Greta Thunberg afþakkar umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

Greta Thunberg segir að það þurfi ekki fleiri verðlaun, heldur að virkja samtaka­mátt til að berjast gegn umhverfis­vánni sem fylgi loftslags­breytingum af manna­völdum.

Sænska unglings­stúlkan Greta Thunberg, sem ýtt hefur af stað umræðu um umhverfismál um allan heim, afþakkaði umhverfis­verðlaun Norður­landaráðs.

Hún segir á instagram aðgangi sínum, að verðlaun skipti ekki máli, þó hún þakki fyrir þann heiður að hafa verið valin, heldur þurfi að virkja samtaka­mátt fjöldans og þrýsta á stjórn­málamenn og aðra leiðtoga til að berjast gegn mengun af manna­völdum og loftslags­breytingum.

Greta er stödd í Kaliforníu og gat því ekki verið viðstödd, en fulltrúar hennar komu á svið og sögðu viðstöddum að umhverfis­baráttan þyrfti ekki verðlaun heldur aðgerðir.

Fata­merkið Aft­ur var til­nefnt fyr­ir Íslands hönd en fata­merkið end­ur­vinn­ur eldri föt og býr til ný úr þeim.

Umhverfis­verðlaunin voru því afhent af sænska umhverfis­aðgerða­sinnanum Noura Berrouba. Isabelle Axelsson og Sophia Axelsson frá samtökunum FridaysForFuture voru viðstaddar afhendinguna fyrir hönd Gretu.

FridaysForFuture er hreyfingin sem Greta Thunberg kom af stað í ágúst 2018 þegar hún fór í þriggja vikna skóla­verkfall til að sitja fyrir framan sænska þinghúsið og mótmæla skorti á loftslags­aðgerðum af hendi stjórn­málamanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár