Andrés Önd hleypir lífi í túrismann

Á for­síðu nýjasta Andr­és­blaðs­ins (6.11.2018) sést fræg­asta önd í heimi, ásamt þeim Ripp, Rapp og Rupp, við þekkta kirkju á Jótlandi í Danmörku. Reynslan sýnir að for­síðu­mynd af þessu tagi dregur að fjölda ferða­manna.

Á for­síðu­mynd nýjasta blaðs­ins um íbú­ana í Andabæ sést turn­inn á „Den til­sand­ede kirke“ vestan við Skagen, nyrsta bæ Dan­merkur. Turninn er það eina sem sést í dag, leif­arnar af kirkj­unni huldar sandi. Kirkjan, sem heitir Sankt Laurentii Kirke, var byggð á fjórt­ándu öld en turn­inn um eitt hund­rað árum síðar. Á sext­ándu öld urðu miklar breyt­ingar á lands­lagi á þessu svæði vegna sand­foks og árlega þurfti að fjar­lægja tugi tonna sands sem söfn­uð­ust að kirkj­unni. Í lok átj­ándu aldar gáfust kirkju­yf­ir­völd upp fyrir sand­inum, hluti kirkj­unnar var tek­inn niður áður en sand­ur­inn huldi húsið. Turninn stóð þó áfram upp úr sand­inum og er nú frið­aður. Fjöldi fólks leggur árlega leið sína á þessar slóðir, meiri­hluti þeirra erlendir ferða­menn.

Ekki fyrsta ferðin til Danmerkur

Hér verður ekki nánar greint frá ástæðum þess að þeir Andrés Önd, Ripp, Rapp og Rupp, leggja leið sína til Norður-Jótlands. Þessi ferð er hins­vegar ekki sú fyrsta þeirra „fjór­menn­inga“ til Dan­merkur, þangað hafa þeir komið nokkrum sinnum. Dan­merk­ur­dvöl þeirra hefur þó ætíð, með einni eða tveimur und­an­tekn­ingum, ein­skorð­ast við Kaup­manna­hafn­ar­svæðið.

Jelling og steinarnir

Á Suður-Jótlandi, skammt vestan við Vejle er smá­bær­inn Jelling (Jalangur), íbú­arnir tæp­lega fjögur þús­und. Þessi litli bær skipar mjög sér­stakan sess í danskri sögu. Í Jelling er nefni­lega að finna tvo mjög merki­lega steina, kall­aðir Jell­ing­stein­arnir, stóri og litli.

Stærri stein­inn lét Haraldur Blátönn (sem sagt er að Bluetooth stað­all­inn dragi nafn sitt af) reisa á graf­haug föður síns, Gorms gamla. Með Gormi gamla hefst form­leg röð danskra kon­unga, óvíst er hvenær hann fædd­ist en tal­inn hafa lát­ist 958/959. Á stein­inum stendur að Haraldur hafi látið gera hann í minn­ingu for­eldra sinna, Gorms og Þyri (Thyra) dana­bótar. Enn­fremur að Haraldur þessi hafi lagt undir sig Danmörku og Noreg og snúið Dönum til kristni. Þessa stað­hæf­ingu telja sagn­fræð­ingar ekki stand­ast, með þessu hafi Haraldur vilj­andi ýkt sinn hlut.

Orðrétt stendur rist í stein­inn „Kong Harald bød gøre disse kum­ler eftir Gorm sin fader og eftir Thyra sin moder – den Harald som vandt sig hele Danmark og Norge og gjorde danerne kristne.

Minni stein­inn, þann eldri, lét Gormur gamli reisa eftir að Þyri dana­bót lést árið 950, fæð­ing­arár hennar var lík­lega 898. Á stein­inum stendur að hann hafi Gormur kon­ungur látið reisa eftir dauða konu sinnar, Þyri. Orðrétt stendur „Kong Gorm gjorde disse kum­ler efter Thyra sin kone Danmarks bod“.

Ástæða þess að steinar þessi skipa svo sér­stakan sess í sögu Dan­merkur er að þarna er í fyrsta skipti orðið Danmörk nefnt, svo vitað sé, innan landamæra Dan­merkur (þótt vitað sé um eldri dæmi ann­ars staðar í Evrópu). Stein­arnir eru þess vegna eins konar fæð­ing­ar­vott­orð Dan­merkur og taldir meðal helstu ger­sema dönsku þjóð­ar­innar. Margir leggja leið sína til Jelling til að skoða stein­ana en Dönum sem fara þangað hefur fækkað tals­vert þrátt fyrir að ferða­mála­yf­ir­völd á svæð­inu hafi reynt ýmis­legt til að vekja áhuga þeirra á þessum merku forn­minjum.

Andrés blöðin vinsæl í Evrópu

Andrés Önd varð til árið 1934, hjá Walt Disney fyr­ir­tæk­inu. Í upp­hafi voru nöfn teiknar­anna ekki gefin upp, en þekkt­astur þeirra sem teiknað hafa Andrés er án efa Carl Barks, sem bæði teikn­aði mynda­sögur í blöð og teikni­myndir fyrir hvíta tjaldið. Teikni­mynda­blöðin náðu aldrei veru­lega mik­illi útbreiðslu vestan hafs en urðu hins vegar mjög vin­sæl í Evrópu.

Fyrsta Andr­és­blaðið með dönskum texta kom út árið 1949. Þá kom blaðið mán­að­ar­lega, árið 1955 fór það að koma út hálfs­mán­að­ar­lega og árið 1959 varð það viku­blað. Dönsku Andr­és­blöðin (eins og þau hafa alltaf verið kölluð) nutu mik­illa vin­sælda hér á Íslandi og hafa ugg­laust orðið til að létta mörgum dönsku­námið. Frá 16. maí 1983 hafa íslenskir les­endur (og svo sem aðrir líka) getað lesið um lífið og ævin­týrin í Andabæ, á íslensku. Þá varð Fedtmule að Guffa svo dæmi sé nefnt. Þótt margt í Andr­és­blöð­unum beri enn merki banda­ríska upp­runans hafa sög­urnar þó breyst og orðið evr­ópsk­ari. Nöfn teiknar­anna og texta­höf­und­anna eru ekki lengur leynd­ar­mál.

Andrés, Ripp, Rapp og Rupp í Jelling

Í dag er margt í boði þegar afþrey­ing er ann­ars vegar. Þrátt fyrir allar þær breyt­ingar og stór­aukið úrval halda teikni­mynda­blöðin velli, ekki síst á Norð­ur­löndum þótt upp­lagið sé minna en á „gull­ald­ar­ár­unum“. Hér á landi er salan lang­mest gegnum áskrift.

Fyrir nokkrum árum efndi Egmont Serieforlaget í Danmörku, útgef­andi Andr­és­blað­anna í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og á Íslandi í sam­vinnu við for­lagið Eddu, til hug­mynda­sam­kepni meðal starfs­fólks um sögu­efni tengt Danmörku. Þá kvikn­aði hug­myndin um að Andrés Önd, Ripp, Rapp og Rupp myndu leggja leið sína til Jelling. Rök­semdin var að Jelling væri einn merkasti sögu­staður Dan­merkur og leið­angur Andrésar og félaga myndi vekja áhuga ungra danskra les­enda.

Eftir miklar bolla­legg­ingar var ákveðið að gefa út sér­stakt blað, ekki venju­legt viku­blað, og þetta sér­staka blað yrði ein­ungis í boði í safn­inu í Jelling, til­tek­inn dag eða kannski tvo. Það yrði ekki selt, en til að krækja sér í ein­tak yrði fólk að koma í safnið og leysa þar þraut. Skemmst er frá því að segja að þetta, sem var ræki­lega aug­lýst, hitti algjör­lega í mark. Þegar safnið var opnað þennan til­tekna dag, í mars árið 2017 biðu mörg hund­ruð manns fyrir utan og allt upp­lag þess­arar sér­út­gáfu (8 þús­und ein­tök) klárað­ist. Inn í þraut­ina var fléttað hluta sögu sem Carl Barks, sem áður var minnst á, hafði teiknað um leit að vík­inga­hjálmi.

Stjórn­endur safns­ins í Jelling, sem unnu að gerð sér­blaðs­ins með starfs­fólki Egmont, voru afar ánægðir með þetta fram­tak for­lags­ins. En einkum þó þá stað­reynd að Dönum sem leggja leið sína til Jelling hefur fjölgað til muna. Í könn­unum sem safnið hefur gert meðal danskra gesta hefur komið fram að aug­lýs­ing­arnar í kringum sér­út­gáf­una hafi vakið athygli þeirra, og ekki síst ungu kyn­slóð­ar­innar á þessum merka þjóð­ar­arfi.

Og nú er það kirkjan í sandinum

Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli má, á for­síðu nýjasta Andr­és­blaðs­ins, sjá „den til­sand­ede kirke“ ásamt þeim Andrési, Ripp, Rapp og Rupp. Frá­sögnin af þess­ari ferð þeirra, um Norður-Jótland er aðal­saga blaðs­ins. Í við­tali af þessu til­efni sagði ferða­mála­full­trúi Vendsys­sel að for­síðan og sagan væru á við margar aug­lýs­ingar. Hann sagð­ist von­ast til að þessi Jót­lands­ferð Andrésar yrði til að vekja athygli, ekki síst Dana, á þessu svæði.

Vikulega lesa um að bil 200 þús­und Danir Andr­és­blaðið en sama útgáfa kemur jafn­framt út í Þýska­landi, Noregi og Svíþjóð, auk Íslands, text­inn á við­kom­andi tungu­máli. Þjóð­verjar og Norðmenn nota enska nafnið, Donald Duck, í Svíþjóð er það Kalle Anka og í Danmörku Anders And. Rétt er að nefna að þegar blöðin fóru að koma út á íslensku, árið 1983, var mikil vinna lögð í að gefa per­són­unum íslensk nöfn og þýða stað­ar­heitin. Það verk ann­að­ist Pétur Rasmus­sen. Nokkrir Anda­fræð­ingar sem skrif­ari þessa pistils ræddi við sögðu að íslenska þýð­ingin, sem ýmsir hafi ann­ast, hafi ætíð verið vel heppnuð og hnyttin. Núver­andi þýð­andi er Jón Stefán Krist­jáns­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið undanfarið ár