Norwegian ævintýrið

Norska flug­fé­lagið Norwegian er, miðað við fjölda far­þega, stærsta flug­fé­lag á Norð­ur­löndum, orðið stærra en SAS. Stjórn­endur ætla félag­inu enn stærri hluti á næstu árum. En í flug­rekstri á orða­til­tækið „skjótt skip­ast veður í lofti“ vel við.

Norwegian var stofnað í jan­úar 1993. Ári fyrr hafði flug­fé­lagið Busy Bee, sem var í sam­vinnu við Braathens flug­fé­lagið, orðið gjald­þrota. Meðal stofn­enda Norwegian var Bjørn Kjos, núver­andi for­stjóri félags­ins. Bjørn Kjos, sem er fæddur 1946, hafði verið flug­maður í norska hernum en síðar sótt um flug­manns­starf, hjá SAS en fékk ekki. Hann fór þá í lög­fræði­nám og að því loknu (1983) vann hann sem lög­maður til árs­ins 1993, stof­nárs Norwegian.

Norwegian sinnti í upp­hafi, í sam­vinnu við Braathens, flugi á nokkrum inn­an­lands­leiðum sem Busy Bee hafði áður sinnt, einkum við vest­ur­strönd Noregs. Flug­vél­arnar voru Fokker F-50, sams­konar vélar og Flug­fé­lag Íslands not­aði um ára­tuga skeið. Rekstur Norwegian stóð í járnum mörg fyrstu árin en for­svars­menn félags­ins létu ekki deigan síga. Árið 2002 tók Norwegian í notkun Boeing 737-300 þotur,með sætum fyrir 150 far­þega. Litlar á mæli­kvarða dags­ins í dag en til sam­an­burðar tóku Fokker vél­arnar 62 far­þega. 2004 gerði Norwegian sam­starfs­samn­ing við Sterling félagið og Fly Nordic, það síð­ar­nefnda sam­ein­að­ist Norwegian nokkrum árum síðar. Með þessum sam­starfs­samn­ingi var Norwegian komið í beina sam­keppni við SAS flug­fé­lagið, Fly Nordic hafði flug­leyfi á leið­inni Ósló – Stokk­hólmur og Sterling hafði flug­leyfi til 13 áfanga­staða í Evrópu . Árið 2005 var félagið í fyrsta sinn réttu megin við núllið í rekstr­inum „gott ár, og þau verða fleiri,“ sagði for­stjór­inn. Ári síðar byrj­aði Norwegian að fljúga frá Varsjá í Póllandi til fimm borga í Evrópu.

Tímamótaárið 2008

Þótt skjótt skip­ist veður í lofti í flug­rekstr­inum er aðra sögu að segja þegar kemur að flug­véla­kaupum. Þar þarf að hafa tím­ann fyrir sér og tryggja sér „pláss“ í kaup­enda­röð­inni með löngum fyr­ir­vara. Það höfðu for­svars­menn Norwegian gert og árið 2008 fékk félagið afhentar fyrstu Boeing 737- 800 þot­urnar. Þær tóku mun fleiri far­þega en eldri þot­urnar og not­uðu langtum minna elds­neyti. Sama ár opn­aði félagið starfs­stöð í Kaup­manna­höfn. 2008 var líka árið sem Sterling flug­fé­lagið komst í þrot. Sterling var stofnað árið 1962 af séra Eilif Kroager (Tjære­borg) en end­aði í höndum íslenskra „útrás­ar­vík­inga“ með afleið­ingum sem ekki þarf að tíunda, ártalið segir allt.

Uppgangstímar

Segja má að hru­nárið 2008 hafi fyrir alvöru markað upp­gang Norwegian. Eins og áður sagði hafði félagið opnað starfs­stöð í Kaup­manna­höfn og ári síðar fjölg­aði áætl­un­ar­leiðum félags­ins um hvorki meira né minna en 39. Far­þeg­unum fjölg­aði líka og árið 2009 voru þeir 10.8 millj­ónir, 18 pró­sentum fleiri en árið á undan. Félagið fékk líka ,,Market Leaders­hip Award” sem stundum er nefnt ,, Ósk­arsverð­launin í flug­inu”. Félagið var sem­sagt með byr undir vængjum og rekst­ur­inn gekk betur en nokkru sinni fyrr. Og starf­semin óx hröðum skrefum, árið 2012 und­ir­s­skrif­aði stjórn Norwegian stærsta samn­ing um flug­véla­kaup, sem nokkru sinni hafði verið gerður í Evrópu. Sá samn­ingur hljóð­aði uppá kaup á 122 Boeing far­þega­þotum og 100 Airbus þotum. Árið eftir, 2013 byrj­aði félagið áætl­un­ar­flug til Bangkok í Tælandi og fimm áfanga­staða í Banda­ríkj­unum. Norwegian var þetta sama ár valið besta evr­ópska lággjalda­fé­lagið, þann titil hefur félagið nú unnið fjögur ár í röð.

Orðið stærra en SAS

Í ára­tugi hefur Scandinavian Airlines, SAS, verið „stóra nor­ræna flug­fé­lagið“. SAS hefur hins­vegar ekki farið var­hluta af þeim svipt­ingum sem orðið hafa í flug­rekstr­inum um allan heim á síð­ustu árum og reyndar hefur rekstur þess hvað eftir annað staðið mjög tæpt. Félögin tvö, SAS og Norwegian, róa að mörgu leyti á sömu mið í bar­átt­unni um far­þeg­ana og þótt SAS hafi lengst af haft yfir­hönd­ina varð­andi fjölda far­þega er það ekki lengur svo. Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur Norwegian flutt 29,66 millj­ónir far­þega en SAS 29,54 millj­ónir. Munurinn er ekki mik­ill en segir þó ákveðna sögu. Í jan­úar á þessu ári fjölg­aði far­þegum SAS um 10 pró­sent, sem telst út af fyrir sig ágætt, en far­þegum Norwegian fjölg­aði hins vegar um 20 pró­sent. Norwegian ætlar að bæta við tvö þús­und starfs­mönnum á þessu ári, til við­bótar þeim fimm þús­und og fimm hund­ruð sem fyrir eru. Þrjátíu og tvær nýjar flug­vélar bæt­ast í flot­ann og áætl­un­ar­leiðum félags­ins verður jafn­framt fjölgað. Í flug­flota Norwegian eru nú 116 vélar og flogið er til 138 áfanga­staða. Það er sem­sagt „hugur í mönnum“ og mark­miðin háleit.

Allt í þessu fína, en...

Það hefur gengið vel hjá Norwegian og útlitið er bjart. Eða ekki verður betur séð. Rífandi gangur eins og sagt er. En segir það allt? „Nei, ekki allt og langt frá því“ segir Jacob Pedersen, danskur sér­fræð­ingur sem þekkir vel til rekst­urs flug­fé­laga. Hann segir að þegar rýnt sé í rekstur Norwegian birt­ist tölur sem rétt sé að staldra við. Eigið fé Norwegian sé 4.4 millj­arðar norskra króna (57.5 millj­arðar íslenskir). „En,“ segir sér­fræð­ing­ur­inn „skuld­irnar eru svim­andi háar, 21 millj­arður norskra króna (274 millj­arðar íslenskir)“. Miklir pen­ingar. „Þola axla­böndin þetta?“ spyr Jacob Pedersen og bætir við ,,að það komi í ljós á næstu árum”. Hann segir að Norwegian hafi fram til þessa verið heppið, það hafi til dæmis gert fasta lang­tíma­samn­inga um kaup á elds­neyti sem hafi skipt miklu varð­andi afkom­una. Árs­reikn­ingar segi ekki alla sög­una, tekju­aukn­ing félags­ins sé, þegar grannt er skoðað, ekki jafn mikil og nið­ur­staða reikn­ing­anna gefi til kynna. Elds­neyt­is­verðið skipti afar miklu í rekstri flug­fé­laga og þar hafi Norwegian verið heppið. Hvort svo verði áfram sé ókomið í ljós. Hitt sé deg­inum ljós­ara segir danski sér­fræð­ing­ur­inn, til­koma Norwegian hafi hleypt nýju blóði í sam­keppn­ina og sam­keppnin orðið til að lækka verð á far­miðum. „Almenn­ingur spyr ekki um annað en verðið,“ sagði Jacob Pedersen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár