Fjármálaáætlun: Stóraukin útgjöld til heilbrigðismála og ferðaþjónusta færð í efra þrep

Ferða­þjón­ustan fer í efra þrep, banka­skattur verður lækk­aður og útgjöld til heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála stór­aukin. Skuldir munu hríð­lækka og útgjöld rík­is­sjóðs aukast veru­lega. Þá ætlar Ísland að taka við stór­auknum fjölda flótta­manna og hæl­is­leit­enda.

Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, leggur fram áætlunina.
Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, leggur fram áætl­un­ina. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Útgjöld rík­is­sjóðs verða aukin umtals­vert á næstu fimm árum. Heild­ar­út­gjöld munu vaxa um 208 millj­arða króna yfir allt tíma­bilið og frum­gjöld sem nemur 223 millj­örðum króna. Stærstu útgjalda­lið­irnir eru heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mál. Raun­vöxtur á útgjöldum til heil­brigð­is­mála mun verða 22 pró­sent á tíma­bil­inu og vöxtur á fram­lögum úr rík­is­sjóði til vel­ferð­ar­mála verður 13 pró­sent. Þetta kemur fram í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára sem lögð var fram á Alþingi í dag.

Á meðal þeirra verk­efna sem ráð­ist verður í sam­kvæmt áætl­un­inni eru bygg­ing nýs Lands­spít­ala, kaup á þremur þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una, útgjöld til háskóla­stigs­ins verða aukin til að það stand­ist alþjóð­legan sam­an­burð, hámarks­greiðslur for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi verða hækk­aðar, frí­tekju­mark eldri borga hækkað, stofn­fram­lög veitt til að byggja almennar leigu­í­búðir, úrræði til kaupa á fyrsta hús­næði stykt, not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð lög­fest og tekið verður á móti stór­auknum fjölda kvótaflótta­manna og hæl­is­leit­enda. Þá verður tekið á loft­lags­málum með heild­rænum hætti og það tvinnað inn á mörg mál­efna­svið.

Ferðaþjónustan upp í almenna þrepið á næsta ári

Helstu breyt­ingar á skatt­kerf­inu á tíma­bil­inu verða þær að flestar teg­undir ferða­þjón­ustu verða felldar undir almennt þrep virð­is­auka­skatts og tekur breyt­ingin gildi 1. júlí 2018. Veit­inga­þjón­usta verður hins vegar áfram í lægra skatt­þrep­inu. Vegna þess á að mynd­ast svig­rúm til að lækka almennt þrep virð­is­auka­skatts úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent og á sú breyt­ing að taka gildi 1. jan­úar 2019.

Kolefn­is­gjald, sem er lágt í alþjóð­legum sam­an­burði, verður tvö­faldað. Áfram verður unnið að útfærslu heild­stæðs kerfis grænna skatta. Áður lög­festar eða áform­aðar skatt­kerf­is­breyt­ingar taka gildi á tíma­bil­inu, þar á meðal vöru­gjald á bíla­leigu­bíla, sam­skött­un­ar­á­kvæði og lækkun banka­skatts.

Gert er ráð fyrir því að sala eigna og arð­greiðslur, auk mynd­ar­legs afgangs af rekstri, verði til þess að skuldir lækka hratt á tíma­bil­inu. Óreglu­legar tekjur verða nýttar til að greiða niður lán. Á sama tíma hækkar lands­fram­leiðsla svo hlut­fall lána af lands­fram­leiðslu lækkar.

Mest í velferðar- og heilbrigðismál

Líkt og áður sagði er höf­uð­á­hersla á að auka útgjöld til heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála. Í áætl­un­inni er gert ráð fyrir að upp­safn­aður raun­vöxtur útgjalda til heil­brigð­is­mála á tíma­bil­inu verði 22 pró­sent og 13 pró­sent til vel­ferð­ar­mála.

Á meðal þess sem verður gert á sviði heil­brigð­is­mála er að nýr Lands­spít­ali verður byggður á tíma­bil­inu, biðlistar verða styttir og nýtt greiðslu­þátt­töku­kerfi sjúk­linga, sem lækkar kostnað þeirra, mun taka gildi. Í vel­ferð­ar­málum verða helstu breyt­ingar sem leiða til kostn­að­ar­hækk­unar þær að greiðslur for­eldra í fæð­ing­ar­or­lofi verða hækk­aðar, frí­tekju­mark vegna atvinnu­tekna eldri borg­ara verða hækk­aðar í skrefum,bóta­kerfi öryrkja verður end­ur­skoðað með auknum útgjöldum og aðstoð við atvinnu­leit. Þá verða stigin mark­viss skref til að leysa hús­næð­is­vand­ann og not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð lög­fest. Auk þess verður unnið gegn fátækt barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár