Fjölgar minna hjá Icelandair en heilt yfir og sætanýting dregst saman

Ferða­mönnum á Íslandi í febr­úar fjölg­aði um 47 pró­sent milli ára. Þeir sem flugu með Icelandair fjölg­aði um ell­efu pró­sent og sæta­nýt­ing dróst saman.

Ferða­mönnum sem komu til Íslands fjölg­aði um 47,3 pró­sent á milli febr­ú­ar­mán­aðar 2016 og saman mán­aðar 2017. Ljóst er að sú aukn­ing náði ekki nema að hluta til stærsta íslenska flug­fé­lags­ins, Icelandair. Í til­kynn­ingu frá Icelandair Group, móð­ur­fé­lags Icelandair, til Kaup­hallar Íslands um flutn­ings­tölur félags­ins í febr­úar síð­ast­liðnum kemur fram að far­þegar Icelandair voru 11 pró­sent fleiri en þeir voru í sama mán­uði 2016.

Það er mun minna en sem nemur fram­boðs­aukn­ingu Icelandair, en hún nam 18 pró­sentum milli ára. Sæta­nýt­ing dróst því saman úr 79 pró­sentum í 75,9 pró­sent.

Sömu sögu er að segja af Flug­fé­lagi Íslands, sem er í eigu Icelandair Group og flýgur inn­an­lands á Íslandi og til alþjóð­legra áfanga­staða eins og Græn­lands, Þórs­hafnar, Belfast og Aberdeen í Skotlandi. Framboð félags­ins jókst um 29 pró­sent milli ára en sæta­nýt­ing dróst veru­lega saman, úr 77,7 pró­sent í febr­úar 2016 í 68,2 pró­sent í síð­asta mán­uði. Þá fækk­aði seldum blokk­tímum í leiguflugi á vegum Icelandair Group um sjö pró­sent milli ára og frakt­flutn­ingar dróg­ust saman um 13 pró­sent. Sam­drátt­ur­inn í frakt­flutn­ingum skýrist þó aðal­lega á því að verk­fall sjó­manna hafði í för með sér mik­inn sam­drátt í útflutn­ingi á fiski.

Flutn­ings­töl­urnar voru þó ekki allar slæmar hjá Icelandair Group. Hót­el­starf­semi félags­ins gengur betur en í febr­úar í fyrra. Fram­boðið á gistin­óttum hefur auk­ist, fleiri nætur eru seldar og því er her­bergj­a­nýt­ingin betri, fer úr 84 pró­sent í 85,6 pró­sent.

Til sam­an­burðar flutti WOW air 170 pró­sent fleiri far­þega í febr­úar 2017 en í sama mán­uði ári áður. Sæta­nýt­ing félags­ins var 87 pró­sent, sem er sama nýt­ing og var í febr­úar 2016.

Gríðarlegar lækkanir á skömmum tíma

Mikil ólga hefur verið í kringum Icelandair Group frá því að félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun í lok jan­úar. Síðan þá hefur mark­aðsvirði bréfa í félag­inu hríð­fallið. Alls hafa bréf í Icelandair Group fallið um 37 pró­sent frá því seint í jan­úar. Bréfin hafa lækkað um 62 pró­sent frá því í apríl 2016.

Innan Icelandair telja stjórn­end­ur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans, að dýfan hafi verið allt of mikil miðað við hver staða félags­ins er og orðrómur hefur verið á mark­aði um að ein­hverjir hafi beitt sér sér­stak­lega fyrir því að lækka virði bréfa í Icelandair í við­skipta­legum til­gangi. Á meðal þeirra sem oft­ast voru nefndir í því sam­hengi er Kvika banki. Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri Kviku, neit­aði því í við­tali við Við­skipta­blaðið 23. febr­úar að bank­inn hefði að nokkru leyti unnið mark­visst að því að lækka bréf í Icelandair.

Á aðal­fundi í síð­ustu viku var kjörin ný stjórn Icelandair Group. Sigurður Helgason, sem hafði verið stjórn­ar­for­maður um ára­bil, gaf ekki kost á sér til end­ur­kjörs. Nýja stjórn Icelandair Group skipa þau Ást­hild­ur Mar­grét Ot­hars­dótt­ir, Georg Lúð­vík­s­­son, Katrín Olga Jó­hann­es­dótt­ir, Ómar Bene­dikts­­son og Úlfar Stein­­dór­s­­son. Úlf­ar, sem er for­stjóri Toyota á Íslandi, er jafn­framt nýr stjórn­ar­for­maður félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár