Forstjóri Kviku neitar því að bankinn hafi lækkað Icelandair

Sigurður Atli Jónsson segir engan fót fyrir því að Kvika banki hafi unnið gegn Icelandair með skipu­lögðum hætti, enda væri það ólög­legt.

Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri Kviku banka, neitar því að bank­inn sem hann stýrir hafi að nokkru leyti unnið mark­visst að því að lækka bréf í Icelandair á síð­ustu viku. Þetta kemur fram í við­tali við hann í Við­skipta­blað­inu í dag.

Bréf í Icelandair tóku skarpa dýfu í lok jan­úar síð­ast­liðnum í kjöl­far þess að félagið sendi frá sér afkomu­við­vörun. Alls hafa hluta­bréf í félag­inu lækkað um 30 pró­sent frá 25. jan­úar og um 58 pró­sent frá því í apríl 2016.

Innan Icelandair telja stjórn­endur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, að dýfan hafi verið allt of mikil miðað við hver staða félags­ins er og orðrómur hefur verið á mark­aði um að ein­hverjir hafi beitt sér sér­stak­lega fyrir því að lækka virði bréfa í Icelandair í við­skipta­legum til­gangi. Á meðal þeirra sem oft­ast eru nefndir í því sam­hengi er Kvika banki.

Sigurður Atli hafnar því alfarið í Við­skipta­blað­inu í dag að fótur sé fyrir þeim orðrómi. „Sem fjár­fest­inga­banki og leið­andi aðili í mark­aðsvið­skiptum sinnum við auð­vitað heil­miklu af hluta­bréfa­við­skiptum í þeim félögum sem skráð eru á markað. Það eru alltaf jafn­miklar fjár­hæðir á bak við kaup og sölu og það er eng­inn fótur fyrir því að við höfum unnið gegn félag­inu með skipu­lögðum hætti, enda væri það ólög­legt. Það er mjög eðli­legt að gengi hluta­bréfa hreyf­ist á mörk­uðum, þar spila vænt­ingar fjár­festa inn í. Okkur hafa ekki borist neinar ásak­anir hingað til og alls ekki frá félag­inu sem slíku. Þarna er eitt­hvað úr lausu lofti gripið.“

Hann segir mögu­legt sé að ráð­gjöf Kviku til við­skipta­vina sinna á ein­hverjum tíma­punkti hafi verið sú að selja frekar bréf í Icelandair en að kaupa. Það hafi hins vegar bara verið mjög góð ráð­gjöf í ljósi nið­ur­stöð­unnar.

Valdabarátta framundan á aðalfundi

Mikil valda­bar­átta á sér stað innan Icelandair sem stendur og talið er mjög lík­legt að reynt verði að hrista upp í stjórn félags­ins á kom­andi aðal­fundi, sem fram fer 3. mars. Í Frétta­blað­inu í dager greint frá því að hópur einka­fjár­festa, sem sam­anstendur meðal ann­ars af við­skipta­fé­lög­unum Finni Reyr Stef­áns­syni og Tómasi Krist­jáns­syni, eigi nú um 1,5 pró­sent hlut í Icelandair og hygg­ist tefla Ómari Bene­dikts­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Air Atlanta og Smart­Lynx í Lett­landi, fram til stjórn­ar­kjörs á aðal­fund­inum. Kvika hafði milli­göngu um kaup þeirra á bréfum í Icelandair á síð­ustu dögum.

Þessi hópur leitar nú stuðn­ings ann­arra hlut­hafa við fram­boð Ómars til stjórn­ar­innar. Samkvæmt við­mæl­endum Kjarnans er vilji hjá hluta fjár­festa í Icelandair að skipta út Sigurði Helga­syni úr stóli stjórn­ar­for­manns Icelandair og Katrínu Olgu Jóhann­es­dóttur, sem setið hefur í stjórn­inni frá árinu 2009.

Í nýju verð­mati sem Grein­ing­ar­deild Arion banka hefur unnið um Icelandair, og Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram það mat að bréf í félag­inu séu und­ir­verð­lögð. Gengi bréf­anna eru sem stendur 16,3 krónur á hlut en Arion banki telur virði þeirra vera 19 krónur á hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár