Kostnaður foreldra aukist um tugi prósenta en fæðingarorlofsgreiðslur lækkað mikið

Fæð­ing­ar­tíðni á Íslandi í fyrra var sú lægsta sem mælst hefur frá árinu 1853. Fæð­ing­ar­or­lof­staka feðra hefur dreg­ist saman um 40 pró­sent. Helstu kostn­að­ar­liðir heim­ila hafa hækkað um tugi pró­senta. En fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur eru 30 pró­sent lægri en 2008.

Á sama tíma og hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafa dreg­ist saman um rúm­lega 30 pró­sent hafa laun og útgjöld heim­ila hækkað um tugi pró­senta. Kostn­aður vegna heil­brigð­is­þjón­ustu og lyfja hefur hækkað um 47,7 pró­sent, föt og skór hafa hækkað um 56,6 pró­sent og matar- og drykkja­vörur um 68,7 pró­sent. Þá hefur hús­næð­is­verð hækkað um 20,4 pró­sent og húsa­leiga um heil 84,5 pró­sent. Þetta kemur fram í tölum sem BSRB og ASÍ hafa tekið saman ann­ars vegar um þróun hámarks­greiðslna úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði frá árinu 2008 og hins vegar um hlut­falls­lega hækkun launa og útgjalda heim­il­is­ins frá árinu 2008.

Nið­ur­staðan er skýr. Greiðslur úr fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafa lækkað mikið en allir kostn­að­ar­liðir hafa hækkað veru­lega. Afleið­ingin er sú að færri feður taka fæð­ing­ar­or­lof, fæð­ing­ar­tíðnin hefur dreg­ist skarpt saman og sá hópur sem á erf­ið­ara með að láta enda ná saman eftir barns­burð hefur vaxið mjög.

Væru 828 þúsund að óbreyttu

Í byrjun árs 2008 voru hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði 535.700 krónur. Ef þær greiðslur hefðu fylgt vísi­tölu neyslu­verðs - sem mælir verð­bólgu - þá væru hámarks­greiðslur úr sjóðnum 828.192 krónur. Svo er hins vegar ekki.

Strax í byrjun árs 2009 voru hámarks­greiðsl­urnar skertar í 400 þús­und krónur og svo lækk­aðar niður í 350 þús­und krónur sum­arið 2009, eftir að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við völdum. Í byrjun árs 2010 voru hámarks­greiðsl­urnar enn lækk­aðar og nú niður í 300 þús­und krónur. Þær voru hækk­aðar upp í 350 þús­und krónur á loka­metrum vinstri­st­jórn­ar­innar og svo upp í 370 þús­und krónur í byrjun árs 2014, eftir að ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks tók við völdum. Það er enn hámarks­greiðsla í dag. Greiðsl­urnar hafa ekki fylgt hækk­unum á vísi­tölu neyslu­verðs.

Því munar 458.192 krónum, að teknu til­liti til verð­bólgu, á hámarks­greiðsl­unum eins og þær voru í byrjun árs 2008 og þeim sem núna eru við lýði. Ef ein­ungis er horft á krónu­tölu­breyt­ingar hafa greiðsl­urnar dreg­ist saman um 30 pró­sent.

40 prósent minni feðraþátttaka

Þessar skerð­ingar hafa haft víð­tækar afleið­ingar. Þegar þakið á greiðslum úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði var hæst árið 2008 voru umsóknir feðra um fæð­ing­ar­or­lof um 90 pró­sent af umsóknum mæðra. Árið 2014 var það hlut­fall komið niður í 80 pró­sent og sam­kvæmt tölum frá BSRB hefur þátt­taka feðra minnkað um 40 pró­sent frá því fyrir hrun.

Þá hefur fæð­ing­ar­tíðni verið á nið­ur­leið hér­lendis. Frjósemi hafði aldrei verið minni hér­lendis en hún var árið 2015. Þá fædd­ust hér 4.129 börn, sem eru 246 færri en árið 2014.

Helsti mæli­kvarð­inn á frjó­semi,sam­kvæmt alþjóð­legum stöðl­um, er fjöldi lif­andi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfir­leitt er miðað við að frjó­semi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að við­halda mann­fjöld­anum til lengri tíma lit­ið.

Samkvæmt frétt frá Hagstofu Íslands í maí var frjó­semi íslenskra kvenna árið 2015 1,81 barn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mæl­ingar hófust árið 1853. Árin 2013 og 2014 var frjó­semi 1,93 en það er næst lægsta frjó­semi sem hefur mælst hér á landi. Und­an­far­inn ára­tug hefur frjó­semi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Tillögur að miklum breytingum ekki á leið í gegn

Starfs­hópur um fram­tíð­ar­stefnu í fæð­ing­ar­or­lofs­málum skil­aði til­lögum til Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, í mars síð­ast­liðnum. Þar var lagt til að hámarks­greiðslur yrðu hækk­aðar upp í 600 þús­und krónur, að fyrstu 300 þús­und krónur tekna verði óskertar en 80 pró­sent af tekjum umfram það. Þá lagði hóp­ur­inn til að hámarks­greiðsl­urnar myndu breyt­ast í sam­ræmi við launa­vísi­tölu hvers árs og að breyt­ing­arnar myndu taka gildi um næstu ára­mót.

Auk þess var lagt til að fæð­ing­ar­or­lof yrði 12 mán­uðir í stað níu frá og með byrjun árs 2019 og að leik­skóla­dvöl yrði tryggð í fram­haldi af fæð­ing­ar­or­lofi.

Kostn­að­ur­inn við þessar breyt­ingar yrði tals­verð­ur. Greiðslur Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóðs voru 8,5 millj­arðar í fyrra og gert er ráð fyrir að þær verði 8,8 millj­arðar á þessu ári. Með því að hækka hámarks­greiðsl­urnar í 600 þús­und krónur fer kostn­aður sjóðs­ins upp í um 10,7 millj­arða á næsta ári og verður um 12,2 millj­arðar á ári eftir það. Eygló sagð­ist samt sem áður ætla að vinna frum­varp upp úr til­lög­unum.

Kostn­aður hefur hins vegar setið í sumum í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og vara­for­maður fjár­laga­nefndar, gagn­rýndi til að mynda hug­myndir Eyglóar harð­lega. Þær væri inni­halds­lausar þar sem hún hefði ekki sparað þá millj­arða króna sem til þurftu á öðrum kostn­að­ar­liðum.

Ljóst er að ekk­ert frum­varp um ofan­greindar breyt­ingar á fæð­ingar- og for­eldra­or­lofi verður sam­þykkt fyrir kom­andi kosn­ingar.

Kostnaðarliðir hækka en greiðslur lækka

BSRB og ASÍ hafa því tekið höndum saman og sett af stað átak til að krefj­ast breyt­inga stjórn­valda á fæð­ing­ar­or­lofs­kerf­inu. Átakið felur meðal ann­ars í sér að fólk sem nær ekki endum saman vegna barns­eigna segir sögu sína í stuttum mynd­böndum.

Kröfur BSRB og ASÍ eru sam­hljóma þeim sem starfs­hópur Eyglóar Harð­ar­dóttur setti fram: að hámarks­greiðslur verði 600 þús­und krónur, að greiðslur verði óskertar upp að 300 þús­und og að fæð­ing­ar­or­lof verði tólf mán­uðir.

Í tölum sem BSRB og ASÍ hafa tekið saman kemur fram að á sama tíma og greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hafa lækkað úr 535.700 krónum í 370 þús­und krónur hefur hlut­falls­leg hækkun launa og útgjalda heim­ila hækkað veru­lega. Frá byrjun árs 2008 hefur hús­næð­is­verði hækkað um 20,4 pró­sent, húsa­leiga um 84,5 pró­sent og vísi­tala neyslu­verðs um 54,6 pró­sent.

Allar helstu nauð­synjar hafa enn fremur hækkað mikið. Heil­brigð­is­þjón­usta og lyf hafa hækkað um 47,7 pró­sent, matar- og drykkj­ar­vörur um 68,7 pró­sent og föt og skór um 56,6 pró­sent. Þá hefur launa­vísi­talan, sem mælir launa­þróun, hækkað um 69 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár