Íslandsstofa ekki undanþegin upplýsingalögum

Meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar vill að upp­lýs­inga­lögin gildi áfram um starf­semi Íslands­stofu. Í frum­varpi utan­rík­is­ráð­herra átti starf­semin að vera und­an­þegin ákvæðum upp­lýs­inga- og sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup.

Meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar hefur skilað breyt­ing­ar­til­lögu á frum­varpi um Íslands­stofu þar sem upp­lýs­inga­lögin munu áfram gilda um starf­semi hennar. Í frum­varpi utan­rík­is­ráð­herra átti starf­semi Íslands­stofu að vera und­an­þegin ákvæðum upp­lýs­inga­laga, sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup sem meiri­hlut­inn vill að gildi áfram um Íslands­stofu. Upp­lýs­inga­lögin veiti þó ekki aðgang að upp­lýs­ingum sem varða mál­efni starfs­manna hennar eða fjár­hags- eða við­skipta­hags­muni þeirra einka­að­ila sem taka þátt í verk­efnum hennar sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra lagði fram stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingu á lögum um Íslands­stofu þar sem meðal ann­ars rekstr­ar­formi og hlut­verki hennar er breytt. Íslands­stofa verður þannig sjálfs­eign­ar­stofnun og mun það að sögn utan­rík­is­ráð­herra eyða óvissu um stjórn­sýslu­lega stöðu stofn­un­ar­innar.

Vill meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar að upp­lýs­inga­lögin gildi áfram um Íslands­stofu en sam­kvæmt frum­varp­inu átti hún að vera und­an­þegin upp­lýs­inga­lögum. Utan­rík­is­ráð­herra sagði í fram­sögu sinni á Alþingi þegar hann mælti fyrir frum­varp­inu að með því yrði Íslands­stofa ekki lengur stofnun og stjórn­sýslu­að­ili, heldur rekin á einka­rétt­ar­legum grunni, og því gætu stjórn­sýslu­lög og upp­lýs­inga­lög ekki gilt um sjálfs­eign­ar­stofn­un­ina Íslands­stofu. Gild­is­svið þess­ara laga sé bundið við opin­bera aðila og stjórn­sýslu þeirra og hið sama eigi við um gild­is­svið starfs­manna­laga sem lagt var til að nái ekki heldur til starfs­manna Íslands­stofu.

Í frum­varp­inu er sem sagt lagt til að Íslands­stofa sé und­an­þegin tekju­skatti sam­kvæmt lögum um tekju­skatt og að ákvæði stjórn­sýslu­laga, upp­lýs­inga­laga, sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup eigi ekki við um starf­semi hennar.

Með breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hlut­ans verður Íslands­stofa hins vegar áfram und­an­þegin tekju­skatti eins og lagt er til í frum­varpi utan­rík­is­ráð­herra og munu ákvæði stjórn­sýslu­laga ekki gilda um starf­semi hennar. Þannig vill meiri­hluti utan­rík­is­mála­nefndar að ákvæði bæði sam­keppn­islaga og laga um opin­ber inn­kaup eigi áfram við um Íslands­stofu. Þá er lagt til í breyt­ing­ar­til­lög­unni að tekið sé sér­stak­lega fram að upp­lýs­inga­lögin gildi um starf­semi Íslands­stofu. Þau veiti þó ekki aðgang að upp­lýs­ingum í fórum Íslands­stofu sem varða mál­efni starfs­manna hennar eða fjár­hags- eða við­skipta­hags­muni þeirra einka­að­ila sem taka þátt í verk­efnum hennar.

Nefnd­ar­á­lit meiri­hlut­ans, og þannig efn­is­legur rök­stuðn­ingur fyrir þessum breyt­ingum, hefur ekki enn verið birtur á vef Alþingis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðaiðnaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár