Viðskiptaráð hvetur íslensk stjórnvöld til að hætta hefðbundnum atvinnurekstri

Við­skipta­ráð Íslands leggur til leiðir þannig að tryggja megi að atvinnu­rekstur stjórn­valda skili sam­fé­lag­inu til­settum ávinn­ingi án þess að það sé gert á kostnað hag­sældar. Þetta kemur fram í skoðun á atvinnu­starf­semi hins opin­bera.

Við­skipta­ráð Íslands hvetur stjórn­völd til að hætta alfarið hefð­bundnum atvinnu­rekstri en ráðið telur að stjórn­völd geri það í sumum til­fellum án þess að mál­efna­leg sjón­ar­mið liggi að baki. Stjórn­mála­menn hafi látið vera að afleggja starf­sem­ina og látið rekst­ur­inn óáreittan. Dæmi um þetta séu fjár­mála­stofn­anir, tjald­svæða­þjón­usta, mal­bik­un­ar­stöð, smá­sölu­fyr­ir­tæki og sorp­hirða. Við­skipta­ráð telur að með slíkri starf­semi dragi hið opin­bera úr hag­sæld með óhag­kvæmri starf­semi og skapi skatt­greið­endum óþarfa rekstr­ar­á­hættu. Þetta kemur fram í skoðun Við­skipta­ráðs sem kom út í morgun um atvinnu­starf­semi hins opin­bera.

Ríkið stærsti atvinnurekandinn

Í skýrsl­unni kemur fram að hið opin­bera sé stærsti atvinnu­rek­andi á Íslandi. Í dag spanni atvinnu­starf­semi stjórn­valda 23 atvinnu­greinar og um 70 ólíka rekstr­ar­að­ila. Samtals starfi ríf­lega 7.000 ein­stak­lingar hjá þessum aðilum sem gerir hið opin­bera að stærsta atvinnu­rek­anda á Íslandi mælt í fjölda starfs­manna.

Um einn af hverjum fimm opin­berum starfs­mönnum starfar í atvinnu­rekstri. Opin­berir starfs­menn voru um 37 þús­und tals­ins árið 2014. Stærstur hluti þeirra starfar í opin­berri þjón­ustu, þ.e. við rekstur stofn­ana-, mennta-, heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfis. Auk þeirra starfa um sjö þús­und manns í opin­berum atvinnu­rekstri. Þau störf eru frá­brugðin öðrum opin­berum störfum að því leyti að um er að ræða tekju­skap­andi áhættu­rekstur sem oft og tíðum er einnig sinnt af einka­að­ilum, að mati Við­skipta­ráðs.

Í skýrsl­unni kemur fram að í sumum til­fellum sé þessi starf­semi eðli­leg en í öðrum sé hún til þess fallin að draga úr lífs­kjörum. Við­skipta­ráð hvetur stjórn­völd til að jafna leik­völl­inn í sam­keppni hins opin­bera við einka­að­ila, afmarka hlut­verk stofn­ana í atvinnu­rekstri og afleggja opin­beran sam­keppn­is­rekstur. Þannig megi tryggja að atvinnu­rekstur stjórn­valda skili sam­fé­lag­inu til­settum ávinn­ingi án þess að það sé gert á kostnað hag­sældar.

Mæla með þjónustusamningi

Við­skipta­ráð telur að þjón­ustu­samn­ingur geti skilað meiri heild­ar­á­vinn­ingi en þegar stjórn­völd standa í opin­berum atvinnu­rekstri. Stjórn­völd losni við þá rekstr­ar­á­hættu sem fylgir atvinnu­rekstri og greiði þess í stað fasta og fyr­ir­sjá­an­lega upp­hæð til að tryggja að þjón­ustan sé veitt. Einka­að­il­inn beri hins vegar áhætt­una sjálfur og hafi því hvata til að hag­ræða í rekstri og auka tekjur eins og unnt er á samn­ings­tím­anum.

Við­kom­andi rekstr­ar­að­ili sjái þá hag sinn í því að ráð­ast í mark­aðs­her­ferðir til að auka afkasta­getu eða bjóða upp á ýmiss konar við­bót­ar­þjón­ustu. Skattur væri síðan greiddur af þeim hagn­aði sem kynni að mynd­ast og stjórn­völd gætu dregið úr sinni föstu greiðslu, og þar með kostn­aði skatt­greið­enda við að tryggja þjón­ust­una, við end­ur­nýjun samn­ings­ins ef rekst­ur­inn gengur vel.

Þessi leið hefur verið valin í nýjum frum­varps­drögum að lögum um póst­þjón­ustu. Segir í skýrsl­unni að verði frum­varps­drögin að lögum verður einka­réttur Póstsins á póst­dreif­ingu afnum­inn og sam­keppni á mark­aðnum gerð frjáls­ari. Fram­kvæmda­vald­inu verði jafn­framt heim­ilt að veita rekstr­ar­að­ilum stuðn­ing gegn því að þeir skuld­bindi sig til að starf­rækja póst­þjón­ustu á land­inu öllu og sinni þannig þjón­ustu sem stjórn­völd telja sam­fé­lags­lega mik­il­væga.

Hlutverk hins opinbera ekki að vera í tekjuaukandi starfsemi

Einnig kemur fram í skýrsl­unni að í sumum til­fellum stundi hið opin­bera atvinnu­rekstur í gegnum ýmsar stofn­anir sem það starf­rækir. Þá stígi við­kom­andi stofn­anir inn á svið sem áður hefur verið sinnt af einka­að­ilum án þess að mark­aðs­brestur hafi verið til staðar. Dæmi um slíkt hér­lendis megi finna í fast­eigna­rekstri, rann­sóknum, ráðn­ing­ar­þjón­ustu, veit­inga­rekstri og þýð­ing­ar­þjón­ustu.

Sumar stofn­anir sæki í auknum mæli í sér­tekjur í stað þess að treysta á opin­ber fram­lög. Þetta sé óheppi­legt í ljósi þess að hlut­verk hins opin­bera er að veita þá þjón­ustu sem ekki skapar tekjur og telst þannig til sam­fé­lags­legra en ekki fjár­hags­legra verð­mæta. Með því að auka áherslu á tekju­skap­andi starf­semi séu stofn­anir að færa sig í auknum mæli frá hlut­verkum sínum.

Bein samkeppni við einkaaðila ekki heilbrigð

Í þriðja lagi gagn­rýnir Við­skipta­ráð hefð­bund­inn sam­keppn­is­rekstur á vegum hins opin­bera. Þá séu ekki til staðar mark­aðs­brestir sem rétt­læta opin­beran rekstur en stjórn­völd haldi engu að síður slíkum rekstri úti. Dæmi um þetta megi finna í inn­lendri banka­þjón­ustu, ferða­þjón­ustu, fjöl­miðlun, korta­gerð, mal­biks­fram­leiðslu, smá­sölu, sorp­hirðu og útgáfu­starf­semi.

Að mati Við­skipta­ráðs eiga stjórn­völd ekki að koma slíkri starf­semi. Með hefð­bundnum sam­keppn­is­rekstri starfi hið opin­bera í beinni sam­keppni við einka­að­ila. Slík sam­keppni sé ekki heil­brigð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnvöld

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár