­ing­ar­or­lofs­mála, að fæð­ing­ar­or­lof verði tólf mán­uðir, greiðslur verði óskertar upp að 300 þús­und krónum en for­eldrar fái 80% af við­mið­un­ar­tekjum umfram það og að hámarks­greiðslur verði 600 þús­und. 

BHM er einnig fylgj­andi því að fæð­ing­ar­or­lof verði lengt, en segir að það sé mik­il­vægt að for­gangs­raða auknum fram­lögum til mála­flokks­ins með þeim hætti að hækkun hámarks­greiðslna gangi fyrir leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs. „Lenging fæð­ing­ar­or­lofs­tíma­bils­ins á sama tíma og þak er á greiðslum er aðeins til þess fallið að skekkja enn frekar stöðu kynj­anna á vinnu­mark­aði.“ Þak á hámarks­greiðslum vinni í raun gegn mark­miðum lag­anna um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof vegna þess að það skekki stöðu kynj­anna. Mark­miðum lag­anna verði best náð með sem minnstri tekju­skerð­ingu og með því að skipta orlof­inu jafnt á milli tveggja for­eldra. „Það hlýtur að vera lang­tíma­mark­mið lög­gjafans að svo verði, enda stuðlar það ekki að jafn­rétti kynj­anna á vinnu­mark­aði að mæður taki nær alltaf lengra orlof en feður,“ segir í umsögn Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur, for­manns BHM.

Hjúkrunarfræðingar segja áherslu ekki á velferð barna

Samkvæmt frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að hvort for­eldri um sig fái fimm mán­aða ófram­selj­an­legt orlof, og svo verði tveir mán­uðir til við­bótar sem for­eldrar ráði hvort taki. Þetta er gert af jafn­rétt­is­á­stæðum, til að reyna að tryggja að feður taki sitt orlof og mæður taki ekki allt orlofið og séu frá vinnu­mark­aði allan þennan tíma.

Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga þykir með þessu sýnt að frekar sé verið að leggja áherslu á jafn­rétt­is­sjón­ar­mið varð­andi atvinnu­þátt­töku for­eldra „fremur en að tryggja barn­inu lengri sam­vistir við for­eldra sína. Til­gang­ur­inn verður því ekki fyrst og fremst vel­ferð barns­ins heldur er þörfum þess fórnað fyrir að reyna að jafna stöðu kynj­anna á vinnu­mark­aði.“ Félagið vill að hægt sé að fram­selja allt að þrjá mán­uði til við­bótar milli for­eldra, því ann­ars muni börn tapa fimm mán­uðum í sam­vistum við for­eldra sína ef annað for­eldrið af ein­hverjum orsökum getur ekki tekið fæð­ing­ar­or­lof.

Land­spít­al­inn segir einnig að æski­legt væri að for­eldrar hefðu sjálf­dæmi um ráð­stöfun fæð­ing­ar­or­lofs­tíma með barn­inu frekar en að skipt­ingin milli for­eldra sé bundin í lög. Spít­al­inn bendir á í þessu sam­hengi að það sé mis­ræmi milli rétt­inda barns sem á tvo for­eldra sem taka jafnan þátt í umönnun, og þeirra barna sem eiga aðeins eitt virkt for­eldri. Börn sem eiga bara eitt for­eldri fái styttri tíma með for­eldr­inu en önnur börn. Félags­ráð­gjafar við spít­al­ann segja að frum­varpið feli í sér for­ræð­is­hyggju, þar sem for­eldrum sé ekki frjálst að velja með hvaða hætti fæð­ing­ar­or­lofs­tíma með barn­inu sé ráð­stafað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár