Danir með svipaðar reglur og Trump vill innleiða

Fólk frá Sýrlandi og Sómalíu fær ekki að koma til Dan­merkur, og Danir skipta fólki sem þangað sækir í fimm flokka eftir þjóð­erni. Borgþór Arn­gríms­son skrifar um inn­flytj­enda­mál frá Kaup­manna­höfn.

Fjöl­miðlar hafa ekki verið í vand­ræðum með upp­slátt­ar­frétt­irnar síðan Donald Trump tók við for­seta­emb­ætt­inu vest­an­hafs. For­set­inn hefur látið gamm­inn geysa, það á bæði við um tístið (Twitter), þar sem hann tjáir sig margoft á degi hverjum, og þegar hann talar við frétta­menn, ýmist í eigin per­sónu eða gegnum aðstoð­ar­fólk sitt. Í kosn­inga­bar­átt­unni spar­aði fram­bjóð­and­inn ekki lof­orðin og meðal þess sem mesta athygli vakti voru yfir­lýs­ingar hans um hertar aðgerðir í inn­flytj­enda­málum.

Innflytjendatilskipunin

Trump hafði ein­ungis setið viku í Hvíta hús­inu þegar hann birti til­skipun sem sann­ar­lega má segja að hafi valdið fjaðrafoki. Til­skip­unin, sem sam­stundis tók gildi, bann­aði borg­urum sjö landa að koma til Banda­ríkj­anna. Löndin sjö eru Íran, Írak, Líbýa, Sómalía, Súdan, Sýrland og Yemen. Hún tók einnig til flótta­fólks frá Sýrlandi. Nokkrir banda­rískir fjöl­miðlar vöktu strax athygli á því að til­skip­unin tæki ekki til rík­is­borg­ara Sádi-Arabíu og létu í það skína að það ætti sér ein­falda skýr­ingu: fyr­ir­tæki í eigu for­set­ans hefðu mik­illa við­skipta­hags­muna að gæta þar í landi. Til­skip­unin var þegar í stað kærð og alrík­is­dóm­ari úrskurð­aði að hún skyldi felld úr gildi. Að mati dóm­ar­ans gekk til­skip­unin gegn ákvæðum banda­rísku stjórn­ar­skrár­innar þar sem hún mis­mun­aði fólki eftir trú­ar­brögðum.

Úrskurður „svokallaða dómarans“ fáránlegur sagði forsetinn

For­set­inn varð æfur og spar­aði ekki stóru orðin: ákvörðun þessa „svo­kall­aða dóm­ara“ væri fárán­leg og henni yrði hnekkt. Þessi orð, for­set­ans, mælt­ust væg­ast sagt mis­jafn­lega fyrir og spurt var hvort for­set­inn væri ekki betur að sér en svo að hann gerði sér ekki ljóst að for­seta­emb­ættið væri ekki hafið yfir lög. Áfrýj­un­ar­dóm­stóll tók málið fyrir og nið­ur­staða hans var sú sama og alrík­is­dóm­ar­ans: til­skipun for­set­ans stæð­ist ekki lög. Þegar þessi orð eru sett á blað er ekki ljóst hvert fram­haldið verður en lang lík­leg­ast verður að telja að málið komi til kasta Hæsta­réttar Banda­ríkj­anna. Í Hæsta­rétti sitja að jafn­aði níu dóm­arar en eru sem stendur átta, fjórir repúblikanar og fjórir demókratar. Repúblikanar gátu ekki sætt sig við að Barack Obama útnefndi níunda dóm­ar­ann og þvæld­ust fyrir skipan hans. Sama munu demókratar örugg­lega gera nú þegar Trump hefur útnefnt „sinn mann“, þeir munu tefja hina form­legu útnefn­ingu og á meðan er patt­staða í Hæsta­rétti. For­set­inn er vægst sagt ósáttur við stöðu mála en getur lítið að gert því hvort sem honum líkar betur eða verr er for­seti Banda­ríkj­anna ekki haf­inn yfir lög.

Danski utanríkisráðherrann undrandi

Eftir að Banda­ríkja­for­seti gaf út til­skip­un­ina (og áður en dóm­ari úrskurð­aði hana ógilda) urðu margir til að lýsa undrun sinni. Meðal þeirra sem þannig töl­uðu var danski utan­rík­is­ráð­herr­ann Anders Samu­el­sen. Í sjón­varps­við­tali sagði ráð­herr­ann að það væri rangt að dæma fólk á grund­velli trúar og þjóð­ernis. „Maður á ætíð að meta ein­stak­ling­inn sem slíkan.“ Ráð­herr­ann end­ur­tók svo þessa skoðun sína á Facebook.

„Það er nefnilega það“

Þessi orð voru fyr­ir­sögn dag­blaðs­greinar Martins Hen­rik­sen, þing­manns og tals­manns Danska Þjóð­ar­flokks­ins um mál­efni inn­flytj­enda. Í grein­inni vakti þing­mað­ur­inn athygli á því að að stefna Banda­ríkja­for­seta í þessum efnum væri eig­in­lega nákvæm­lega sú sama og dönsku rík­is­stjórn­ar­innar. Semsé að flokka þá sem hyggj­ast koma til Dan­merkur, eftir þjóð­erni. Undir þetta tekur Jens Vedsted-Hansen pró­fessor við Háskól­ann í Árósum, „Við deilum fólki í tvo flokka: þá sem koma frá löndum sem við krefj­umst ekki vega­bréfs­á­rit­unar og svo allra hinna. Þetta er mis­munun. Í öðru lagi flokkum við fólk frá löndum sem þurfa vega­bréfs­á­ritun til Dan­merkur í tvo hópa: þá sem fá áritun og svo hina sem er synjað um áritun. Svo er það hóp­ur­inn sem fær ein­fald­lega ekki leyfi til að koma til Dan­merkur vegna þjóð­ernis. Þar má nefna Sómali og Sýr­lend­inga.“

Fimm flokkar

Ráðu­neyti inn­flytj­enda­mála í Danmörku skiptir þeim sem þurfa vega­bréfs­á­ritun til Dan­merkur í fimm flokka: Auð­veld­ast fyrir þá sem falla í flokk númer 1 og erf­ið­ast fyrir þá sem flokk­ast númer 5.

Í flokki 1 eru 54 lönd. Þau eiga það sam­eig­in­legt að líkur á ólög­legum inn­flytj­endum eru litlar. Í þessum flokki eru t.d mörg lönd í Afríku, Maldíveyjar og Qatar.

Í flokki 2 eru 18 lönd. Fólk frá löndum í þessum flokki geta hugs­an­lega reynt að kom­ast ólög­lega til Dan­merkur. Í þessum hópi eru t.d. Albanía, Nepal, Serbía og Tæland.

Í flokki 3 eru 27 lönd. Fólk frá þessum 27 löndum er talið lík­legt til að reyna að kom­ast til Dan­merkur á fölskum for­sendum. Í þessum hópi eru m.a Egypta­land, Kína, Rússland, Tyrkland, Indland og Víetnam.

Í flokki 4 eru 12 lönd. Miklar líkur eru taldar á að fólk frá þessum löndum reyni að kom­ast til Dan­merkur. Írak, Afganistan og Pakistan eru í þessum flokki, einnig Palest­íu­menn án rík­is­fangs.

Í flokki 5 eru 2 lönd: Sýrland og Sómalía. Íbúar þess­ara tveggja landa fá ein­fald­lega ekki vega­bréfs­á­ritun til Dan­merkur, nema í algjörum und­an­tekn­ing­ar­til­vikum.

Forsendurnar ólíkar

Þótt dönsku regl­urnar varð­andi vega­bréfs­á­ritun og þar með leyfi til að koma til lands­ins séu svip­aðar og til­skip­anir Banda­ríkja­for­seta eru for­send­urnar ólíkar. Donald Trump telur að rík­is­borg­urum land­anna sjö fylgi hætta á hryðju­verkum og for­set­inn hefur ítrekað tengt þessa skoðun sína trú­ar­brögðum. Af múslímum stafi hætta. Ótti Dana er ann­ars eðlis, þeir telja líkur á að fólk frá til­teknum löndum vilji kom­ast til Dan­merkur í þeim til­gangi að setj­ast þar að, fá póli­tískt hæli.

Þjóðernið ræður ekki

Stjórn­andi danska sjón­varps­þátt­ar­ins Detektor spurði Anders Samu­el­sen utan­rík­is­ráð­herra hvað hann ætti við þegar hann segði að fólk skyldi ekki dæmt á grund­velli þjóð­ernis. Spurn­ingin var borin upp í ljósi áður­nefndrar flokk­unar ráðu­neytis inn­flytj­enda­mála. Ráð­herr­ann svar­aði því til að allar umsóknir um vega­bréfs­á­ritun, þrátt fyrir flokk­un­ina áður­nefndu, væru skoð­aðar og metnar hver fyrir sig. Þegar spurt var hvernig umsókn um vega­bré­fá­ritun Sýr­lend­ings eða Sómala yrði afgreidd svar­aði ráð­herr­ann því til að þótt almenna reglan væri sú að rík­is­borg­arar þess­ara tveggja landa fengju ekki leyfi til að koma til Dan­merkur gætu sér­stakar aðstæður ráðið því að frá þess­ari reglu væri vikið. „Ef sómalskur maður, sem á dauð­vona móður í Danmörku, vildi fá að koma og hitta hana áður en það væri um seinan yrði það vita­skuld leyft,“ sagði ráð­herr­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnvöld

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár