Þrír ráðherrar og níu þingmenn sækja þing Norðurlandaráðs

Þrír ráð­herrar og allir sjö aðal­menn Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs fara á þing ráðs­ins í Helsinki sem hefst á morgun. Auk þess munu tveir þing­menn til við­bótar sækja þingið.

Þrír ráðherrar, sjö aðalmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, forseti Alþingis og einn þingmaður til viðbótar fara á þing Norðurlandaráðs sem hefst í Helsinki eftir helgi.
Þrír ráð­herrar, sjö aðal­menn Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs, for­seti Alþingis og einn þing­maður til við­bótar fara á þing Norð­ur­landa­ráðs sem hefst í Helsinki eftir helgi. Mynd: Bára Huld Beck

74. þing Norð­ur­landa­ráðs fer fram 31. októ­ber til 3. nóv­em­ber í Helsinki en þar koma saman þing­menn, for­sæt­is­ráð­herrar, utan­rík­is­ráð­herrar og aðrir ráð­herrar frá öllum Norð­ur­lönd­unum. Þá verður Sauli Niinistö, for­seti Finn­lands, gesta­ræðu­maður á þing­inu þar sem hann mun fjalla um þýð­ingu nor­ræns sam­starfs í ljósi breyttrar stöðu í örygg­is­málum.

Norð­ur­landa­ráð var stofnað árið 1952 og er opin­ber sam­starfs­vett­vangur nor­rænu þjóð­þing­anna. Ráðið skipa 87 þing­menn frá Danmörku, Finn­landi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð, auk Álandseyja, Færeyja og Græn­lands.

Allir aðal­menn Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs munu sækja þingið sem hefst á mánu­dag. Þau sem fara eru Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður lands­deild­ar­innar, Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.

Að venju funda for­setar nor­rænu þing­anna í tengslum við Norð­ur­landa­ráðs­þing og fer Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem full­trúi Alþingis. Þá fer Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sem full­trúi Vest­nor­ræna ráðs­ins sem fundar alltaf með Norð­ur­landa­ráði í tengslum við þingin.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­mála­ráðu­neyt­inu sækja þrír ráð­herrar þing Norð­ur­landa­ráðs í ár og að þessu sinni eru það þau Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, en hann er einnig sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa, og Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra.

Sjónum beint að framtíðarhlutverki Norðurlanda í alþjóðasamfélaginu

Stjórn­mála­lands­lagið hefur tekið miklum breyt­ingum frá því að þing Norð­ur­landa­ráðs kom síð­ast saman í Kaup­manna­höfn í byrjun nóv­em­ber í fyrra. Nýjar áskor­anir blasa við Norð­ur­lönd­unum eftir að inn­rás Rússa í Úkraínu hófst í febr­úar. Fram­tíð­ar­hlut­verk Norð­ur­landa í heim­inum verður þema leið­toga­fundar þings­ins í ár þar sem áhersla verður lögð á örygg­is­á­skor­anir, stríðið í Úkraínu og orku- og lofts­lags­vand­ann.

Á leið­toga­fundi Norð­ur­landa­ráðs 1. nóv­em­ber verður sjónum beint að fram­tíð­inni það sem meðal ann­ars verður fjallað um hlut­verk Norð­ur­landa í heim­inum. Áhersla verður lögð á stöð­una sem upp er komin í örygg­is­málum í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Einnig verður fjallað um lofts­lags­mál og þann orku­vanda sem heim­ili og fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum eru nú þegar farin að finna fyrir. Hvað varðar sam­starf innan Norð­ur­landa munu umræð­urnar snú­ast um afhend­ingar­ör­yggi, stjórn­sýslu­hindr­anir og fram­tíð vel­ferð­ar­lík­ans­ins, lík­ans sem mjög reyndi á í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Leið­toga­fund­ur­inn er hluti af fram­tíð­ar­um­ræðum sem Finnland hefur sem for­mennsku­land í Norð­ur­landa­ráði ákveðið að standa fyrir á árinu 2022. Á næsta ári gengur for­mennskan til Noregs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Norðurlandaráðsþing

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár