Stjórnvöld verði að draga vagninn

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að stjórn­mála­menn séu hræddir við að leiða óum­flýj­an­legar sam­fé­lags­breyt­ingar vegna ham­fara­hlýn­unar. Hún var stödd á Norð­ur­landa­ráðs­þingi þegar Kjarninn náði tali af henni en þema þings­ins sner­ist einmitt um lofts­lags­mál.

Oddný Harðardóttir
Oddný Harð­ar­dóttir Mynd: Norden.org/Johannes Jansson

Lofts­lags­mál voru í önd­vegi á Norð­ur­landa­ráðs­þingi í Stokk­hólmi í Svíþjóð í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir í sam­tali við Kjarnann að ekki sé nóg að gert í lofts­lags­málum. „Á þing­inu var ekki talað um hald­bærar aðgerðir. Það sem ég skynja í umræð­unni er að stjórn­mála­menn vilja ekki stíga fram og segja: „Við þurfum að gera þetta hérna!““

Athygli vakti þegar Oddný spurði á þing­inu Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, um hug­mynd sem hún fyrst heyrði hjá Andra Snæ Magna­syni. Oddný spurði hana sem sagt hvernig henni lit­ist á að þeir sem keyra bensín- og dísil­bíla skildu bíl­inn eftir heima tíunda hvern dag á árinu 2020 og gerðu svo enn betur næstu ár.

Frederik­sen svar­aði um hæl og sagði að sér lit­ist mjög illa á þessa hug­mynd.

Metnaðarfull áætlun sem þau vita ekkert hvernig þau ætla að útfæra

Oddný bendir á að Frederik­sen verði í for­svari fyrir Norð­ur­löndin á þessu ári en yfir­skrift for­mennsku­á­ætl­unar Dan­merkur, Færeyja og Græn­lands fyrir árið 2020 er „Samtaka um fram­tíð­ar­lausnir“. Ætlunin er að hin nýja fram­tíð­ar­sýn Norrænu ráð­herra­nefnd­ar­innar fyrir 2030 verði að veru­leika – að Norð­ur­löndin verði sjálf­bærasta og best sam­þætta svæði heims.

[links]„Þau eru með mjög metn­að­ar­fulla áætlun í lofts­lags­málum sem þau vita ekk­ert hvernig þau ætla að útfæra. Ég spyr hana þess vegna á þing­inu hvort hún vilji ekki vera í alvör­unni leið­togi Norð­ur­land­anna í þessum efnum og koma með hald­bærar aðgerðir, til dæmis varð­andi það að minnka akstur á árinu 2020 á bensín- og dísil­bílum um 10 pró­sent. Þeir sem eigi þannig bíla geymi þá heima tíunda hvern dag,“ segir hún. „Henni fannst það alveg hræði­lega vit­laus hug­mynd vegna þess að fólk þyrfti að kom­ast leiðar sinnar.“

Oddný segir að hún hafi auð­vitað ekki verið að tala um að fólk ætti ekki að kom­ast leiðar sinnar. „Rann­sóknir hafa sýnt að það sé lofts­lagskreppa, það er bara þannig. Og það getur eng­inn gert neitt nema við. Stjórn­völd verða að draga vagn­inn, þau verða að segja almenn­ingi, fyr­ir­tækjum og stofn­unum hvaða skref er best að stíga svo við náum árangri sem fyrst.“

Hún segir að stjórn­völd þori þó ekki að stíga þetta skref.

„Það er mín til­finn­ing. En auð­vitað þarf að vera sam­þykki fyrir því í sam­fé­lag­inu að við stöndum frammi fyrir þess­ari ógn og að við verðum að gera eitt­hvað. Við verðum að vera til­búin í það öll,“ segir hún.

Samspil almennings og fyrirtækja

Oddný telur mik­il­vægt að huga að sam­spili almenn­ings og fyr­ir­tækja í lofts­lags­málum. „Það þýðir til dæmis ekki að biðja kjöt­fram­leið­endur að minnka fram­leiðslu á meðan almenn­ingur er til­bú­inn að kaupa. Það verður að vera sam­spil þarna á milli. Við þurfum að draga úr kjöt­neyslu þannig að eft­ir­spurnin verði ekki eins mikil,“ segir hún.

„Svo er heldur ekki nóg að segja: „Þið verðið að breyta neyslu­venjum ykkar. Það er vegna þess að þið eruð svo neyslu­frek að við erum í þessum vanda hér.“ Fólk verður að vita hvað sé besta leiðin. Við verðum að þora,“ segir Oddný.

Hægt sé að setja upp mæl­an­legt mark­mið með hjálp vís­inda­manna og síðan meta val­kost­ina sem bjóð­ast. „Sumir til að mynda geta ekki dregið úr akstri. Þá geta þeir gert eitt­hvað annað. Um leið og við erum komin með sam­þykki í sam­fé­lag­inu að við verðum að gera eitt­hvað þá er hægt að finna leiðir fyrir hvern og einn.“

Aðgerðirnar mega ekki auka ójöfnuð

Oddný tekur það sér­stak­lega fram að aðgerðir í lofts­lags­málum megi ekki verða til þess að auka ójöfnuð. Passa þurfi upp á vel­ferð­ina og jöfn­uð­inn. „Svo að þeir sem eru veikir fyrir verði ekki enn veik­ari í því breyt­inga­ferli sem framundan er.“

Enn fremur finnst henni mik­il­vægt að verka­lýðs­fé­lögin verði tekin með í sam­ræð­una. „Að áhrifin séu metin á kjör fólks og á vinn­andi fólk. Verka­lýðs­fé­lögin hafa náð í gegn ýmiss konar stórum málum og þau þurfa að vera með í breyt­inga­ferl­inu sem fylgir lofts­lags­málum. Þau passa upp á kjör fólks­ins,“ segir hún.

Verða líka að hittast

Kolefn­is­spor Norð­ur­landa­ráðs­þings­ins er stórt og þegar Oddný er spurð út í það hvort það sé þess virði þá svarar hún því ját­andi. „Við þurfum reyndar að velja okkur fundi en þessi þing skipta mjög miklu máli fyrir nor­ræna sam­vinnu. 90 pró­sent Norð­ur­landa­búa vilja aukna nor­ræna sam­vinnu, hún verður ekki nema við hitt­umst. Hún mun ekki ger­ast í gegnum tölu­pósta og síma. Hún ger­ist auð­vitað einnig milli þinga en við þurfum að hitt­ast og skipt­ast á skoð­unum og fá hug­myndir.“

Það besta sem kemur út úr sam­vinnu sem þess­ari fyrir ein­stak­ling­inn sé sú þekk­ing sem farið er með heim. „En svo eru nátt­úru­lega í nefnd­unum og í flokka­hóp­unum búnar til alls kyns mála­miðl­anir – vegna ýmissa mála sem eru smá og stór – sem nor­ræna ráð­herra­nefndin styrkir með fjár­munum og eitt­hvað verður úr.“ Þannig sé sam­starfið mjög verð­mætt fyrir Íslend­inga.

„Við stöndum jafn­framt saman um þessi nor­rænu gildi, þau eru ekk­ert sjálf­sögð. Það er vegna þess að sam­fé­lögin hafa passað upp á þau. Þessi frjálsu opnu sam­fé­lög. Traust á milli manna og til stofn­ana,“ segir Oddný að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Norðurlandaráðsþing

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár