Vill að hið vinnandi fólk taki þátt í stefnumótun í ferðaþjónustunni

Forseti ASÍ segir að stétt­ar­fé­lög um land allt hamist við að verja rétt­indi fólks í ferða­þjón­ust­unni og þar sé ekki allt fal­legt að sjá.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Aðsend mynd

Drífa Snædal for­seti ASÍ segir að það komi veru­lega á óvart að stjórn­völd séu að móta stefnu í ferða­þjón­ustu til árs­ins 2030 án þess að full­trúum vinn­andi fólks hafi verið boðið að borð­inu. Frá þessu greinir hún í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu sinni í dag.

Í upp­hafi árs var skip­aður stýri­hópur sem hafði það hlut­verk að setja fram drög að fram­tíð­ar­sýn og leið­ar­ljósi íslenskrar ferða­þjón­ustu til 2030. Tvö skjöl voru lögð fram í samráðs­gátt stjórn­valda í júní síð­ast­liðnum; Fram­tíð­ar­sýn og leið­ar­ljós íslenskrar ferða­þjón­ustu til 2030 og Jafn­væg­isás ferða­mála. Umsagn­ar­frestur er lið­inn en hann var til 21. júlí 2019. Þrjár umsagnir bár­ust, meðal ann­ars frá Samtökum ferða­þjón­ust­unnar og ASÍ.

[adspot]

Met í afneitun

Drífa segir að stétt­ar­fé­lög um land allt hamist við að verja rétt­indi fólks einmitt í ferða­þjón­ust­unni og þar sé ekki allt fal­legt sem þau sjá. „Reyndar er ferða­þjón­ustan í dag mjög frek á starfs­fólk og laun­unum er haldið niðri svo ekki sé talað um öll rétt­inda­brotin í grein­inni. Stétt­ar­fé­lög áætla að um 70% af þeirra tíma og orku fari í að berj­ast fyrir rétt­indum fólks í ferða­þjón­ustu en hlut­fall félags­manna í grein­inni er umtals­vert lægra,“ skrifar hún.

Hún segir jafn­framt að það að móta stefnu í grein­inni án þess að eyða einni setn­ingu í aðbúnað, menntun og stöðu þeirra sem vinna vinn­una sé ein­hvers konar met í afneitun.

Að ræða breytingar á leigubílaakstri án þess að taka tillit til vinnandi fólks ekki í boði

Drífa telur að það sama megi segja um umræð­una um að afnema sér­leyfin í leigu­bíla­akstri. Flestar borgir þar sem til að mynda Uber hafi fest sig í sessi séu í tómum vand­ræðum einmitt vegna félags­legra und­ir­boða og yfir­völd reyni af fremsta mætti að vinda ofan af þeirri þróun. Þau sem keyra bíl­ana séu langt fyrir neðan lág­marks­laun og fari arð­ur­inn til fyr­ir­tækja sem skráð eru í öðrum löndum.

„Að ræða breyt­ingar á leigu­bíla­akstri, þó ekki sé verið að leyfa Uber sér­stak­lega, án þess að taka til­lit til vinn­andi fólks í grein­inni er ein­fald­lega ekki í boði. Það ríður eng­inn feitum hesti frá leigu­bíla­akstri í dag og lækkun verðs á leigu­bílum þýðir launa­lækkun fyrir þá sem aka. Þetta er eitt skýrasta dæmi um deili­hag­kerfið og hvernig það getur snú­ist gegn vinn­andi fólki þar sem ein­stak­lingar eru í sam­keppni hver við aðra án þess að vera í föstu ráðn­ing­ar­sam­bandi með þeim rétt­indum sem fylgir,“ skrifar Drífa.

Hún hvetur Íslend­inga að fara var­lega í sak­irnar og að ASÍ krefj­ist þess að allar stefnu­mót­anir til fram­tíðar séu ekki síst unnar út frá hags­munum vinn­andi fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár