Íslendingar fara meira til útlanda en áður

Brott­farir Íslend­inga voru tæp níu pró­sent fleiri á þessu ári en því síð­asta. Heldur dregur úr fjölgun ferða­manna, sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu.

Leifsstöð
Leifs­stöð Mynd: Isavia

Um 58 þús­und Íslend­ingar fóru utan í sept­em­ber í ár eða 1,1 pró­sent fleiri en í sept­em­ber á síð­asta ári. Samtals voru brott­farir Íslend­inga á tíma­bil­inu jan­úar til sept­em­ber um 503 þús­und tals­ins eða 8,8 pró­sent fleiri en á sama tíma­bili árið 2017. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu sem send var út í dag. 

Í henni kemur fram að brott­farir erlendra far­þega frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl í sept­em­ber síð­ast­liðnum hafi verið tæp­lega 232 þús­und tals­ins eða um 28 þús­und fleiri en í sept­em­ber á síð­asta ári. Fjölg­unin nam 13,6 pró­sent á milli ára, sem er álíka og í maí og mun meiri en mælst hefur aðra mán­uði árs­ins.

Samkvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu voru Banda­ríkja­menn fjöl­menn­astir í sept­em­ber eða ríf­lega þriðj­ungur og fjölg­aði þeim um 43,7 pró­sent milli ára. Af 32 þjóð­ernum sem talin eru sér­stak­lega var fjölgun frá 19 löndum. Að Banda­ríkja­mönnum frá­töldum fjölg­aði Spán­verjum, Kín­verjum og Pól­verjum mest. Fækkun var frá nokkrum lyk­il­mörk­uðum á borð við Bretland, Þýska­land og Frakk­land.

Dregur úr fjölgun ferðamanna

Frá ára­mótum hefur um 1,8 milljón erlendra far­þega farið úr landi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 5,5 pró­sent fjölgun miðað við sama tíma­bil í fyrra.

Farþegum í sept­em­ber fjölgar nú um 13,6 pró­sent milli ára sem er álíka og í fyrra en mun minni fjölgun en árin þar á undan. Fjölg­unin í sept­em­ber var að jafn­aði 24 pró­sent milli ára síð­ast­liðin fimm ár mest frá 2015 til 2016 eða 33,9 pró­sent.

Segir í til­kynn­ing­unni að sé tíma­bilið frá ára­mótum skoðað – í sam­an­burði við sama tíma­bil nokkur ár aftur í tím­ann – megi glögg­lega sjá að dregið hefur veru­lega úr þeirri fjölgun sem verið hefur síð­ustu ár. Frá ára­mótum hefur verið 5,5 pró­sent fjölgun en á sama tíma fyrir ári var hún 28,1 pró­sent. Næstu tvö tíma­bil þar á undan hafði fjölgun á milli ára verið á bil­inu 28 til 34 pró­sent milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár