Námsbrautir sem einblína á ferðaþjónustu allt of fáar

Náms­brautir hér á landi sem leggja áherslu á ferða­þjón­ustu eru allt of fáar og á til­tölu­lega ein­hæfum sviðum. Kallað er eftir fjöl­breytt­ara fram­boði á þrepa­skiptu, hag­nýtu og aðgengi­legu starfs­námi í ferða­þjón­ustu í nýrri skýrslu.

Þörf er fyrir verk­lega færni með áherslu á þjón­ustu í ferða­manna­iðn­að­inum. Þó það nám sem í boði er sé gott eru náms­brautir hér á landi allt of fáar og á til­tölu­lega ein­hæfum sviðum. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar skýrslu Hæfn­iset­urs ferða­þjón­ust­unnar.

Þá er kallað eftir fjöl­breytt­ara fram­boði á þrepa­skiptu, hag­nýtu og aðgengi­legu starfs­námi í ferða­þjón­ustu. Námi sem fer fram bæði á vinnu­stað og í skóla.

Markmið skýrsl­unnar var að miðla sýn atvinnu­lífs og mennta­kerfis á nám í ferða­þjón­ustu þannig að sú sýn gæti verið skólum og yfir­völdum leið­ar­ljós í mótun mennta- og hæfn­istefnu fyrir atvinnu­grein­ina.

Hæfn­isetur ferða­þjón­ust­unnar, sem fjár­magnað er af atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, var stofnað árið 2017 og Fræðslu­mið­stöð atvinnu­lífs­ins falið að hýsa það. Eitt af hlut­verkum Hæfn­iset­urs­ins er að vera vett­vangur sam­tals atvinnu­lífs og mennta­kerfis um fram­tíð­ar­skipan náms í ferða­þjón­ustu.

Æskilegt að hafa fleira starfsfólk með vottaða þekkingu

Ferða­þjón­ustan hefur vaxið ört á und­an­förnum árum og hefur fest sig í sessi sem ein helsta atvinnu­grein Íslend­inga. Ferða­mönnum hefur fjölgað mikið síð­ustu ár og að sama skapi hót­elum, veit­inga­stöðum, bíla­leigum og fyr­ir­tækjum sem bjóða upp á ýmiss konar afþr­ey­ingu. Störfum hefur fjölgað í takt við þarf­irnar og kalla nú á meiri fjöl­breytni og sér­hæf­ingu, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum.

Í skýrsl­unni segir að í við­tölum við stjórn­endur fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu komi fram að æski­legt sé að hafa meira fram­boð af starfs­fólki sem býr yfir stað­festri og vott­aðri þekk­ingu. Það myndi auka gæði og arð­semi.

Brýnt að setja fram heildstæða stefnumörkun

Í árs­byrjun 2018 kall­aði Hæfn­isetrið til víð­tæks sam­tals hag­að­ila í ferða­þjón­ustu, stjórn­enda og starfs­fólk fyr­ir­tækja, full­trúa aðila atvinnu­lífs­ins, auk stjórn­enda og starfs­fólks skóla og fræðslu­að­ila um fyr­ir­komu­lag náms í ferða­þjón­ustu. Mark­miðið var að miðla reynslu, fá nýjar hug­myndir, koma skoð­unum og til­lögum á fram­færi. Leitað var svara við spurn­ing­unni: Hver er þörf ferða­þjón­ust­unnar fyrir hæfni og menntun?

Samkvæmt skýrsl­unni var almenn ánægja með sam­talið og höfðu menn á orði að löngu tíma­bært hefði verið að kalla aðila saman og mik­il­vægt væri að halda sam­starf­inu áfram. Fram kom að þó ein­staka skólar hafi áður átt í sam­tali við atvinnu­rek­endur við mótun nýrra náms­brauta hafi ekki verið ljóst hver bæri ábyrgð á að tryggja að fram­boð náms væri í sam­ræmi við þarfir atvinnu­lífs­ins. Brýnt væri að setja fram heild­stæða stefnu­mörkun fyrir atvinnu­grein­ina.

Ekki verið að tala um stökkbreytingu

Í skýrsl­unni segir enn fremur að stefnu­mörkun yfir­valda mennta­mála liggi fyrir meðal ann­ars í aðal­námskrám og Hvítbók um umbætur í menntun. Fullur vilji sé til að tengja saman skóla­stigin þannig að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki upp­lifi lausnir í að efla hæfni, ekki flækju­stig. Einstaka skólar og fræðslu­að­ilar séu til­búnir til að láta hendur standa fram úr ermum og koma með úrræði.

Í raun og veru sé ekki verið að tala um stökk­breyt­ingu á neinu eða him­inhá útgjöld. Samtalið hafi átt sér stað og gerð hafi verið grein fyrir þörfum ferða­þjón­ust­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár