Ríkisbankinn átti 3,8 milljarða lán hjá fyrirtækinu sem keypti Afríkuútgerð Samherja

Lands­banki Íslands lán­aði félagi umsvifa­mesta útgerð­ar­manni Rúss­lands Vitaly Orlov, 3,8 millj­arða króna. Félag Orlovs keypti Afr­íku­út­gerð Kötlu Seafood af Samhera árið 2013. Almanna­teng­ill Orlovs segir að rík­is­bank­inn Lands­bank­inn hafi ekki fjár­magnað kaupin á Afr­íku­út­gerð­inni þó bank­inn hafi átt veð í tog­ara fyr­ir­tækis Orlovs.

Ríkisbankinn átti 3,8 milljarða lán hjá fyrirtækinu sem keypti Afríkuútgerð Samherja
Fjár­mögnun Glitnis og ábyrgðir Lands­bank­ans Þegar Samherji keypti Sjóla­skipa­út­gerð­ina í Afríku árið 2007 kom fjár­mögn­unin frá Glitni. Í hrun­inu 2008 veitti Lands­banki Íslands banka­á­byrgð upp á 7 millj­arða króna út af lánum Samherja hjá Glitni. Myndin er tekin við und­ir­ritun kaup­samn­ings Samherja og Sjóla­skipa árið 2007. Frá vinstri Aðal­steinn Helgason, Þor­steinn Már Bald­vins­son, Haraldur Reynir Jónsson, Kristján Vil­helms­son, Guð­mundur Jónsson og Eiríkur S. Jóhanns­son.

Rík­is­bank­inn Lands­bank­inn átti rúm­lega 30 millj­óna doll­ara, rúm­lega 3,8 millj­arða króna, veð í tog­ara fyr­ir­tækis rúss­neska útgerð­ar­manns­ins Vitaly Orlov, Murmansk Trawl Fleet. Þetta fyr­ir­tæki keypti Afr­íku­út­gerð Samherja á Kanarí­eyjum, Kötlu Seafood, um sum­arið 2013. Veðskjal sem sýnir lánið er frá því í maí 2013 og var sagt frá söl­unni á útgerð Samherja í fjöl­miðlum þann 21. júní 2013. Kaup­verðið á útgerð­inni var um 20 millj­arðar króna. 

Lánið frá Lands­bank­anum var með veði í tog­ar­anum Pavel Kutakhov, sem veiðir hesta­makríl í Vestur-Afríku, og átti það að greið­ast til baka í í byrjun maí árið 2018. Pavel Kutakhov til­heyrði ekki Kötlu Seafood heldur hefur verið í eigu fyr­ir­tækis Orlovs lengur en frá 2013. 

Almannatengill: Landsbankinn lánaði ekki fyrir Kötlu

Almanna­teng­ill Vitaly Orlovs, Alan Kilkenny, segir að Lands­bank­inn hafi ekki lánað Murmansk Trawl Fleet fyrir kaup­verð­inu á Kötlu Seafood og að við­skipta­sam­band rúss­neska fyr­ir­tæk­is­ins við Lands­bank­ann hafi upp­haf­lega verið við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár