Nýtt líffæri skilgreint

Á hverju ein­asta ári koma fram nýjar upp­lýs­ingar í vís­inda­heim­inum sem breyta sýn okkar á umhverfið og lífið. Þó nú sér árið 2017 gengið í garð er þó langt í það að við vitum allt, það er gríð­ar­legt verk fyrir höndum áður en við t.d. skiljum allt sem við­kemur manns­lík­am­anum. Það sést kannski best á greinum eins og þeirri sem birt var í The Lancet í lok árs­ins 2016.

Í rann­sókn­inni rök­styður írskur rann­sókn­ar­hópur af hverju sá partur lík­ama okkar sem kall­ast garna­hengi eða mes­entery ætti að flokk­ast sem líf­færi. Hingað til hefur garna­hengið ekki fengið þann titil að vera líf­færi heldur er frekar litið á það sem margar flóknar og ótengdar ein­ingar sem festa garn­irnar við lík­amann, eig­in­lega hengja garn­irnar upp inní kvið­ar­hol­inu.

Þegar garna­hengið var skoðað til hlítar kom í ljós að ekki er um margar sjálf­stæðar ein­ingar að ræða heldur er þetta líf­færi ein heild. Þessi heild er líka ekki eins flókin og áður virt­ist en hefur þó sitt eigið hlut­verk sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn vinnur nú að, að skil­greina nánar.

Stundum er það sem þarf til að finna svörin við t.d. sjúk­dómum, ný við­horf. Nú þegar garna­hengið er skil­greint sem líf­færi en ekki bara tengi-ein­ingar eykst skiln­ing­ur­inn á því hvernig það virkar og hvernig það á ekki að virka. Þetta er svo hægt að nýta til að með­höndla sjúk­dóma í kvið­ar­holi.

Það má því segja að þó garna­hengið hafi alltaf verið til staðar þá erum við öll, allt í einu með glæ­nýtt líf­færi í kvið­ar­hol­inu. Það verður áhuga­vert að fá að vita hvað þetta nýtil­komna líf­færi gerir.

Fréttin birt­ist upp­runa­lega á Hvatanum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár