Neytendasamtökin efast um að einkavæðing sé góð fyrir neytendur

Sam­keppn­is­eft­ir­litið og Neyt­enda­sam­tökin bregð­ast við nýrri skoðun Við­skipta­ráðs.

Neyt­enda­sam­tökin efast um að það gagn­ist neyt­endum að einka­væða opin­bera atvinnu­starf­semi eða að stjórn­völd bjóði út þjón­ustu­samn­inga nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Sam­keppn­is­eft­ir­litið vill að stjórn­völd taki upp svo­kallað sam­keppn­is­mat og það telur að það sé sam­eig­in­legt verk­efni atvinnu­lífs og stjórn­valda að búa í hag­inn fyrir virka sam­keppni á sem flestum sviðum. Þetta kemur fram í svörum við fyr­ir­spurn Kjarnans í tengslum við skoðun Við­skipta­ráðs.

„Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki talað fyrir slíkri einka­væð­ingu né gerð þjón­ustu­samn­inga sem þarna er lagt til og hafa efa­semdir um að það myndi gagn­ast neyt­endum nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum,“ segir Jóhannes Gunn­ars­son, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna. Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki fjallað form­lega um þá skoðun sem kemur fram hjá Við­skipta­ráði.

Í skoð­un­inni hvetur Við­skipta­ráð stjórn­völd meðal ann­ars að hætta í hefð­bundnum atvinnu­rekstri. Það leggur til að veita fleiri þjón­ustu­samn­inga og telur að ríkið eigi ekki að vera í tekju­auk­andi starf­semi. Í þriðja lagi gagn­rýnir Við­skipta­ráð hefð­bund­inn sam­keppn­is­rekstur á vegum hins opin­bera.

Það verður að skoða hvert skref vandlega

„Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki talað fyrir slíkri einka­væð­ingu né gerð þjón­ustu­samn­inga sem þarna er lagt til og hafa efa­semdir um að það myndi gagn­ast neyt­endum nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum,“ segir Jóhannes. Neyt­enda­sam­tökin hafa ekki fjallað form­lega um þá skoðun sem kemur fram hjá Við­skipta­ráði.

Jóhannes segir þó að nauð­syn­legt sé að skoða hvert skref vand­lega áður en ákveðið er að einka­væða eða gera í rík­ari mæli þjón­ustu­samn­inga og að metið sé hvaða afleið­ingar það hafi; hvort almenn­ingur hagn­ist eða ekki.

Er þátttakan nauðsynleg?

Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að það sé full ástæða fyrir stjórn­völd að huga vel að því hvort og hvernig þau koma að sam­keppn­is­rekstri. „Þótt sam­keppn­is­lögin úti­loki ekki þátt­töku stjórn­valda í sam­keppn­is­rekstri er mik­il­vægt að þau meti í hverju til­viki hvort þátt­takan er nauð­syn­leg og taki ákvarð­anir út frá því. Ef þátt­takan er nauð­syn­leg verður að gera þá kröfu að stjórn­völd raski ekki sam­keppni á við­kom­andi mark­aði,“ segir hann í svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hann segir að í sam­keppn­is­lögum sé til dæmis að finna heim­ild handa Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu til þess að mæla fyrir um fjár­hags­legan aðskilnað milli ann­ars vegar opin­berrar starf­semi og hins vegar starf­semi sem er í beinni sam­keppni við fyr­ir­tæki á frjálsum mark­aði. Rík­is­styrkja­reglum EES-samn­ings­ins sé einnig ætlað að vernda sam­bæri­lega hags­muni. Í ýmsum öðrum til­vikum séu mögu­leikar sam­keppn­is­yf­ir­valda til íhlut­unar óljós­ari.

Vill fá samkeppnismat

Páll Gunnar segir að sam­keppn­is­efti­ritið hafi lengi talað fyrir því að stjórn­völd taki upp svo­kallað sam­keppn­is­mat þegar lög og reglur eru und­ir­búnar. Slíkt mat eigi líka vel við þegar stjórn­völd ákveða þátt­töku í atvinnu­rekstri. Sam­keppn­is­mat sé ein­falt mat á því hvort við­kom­andi ráð­stöfun er til þess fallin að skaða sam­keppni. Ef svarið er já beri að leita leiða að settu mark­miði sem síst skaðar sam­keppni.

Hann segir enn fremur að það sé sam­eig­in­legt verk­efni atvinnu­lífs og stjórn­valda að búa í hag­inn fyrir virka sam­keppni á sem flestum sviðum. Stjórn­völd eigi að gera það með því að huga vel að því hvernig þau hafa áhrif á sam­keppni í gegnum lög, reglur og þátt­töku í atvinnu­rekstri. Atvinnu­lífið eigi að gera það með því að fara að sam­keppnilögum, s.s. bann­inu við ólög­mætu sam­ráði og mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnvöld

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár