Ulf Kristersson til fundar við Erdogan um fullgildingu aðildar Svíþjóðar að NATO

For­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og Tyrk­lands­for­seti ætla að hitt­ast í Ankara á næst­unni til að ræða full­gild­ingu aðildar Svía að NATO. Katrín Jak­obs­dóttir segir að sam­starf Norð­ur­land­anna á sviði örygg­is­mála muni efl­ast við inn­göngu Sví­þjóðar og Finn­lands.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, á leiðtogafundi Norðurlandaráðs í Helsinki.
Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, og Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, á leið­toga­fundi Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki. Mynd: Norðurlandaráð

Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, mun fara til fundar við Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta á næst­unni til að ræða full­gild­ingu aðildar Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO). Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, segir að það sé undir Tyrkjum og Ung­verjum komið hvenær umsóknin verði full­gild.

Þetta var meðal þess sem fram kom á blaða­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna í Helsinki í Finn­landi í morgun þar sem þing Norð­ur­landa­ráðs stendur yfir.

[adspot]For­sæt­is­ráð­herrar Sví­þjóðar, Noregs, Íslands og Finn­lands, auk leið­toga stjórn­valda frá Álandseyjum, sátu fyrir svörum á fund­inum þar sem fátt annað en umsóknar- og aðild­ar­ferli Sví­þjóðar og Finn­lands að NATO komst að. Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, er ekki við­stödd þingið þar sem þing­kosn­ingar fara fram þar í landi í dag.

Mikilvægi Norðurlandanna í öryggismálum mun aukast með aðild Svíþjóðar og Finnlands

Kristers­son sagði ferlið hafa gengið hratt og þakk­aði hann hinum Norð­ur­lönd­unum fyrir ómet­an­legan stuðn­ing við aðild­ar­ferlið. Að hans mati mun full­gild­ing umsókna Sví­þjóðar og Finn­lands auka mik­il­vægi Norð­ur­land­anna þegar kemur að örygg­is­málum.

Tvær vikur eru síðan Kristers­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Full­gild­ing aðildar að NATO er meðal stórra verk­efna sem hann stendur frammi fyrir og var eitt af hans fyrstu verkum að ræða við Erdogan Tyrk­lands­for­seta um umsókn Sví­þjóðar.

Aðeins Tyrkland og Ung­verja­land eiga eftir að sam­þykkja umsókn­irnar en hin aðild­ar­ríkin 28 hafa öll veitt sam­þykki. Ísland var með fyrstu ríkj­unum sem sam­þykkti aðild ríkj­anna þann 5. júlí.

Kristers­son og Erdogan ræddu saman sím­leiðis á dög­unum þar sem þeir ákváðu að hitt­ast í Ankara sem fyrst og ræða umsókn Sví­þjóðar að NATO. Nákvæm dag­setn­ing liggur hins vegar ekki enn fyrir.

Meðal þess sem Kristers­son og Erdogan munu ræða er að öllum lík­indum krafa tyrk­neskra yfir­valda um fram­sal níu meintra „hryðju­verka­manna“ frá Svíþjóð og sex frá Finn­landi til Tyrk­lands. Á fundi sendi­nefndar Finn­lands í Ankara í síð­ustu viku full­yrtu full­trúar í sendi­nefnd Tyrk­lands að um væri að ræða „hryðju­verka­menn“ sem til­heyra flokki aðskiln­að­ar­sinna Kúrda í Tyrk­landi (PKK) og Gülen-hreyf­ing­unni, flokkum sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd í Tyrk­landi.

„Ekki undir okkur komið hvenær Ungverjaland og Tyrkland samþykkja aðild“

Sanna Marin, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, hefur ekki óskað eftir fundi með Erdogan en hún von­ast til að ferl­inu ljúki sem fyrst. „Það er ekki undir okkur komið hvenær Ung­verja­land og Tyrkland sam­þykkja aðild, auð­vitað vonum við að það verði sem allra fyrst. Öll hin ríkin hafa sam­þykkt aðild og gerðu það fljótt, sem und­ir­strikar að Finnland og Svíþjóð eru reiðu­búin að ger­ast aðild­ar­ríki eins fljótt og mögu­legt er,“ sagði Marin.

Aðspurð hvort ríkin verði til­búin til að ganga að kjarn­orku­stefnu NATO, eða hvort Svíar og Finnar muni fara að for­dæmi Noregs og Dan­merkur og leyfa ekki kjarn­orku­vopn í ríkj­unum á frið­ar­tímum, segir Sanna for­gangs­málið að fá aðild­ar­um­sóknir ríkj­anna sam­þykktar að fullu. „Við viljum ekki loka neinum dyrum en við erum ekki að ræða þetta sér­stak­lega á þessu stigi,“ sagði Marin.

Umsóknir ríkj­anna tveggja voru sam­þykktar á leið­toga­fundi NATO í sumar. Finnar hafa upp­fært sína lög­gjöf og Svíar hafa lagt fram breyt­ingar á lög­gjöf sinni.

Sauli Niinistö, for­seti Finn­lands, hefur sagt að það komi ekki til greina að aðskilja umsóknir Finn­lands og Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Kristers­son tekur í sama streng og segir að það sé mik­il­vægt að Svíþjóð og Finnland fylgist að í ferl­inu.

Átakanlegar afleiðingar stríðsins sem hefur áhrif á okkur öll

Umsókn ríkj­anna að NATO er til komin vegna stríðs­ins í Úkraínu. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fund­inum að frá því að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst í febr­úar hafi hún, og afleið­ingar hennar, haft áhrif á öll sam­töl leið­toga Norð­ur­land­anna.

Katrín sagði stjórn­mála­lands­lagið gjör­breytt frá því að Norð­ur­landa­þingið kom síð­ast saman í nóv­em­ber fyrir ári síðan. „Hræði­legt stríð hefur nú staðið yfir í Úkraínu í 250 daga með átak­an­legum afleið­ingum fyrir fólkið í Úkraínu auk áhrifa á okkur öll, á örygg­is­mál, orku­mál, efna­hags­mál og fæðu­ör­yggi um heim allan.“ Líkt og Kristers­son er Katrín sann­færð að aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO muni gera sam­starf Norð­ur­land­anna enn nán­ara á sviði örygg­is­mála.

Búast má við að umsókn Sví­þjóðar og Finn­lands að NATO verði áfram til umræðu á þingi Norð­ur­landa­ráðs sem stendur yfir fram á fimmtu­dag. Fram­tíð­ar­hlut­verk Norð­ur­landa í heim­inum verður þema þings­ins í ár þar sem áhersla verður lögð á örygg­is­á­skor­an­ir, stríðið í Úkra­ínu og orku- og lofts­lags­vána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atlantshafsbandalagið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár