Alltaf hægt að hlusta betur

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra seg­ist virða ákvörðun Gretu Thunberg að afþakka umhverf­is­verð­laun Norð­ur­landa­ráðs og að hægt sé að gera betur. Kjarninn spjall­aði við ráð­herr­ann um nýyf­ir­staðið þing í Svíþjóð þar sem lögð var mikil áhersla á lofts­lags­mál.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Athygli vakti á Norð­ur­landa­ráðs­þingi sem haldið var í síð­ustu viku í Stokk­hólmi í Svíþjóð að aktí­vist­inn Greta Thunberg afþakkaði umhverf­is­verð­laun ráðs­ins en hún sagði að verð­laun skiptu ekki máli en þakk­aði hún jafn­framt fyrir þann heiður að hafa verið val­in. Hún taldi að heldur þyrfti að virkja sam­taka­mátt fjöld­ans og þrýsta á stjórn­mála­menn og aðra leið­toga til að berj­ast gegn mengun af manna­völdum og lofts­lags­breyt­ing­um.

Þegar Kjarninn fal­að­ist eftir við­brögðum Guð­mundar Ingi Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra við því að Greta afþakk­aði verð­launin benti hann að dóm­nefndin hefði kom­ist að því að hún væri þess verðug að fá þessi verð­laun. „Ég myndi segja að þar er ég algjör­lega sam­mála dóm­nefnd­inni. Það er ótrú­legt hvað Gretu hefur tek­ist á einu ári að gera. Ekki bara að vekja þennan áhuga og hreyfi­afl á meðal ungs fólks heldur á meðal heims­byggð­ar­innar – ungra sem ald­inna. Og ef ein­hver mann­eskja ætti þessi verð­laun skilið á Norð­ur­lönd­unum þá væri það hún.“

Hann seg­ist aftur á móti algjör­lega virða ákvörðun Gretu að afþakka verð­launin. „Hún gefur sínar ástæður fyrir því og er hún bara ótrú­lega flott mann­eskja sem er virki­lega að berj­ast fyrir því að við öll gerum betur í þessum málum sem við verðum að gera.“

Greta sagði að stjórn­mála­menn og þeir sem sitja við völd þyrftu að fara að hlusta á vís­indin. Guð­mundur Ingi segir að alltaf sé hægt að hlusta betur. „En svo er það spurn­ingin um að heyra. Þannig að við þurfum að hlusta en jafn­framt að heyra og taka alvar­lega þess brýn­ingu sem kemur frá henni og í raun­inni bara sam­fé­lag­inu öllu. Ég tek undir það að við þurfum að gera meira og betur á Norð­ur­lönd­unum, en þar eru mjög dæmi um þróun sem er og hefur verið að eiga sér stað. Við stöndum til dæmis fram­ar­lega þegar kemur að end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum.“

Guð­mundur Ingi segir að Norð­ur­löndin þurfi núna að ein­beita sér að sam­göngum. „Þarna þurfa þessi lönd að sam­eina krafta sína,“ segir hann. Norðmenn er það ríki sem er með hæsta hlut­fallið af nýskráðum bif­reiðum sem eru vist­hæfar. Ísland er í öðru sæti á eftir Norð­mönnum og segir Guð­mundur Ingi að mik­il­vægt sé að líta á alla þessa þætti en hann tekur bygg­ing­ar­iðn­að­inn einnig sem dæmi. „Þar er stór geiri sem við verðum að horfa til í auknum mæli. Ég vil líka nefna sér­stak­lega að sjáv­ar­út­vegur og land­bún­aður er stórir þættir þegar kemur að útlosun sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda. Og þar þarf að eiga sér stað þessi umbylt­ing í orku­kerf­unum en það er kannski aðeins lengra í lausn­irnar en það þarf virki­lega að hraða því.“

Allt alþjóðlegt samstarf skilar einhverjum árangri

Þegar Guð­mundur Ingi er spurður út í það hvort þing á borð við Norð­ur­landa­ráðs­þingið sé þess virði í ljósi þess að slíkt þing hefur stórt kolefn­is­spor þá segir hann að allt alþjóð­legt sam­starf skili ein­hverjum árangri. „Hins vegar breytir það því ekki að ég held að við getum aukið notkun fjar­funda­bún­aðar milli stærri funda. Það er aftur á móti mik­il­vægt að fólk hitt­ist vegna þess að það er öðru­vísi dýnamík sem mynd­ast milli fólks þegar það hitt­ist. En það þarf ekki endi­lega að vera alltaf. Ef við horfum til þess þegar fund­irnir eru haldnir á Norð­ur­lönd­unum – en til dæmis ekki heima á Íslandi – þá er kolefn­is­sporið minna því hægt er að ferð­ast með lestum og eru flugin styttri.“

Hann telur þó að þetta sé einn þáttur sem huga þurfi að og að hans mati eigi að stefna að því að kolefn­is­jafna alla fundi og þing á borð við þetta.

Rannsóknir munu þó ekki bjarga hafinu

Umhverf­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna ræddu saman á Norð­ur­landa­ráðs­þing­inu en þeir skrif­uðu undir yfir­lýs­ingu um hafið og lofts­lags­mál. „Við höfum und­an­farið verið að fá auk­inn þekk­ing­ar­grunn með skýrslu milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna núna í sept­em­ber og þarna eru Norð­ur­löndin að taka sig saman og skrifa undir yfir­lýs­ingu þess efnis hversu miklu máli hafið skipti. Sér­stak­lega hvað varðar lofts­lags­breyt­ingar,“ segir hann.

„Við þurfum hvert um sig og í sam­ein­ingu að stuðla að því að auka rann­sóknir á breyt­ingu sem er að verða í haf­inu,“ segir hann enn fremur en Guð­mundur Ingi nefnir sem dæmi í því sam­hengi að á Íslandi hafi stjórn­völd ákveðið að auka rann­sóknir á súrnun sjávar. Stórt skref sé að fá upp­lýs­ingar um það.

„En rann­sókn­irnar munu ekki bjarga haf­inu heldur þarf að draga úr losun. Þarna er líka verið að horfa til þess að umgang­ast auð­lindir hafs­ins með sjálf­bærum hætti. Það er líka verið að líta til þess hvernig nýta megi betur vernd svæða í hafi til að styðja við getu hafs­ins til að stand­ast þær breyt­ingar sem eru þó að verða.“

Lögðu áherslu á svokallað hringrásarhagkerfi

Guð­mundur Ingi telur að þetta sé mjög tíma­bær yfir­lýs­ing hjá ráð­herr­unum. Einnig hafi þau lagt áherslu á fundum sínum á svo­kallað hringrás­ar­hag­kerfi en sam­kvæmt honum var það rætt mjög ítar­lega.

„Hringrás­ar­hag­kerfið gengur út á það að í stað­inn fyrir að horfa á fram­leiðslu og þjón­ustu sem línu­lega þar sem þú setur hrá­efnin inn og það verður til ein­hver vara eða þjón­usta og síðan verður til úrgangur sem við hendum þá séum við að reyna að búa til hring úr ferl­inu. Við pælum í því hvaða hrá­efni sé verið að setja inn – hvaða áhrif það muni hafa á nátt­úr­una, hvernig við munum kom­ast af með sem minnst hrá­efni og hvernig hægt sé að auka ábyrgð fram­leið­anda. Síðan eftir því sem þetta fer lengra í keðj­una þá kemur neyt­and­inn einnig inn. Svo veltum við því fyrir okkur hvernig við með­höndlum síðan afgang­ana sem verða til í kerf­inu, það er úrgang­inn, og könnum hvort við getum nýtt þá með ein­hverjum hætti þannig að við búum til hag­kerfi sem fer í hring en er ekki línu­legt,“ segir ráð­herr­ann.

Samhljómur milli ráðherranna

Hann segir að þarna hafi verið gerðar margar rann­sóknir víða, sér­stak­lega í Evrópu, sem sýni að efna­hags­lega séu tæki­færi fólgin í slíku hag­kerfi. „Við, nor­rænu umhverf­is­ráð­herr­arnir, tókum þá ákvörðun á þing­inu að ráð­ast í nor­ræna úttekt á efna­hags­legum áhrifum þess að inn­leiða hringrás­ar­hag­kerfi í okkar löndum. Þetta er held ég dæmi­gert nor­rænt sam­starf, að draga fram með hvaða hætti getum við sýnt fram á að þetta séu lausnir sem ekki bara skila árangri fyrir lofts­lagið og það að fara betur með auð­lind­irnar, heldur felist líka í þeim tæki­færi. Að það felist tæki­færi í þessum breyt­ingum,“ segir hann.

Mjög mik­ill sam­hljómur er milli umhverf­is­ráð­herr­anna, að sögn Guð­mundar Inga. „Það er ofboðs­lega gaman að upp­lifa að það er mjög mik­ill sam­hljómur milli land­anna í þessum málum.“

Lausnir sem innihalda náttúruna sem geranda

Jafn­framt tóku ráð­herr­arnir fyrir það sem Ísland hefur lagt áherslu á til fjölda ára og hefur núna fengið nafnið á ensku „Nature based solution“ sem kalla mætti á íslensku „Nátt­úru­vænar lausnir“.

„Það er í raun­inni þegar við erum að horfa á það hvernig við getum komið fram með lausnir sem inni­halda nátt­úr­una sem ger­anda. Til að mynda að end­ur­heimta vot­lendi, þar sem þú ert í raun­inni að koma í veg fyrir að koltví­sýr­ingur sleppi út í and­rúms­loftið. Á sama tíma er verið að end­ur­heimta líf­kerfið og að tengja saman þessa tvo þætti,“ segir hann og bætir því við að það sama megi segja um land­græðslu. „Þar er verið að koma í veg fyrir frek­ari land­eyð­ingu og á sama tíma og verið er að binda kolefni, sem og auka líf­fræði­lega fjöl­breytni. Og verið er í raun­inni að stuðla að því að mörg sú þjón­usta sem vist­kerfin veita okkur við­hald­ist.“

Guð­mundur Ingi segir að Ísland hafi lagt mikla áherslu á þessa þætti á for­mennsku­ár­inu sínu en í apríl síð­ast­liðnum þegar umhverf­is­ráð­herr­arnir hitt­ust síð­ast ákváðu þeir að tekin yrðu saman dæmi af Norð­ur­lönd­unum með hvaða hætti þau hafi unnið þetta í hverju landi. „Einnig var þetta mikið til umræðu á Climate summit í New York í sept­em­ber síð­ast­liðnum og er einn af þeim þáttum sem alþjóða­sam­fé­lagið er loks­ins að horfa í mun meiri mæli á. Ísland og fleiri ríki hafa lagt áherslu á þetta lengi í gegnum okkar sögu af land­græðslu,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Norðurlandaráðsþing

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár