GPS tæki hafa áhrif á heilann

Rannsókn sýnir að flókin gatna­mót leiða til auk­innar heila­starf­semi...ef við­kom­andi fær ekki að not­ast við GPS tæki.

Nú til dags getur verið ótrú­lega auð­velt fyrir ein­stak­linga að keyra á milli staða jafn­vel í stórum borgum sem við­kom­andi þekkir lítið sem ekk­ert. Ástæðan er auð­vitað tæknin, en við getum notað GPS tæki til að hjálpa okkur að rata nán­ast hvar sem er. Í nýrri rann­sókn sem fram­kvæmd var við Uni­versity College London kemur í ljós að þessi nýja tækni hefur áhrif á heila­starf­semi okkar þegar við keyrum.

Í rann­sókn­inni voru 24 sjálf­boða­liðar beðnir um að keyra um í London, í öku­hermi. Samtímis fylgd­ist vís­inda­hóp­ur­inn með heila­starf­semi sjálf­boða­lið­ana í heila­rita til að sjá hvaða stöðvar heil­ans virkj­uð­ust. Sjálf­boða­lið­arnir voru beðnir um að kom­ast á milli staða með og án hjálpar frá GPS tækjum.

Þau svæði sem helst voru virk í heil­anum meðan á öku­ferð­inni stóð voru heila­börk­ur­inn (prefron­tal cortex) og drek­inn (hippocampus). Þegar komið var að flóknum gatna­mótum, þar sem margir mögu­leikar stóðu til boða jókst virknin í þessum tveimur stöðum heil­mikið, ef sá sem sat undir stýri þurfti að treysta á sjálfan sig til að rata. Ef við­kom­andi hafði GPS tæki til að styðj­ast við breytt­ist heila­starf­semin ekk­ert við það að koma að flóknum gatna­mótum.

Því flókn­ari sem gatna­mótin voru því meira jókst heila­starf­semin, það má því líka leiða að því líkur að virknin er mis­mun­andi milli borga, t.d. má sjá fyrir sér að New York, sem er nokkuð vel skipu­lögð veki ekki jafn mikla virkni og hin flókna London.

En hvað þýða þessar nið­ur­stöður? Gildi þeirra felst fyrst og fremst í því að skilja hvernig heil­inn virkar þegar við erum að reyna að rata. Það getur til dæmis gefið okkur hug­mynd um hvernig best er að skipu­leggja borgir og hús, ef fólk hefur t.d. ekki mögu­leik­ann á að styðj­ast við GPS.

En svo gæti auk­inn skiln­ingur okkar á heila­starf­sem­inni líka hjálpað okkur við að skipu­leggja hús eða stofn­anir þar sem fólk sem glímir við heila­sjúk­dóma dvelur. Það er t.d. mögu­leiki að létta líf Alzheimer's sjúk­linga heil­mikið með því að stuðla að ein­földu og þægi­legu umhverfi fyrir við­kom­andi.

Fréttin birt­ist líka á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár