„Ísland er að fara að verða umferðarmiðstöð Atlantshafsins“

Dósent í hag­fræði við Háskóla Íslands segir að miklu máli skipti að Kefla­vík­ur­flug­völlur hafi verið ryðja sér til rúms sem flutn­inga­miðja á Atl­ants­hafi. Sá vöxtur hafi skapað margar beinar og breiðar leiðir til lands­ins frá bæði Banda­ríkj­unum og Evrópu.

Leifsstöð
Leifs­stöð Mynd: ISAVIA

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir að sú þróun að fjöl­mörg flug­fé­lög fljúga nú hingað til lands skipti meira máli heldur en þróun á olíu­verði eða afkoma íslensku flug­fé­lag­anna. Hann segir að Ísland sé að fara að verða umferð­ar­mið­stöð Atl­ants­hafs­ins.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Ásgeir segir í þessu sam­hengi að beinum flug­ferðum til og frá Íslandi, í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl sem höfn, hafi fjölgað veru­lega með til­heyr­andi netá­hrifum. „Ég tel að þessi þróun haldi áfram, hvort sem íslensku flug­fé­lögin verði áfram leið­andi í þeirri þróun eða hve mikið af þessu ferða­fólki gerir sér ferð inn í landið sjálft.“

Hann segir jafn­framt í sam­tali við Frétta­blaðið að vöxtur ferða­þjón­ust­unnar verði ekki lengur eins „fyr­ir­hafn­ar­laus“ og verið hefur. „Við munum þurfa að vinna heima­vinn­una okkar til þess að ná áfram­hald­andi árangri. Það þýðir ekki ein­göngu að reiða sig á sjarma lands­ins líkt og verið hefur. Fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu þurfa að huga betur að rekstr­inum og hvaða hópum þau ætla að þjóna. Miklar kostn­að­ar­hækk­anir og geng­is­hækkun hafa sett gríð­ar­legan þrýst­ing á hag­ræð­ingu í grein­inni,“ segir Ásgeir.

[adspot]

Kjarninn hefur fjallað um afkomu íslensku flug­fé­lag­anna en Icelandair tap­aði 6,3 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins. Tapið skýrist aðal­lega af hækkun olíu­verðs og sveiflum á gengi krón­unn­ar, en for­stjóri félags­ins, Björgólfur Jóhanns­son, segir að fleiri þættir komi til sem félagið geti haft áhrif á. Félagið hefur að und­an­förnu breytt skipu­lagi sínu og mun ganga lengra í þeim efn­um, sam­kvæmt Björgólfi.

Flug­fé­lög hafa mörg hver gengið í gegnum erf­iða tíma að und­an­förnu vegna hækk­andi verðs á olíu, og harðrar sam­keppni. Helsti sam­keppn­is­að­ili Icelandair í flugi til Íslands, WOW Air, hefur ekki birt árs­reikn­ing fyrir árið 2017 eða upp­lýs­ingar um rekstur félags­ins á þessu ári.

Tölu­verðs titr­ings hefur gætt á mörk­uðum vegna stöðu flug­fé­lag­anna, enda er flug­rekstur hluti af burð­ar­stólpa í íslensku atvinnu­lífi sem ferða­þjón­ustan í heild er orð­in. Vöxtur hennar hefur verið hrað­ur. Í fyrra komu um 2,7 millj­ónir ferða­manna til lands­ins, en til sam­an­burðar voru þeir innan við 500 þús­und árið 2010.

Ásgeir segir að hærri far­gjöld geti haft þau áhrif að fólk ferð­ist minna. Lágt olíu­verð og lág far­gjöld hafi átt þátt í vexti ferða­þjón­ust­unnar. „Meira máli skiptir þó að Kefla­vík­ur­flug­völlur hefur verið ryðja sér til rúms sem flutn­inga­miðja á Atl­ants­hafi. Sá vöxtur hefur skapað margar beinar og breiðar leiðir til lands­ins frá bæði Banda­ríkj­unum og Evrópu og aukið aðgengi að land­inu. Það hefur verið meg­in­drif­kraft­ur­inn að baki mik­illi fjölgun ferða­manna á und­an­förnum árum,“ segir Ásgeir við Frétta­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár