Spá því að erlendum ferðamönnum fækki í ár

Í fyrsta sinn frá árinu 2009 mun far­þegum um Kefla­vík­ur­flug­völl fækka en sam­kvæmt far­þeg­a­spá Isavia munu milljón færri far­þegar fara um Kefla­vík­ur­flug­völl í ár heldur en í fyrra. Enn­fremur er búist við 55 þús­undum færri ferða­mönnum til lands­ins í ár.

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl á eftir að fækka í ár, í fyrsta sinn síðan árið 2009, sam­kvæmt nýrri far­þeg­a­spá Isavia. Spáin gerir ráð fyrir 8,95 millj­ónir far­þega fari um Kefla­vík­ur­flug­völl á þessu ári, tæpri milljón færri en í fyrra. Einnig er gert ráð fyrir fækkun erlendra ferða­manna hér á landi en spáin spáir 55 þús­und færri ferða­mönnum í ár en í fyrra. 

Spá fækkun ferðamanna í fyrsta sinn frá 2009

Far­þeg­a­spáin var kynnt á morg­un­fundi Isavia á Hilton Nordia hót­eli í morgun. Far­þeg­a­spáin er yfir­leitt kynnt í nóv­em­ber en var frestað vegna óvissunnar um fram­tíð WOW air.

Isavia spái fækk­un far­þega í fyrsta skipti frá 2009, þegar vaxt­ar­skeið flug­vall­ar­ins hófst, en skýr­ing­in á því er minna fram­boð flugs en und­an­far­in ár. Farþegar um Kefla­vík­ur­flug­völl voru 9,8 millj­ón­ir á síð­asta ári, en upp­haf­leg­ar spár Isavia gerðu ráð fyr­ir því að þeir yrðu 10,4 millj­ón­ir. Í ár er spáð 8,7 pró­sent fækkun milli ára en búist er við 8,95 millj­ónum far­þegar fari um flug­völl­inn í ár.

Skiptifarþegar ennþá stærsti farþegahópurinn

Á árinu 2018 voru far­þegar sem fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl til þess að skipta um flug tæp 40 pró­sent heild­ar­far­þega­fjölda flug­vall­ar­ins eða sam­tals 3,8 millj­ónir. Í ár gerir spáin ráð fyrir mestri fækkun í skiptifar­þegum en talið er að þeim muni fækka um 18,7 pró­sent frá fyrra ári. Í spá­inni segir að það skýrist helst af því að áfanga­staðir munu að öllum lík­indum fækka, sem og tíðni ferða til vissra áfanga­staða. Skiptifar­þegar verða þó áfram stærsti far­þega­hóp­ur­inn eða alls 3,1 milljón.

Samkvæmt spánni fækkar brott­far­arfar­þegum hins vegar minna. Komu- og brott­far­arfar­þegum á að fjölga yfir sum­ar­tím­ann milli ára. Í júní verði þeir um 4 pró­sent fleiri en á sama tíma í fyrra, þeim fjölgar um 5,7 pró­sent í júlí og að lokum um 7,2 pró­sent í ágúst. Þá gerir far­þeg­a­spáin ráð fyrir að komu- og brott­far­arfar­þegum fjölgi í nóv­em­ber um 1,7 pró­sent og í des­em­ber um 4,6 pró­sent.

Isavia spáir því einnig að ferðum Íslend­inga um flug­völl­inn fari fækk­andi eða um 3,3 pró­sent. Auk þess muni er­lend­um ferða­mönnum fækka um 2,4 pró­sent og verði því 55 þús­und­um færri en þeir voru árið 2018.

„Stærstu frétt­irn­ar í spánni er þó þær að þrátt fyr­ir mikla óvissu und­an­farn­ar vik­ur þá er fækk­un­in ekki mjög mik­il og mun árið 2019 verða svipað að stærð og árið 2017 sem talið var mjög gott ár í ferða­þjón­ust­unni,“ seg­ir í far­þega­spánni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár